Skessuhorn - 18.12.2019, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20192
Björgunarstörf 6, 18, 19
Módel frá 1992 24
Hugvekja sr. Brynhildar 26-27
Jólakrossgáta 28
Myndagáta 30
Gagnleg ráð gegn bruna 31
Fréttaannáll 32-41
Íþróttaannáll 46-47
Kveðjur úr héraði 48-54
Guðrún flytur á Suðurland 56-57
Öh! Dette kan jeg ikke sige... 58
Með síðustu ábúendum á heiðarbýlinu 60-61
Er Hólmari í hjarta sínu 62
Jólagleði í Garðalundi 63
Þrjá systur á Brákarhlíð 64
Markmiðið að bændur biðu eftir Bændablaðinu 66-69
Sagnaritari samtímans 70-71
Auður Kjartans í Ólafsvík 72
Emmi hættir ökukennslu 73
Brenndist illa af djúpsteikingarfeiti 74
Hjálpar fólki að leysa úr vandamálum 75
Fengu glasafrjóvgun í brúðkaupsgjöf 76-77
Skipti kútnum út fyrir sixpack 78
Geiri ætlaði að stoppa í eitt ár 80
Helgihald um hátíðirnar 81
Allt miklu afslappaðra í sveitinni 82
Þá mega jólin koma fyrir mér 83
Ferðalangar á Mont-Blanc 84-85
Bjúgu eru best í heimi 87
Svaðilför á jólaföstu 1872 88-89
Kveðskapur Sigga Ha í Hólakoti 91
Gleðileg jól!
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 51. tbl. 22. árg. 18. desember 2019 - kr. 950 í lausasölu
Máltíð
sími 437-1600
Gjafakort
Borðapantanir í síma 437-1600 eða á
landnam@landnam.is
Það er alltaf gaman
að gefa upplifun
Meðal efnis í
Jólablaði
Skessuhorns:
Næsta blað
SKESSUHORN: Næsta tölu-
blað af Skessuhorni kemur út
miðvikudaginn 8. janúar. Starfs-
fólk verður við vinnu á ritstjórn
27. og 30. desember og síðan
frá og með 2. janúar 2020. -mm
Hart á hrossum
LANDIÐ: Matvælastofn-
un brýnir fyrir hrossaeigend-
um að koma heyi í útigangs-
hross og huga vel að ástandi
þeirra nú þegar rofað hefur til
víða um landið. „Frosthörkur í
kjölfar norðan áhlaups kallar á
aukið eftirlit og umhirðu með
hrossum á útigangi. Nauðsyn-
legt getur verið að moka leið að
hrossum til að koma til þeirra
heyi þar sem skaflar eru miklir.
Hross á útigangi þurfa að vera í
ríflegum holdum á þessum árs-
tíma,“ segir í tilkynningu. -mm
Óbreyttir stýri-
vextir
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands ákvað á miðvikudag að
halda vöxtum bankans óbreytt-
um. Meginvextir bankans, vext-
ir á sjö daga bundnum innlán-
um, jafnan kallaðir stýrivextir,
verða því áfram 3%. Hagvöxt-
ur var 0,2% fyrstu níu mánuði
ársins, sem er aðeins meiri hag-
vöxtur en Seðlabankinn gerði
ráð fyrir í nóvember. Í meg-
inatriðum hefur efnahagsþró-
un það sem af er ári hins veg-
ar verið í samræmi við nóvem-
berspána. Verðbólga mældist
2,7% í síðasta mánuði og hefur
hjaðanað milli mánaða, sem og
undirliggjandi verðbólga. Verð-
bólguhorfur hafa lítið breyst
frá síðasta fundi nefndarinnar
og verðbólguvæntingar eru við
markmið. Fátt hefur því breyst
frá síðasta fundi peningastefnu-
nefndar. -kgk
Skessuhorn stendur nú sem fyrr
fyrir vali á Vestlendingi ársins,
þeim íbúa landshlutans sem hef-
ur á einhvern hátt skarað fram úr
á árinu og verðskuldar sæmdarheit-
ið Vestlendingur ársins 2019. Skil-
yrði er að viðkomandi hafi búsetu á
Vesturlandi.
Íbúar landshlutans geta sent
ábendingar á ritstjórn Skessuhorns
um Vestlending ársins á netfang-
ið skessuhorn@skessuhorn.is eigi
síðar en á miðnætti næstkomandi
föstudag, 20. desember. Gott er
ef ábendingunum fylgir örstuttur
rökstuðningur. kgk
Ellefu umsóknir bárust um starf
slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar. Starfið
var auglýst um miðjan nóvember
og umsóknarfrestur rann út síðast-
liðinn þriðjudag. Einn þeirra ell-
efu sem sóttu um dró umsókn sína
til baka. Alls eru því tíu sem sækj-
ast eftir því að gegna starfinu, níu
karlar og ein kona. Þeir sem sóttu
um eru:
Einar Bergmann Sveinsson,
deildarstjóri á forvarnarsviði, Guðni
Kristinn Einarsson eigandi/fram-
kvæmdastjóri, Gunnar Björgvins-
son sérfræðingur, Helga K Haug
Jónsdóttir framkvæmdastjóri, Jens
Heiðar Ragnarsson verkefnastjóri
sterkstraums, Jóhann K. Jóhanns-
son fréttamaður/vaktstjóri, Leikn-
ir Sigurbjörnsson trésmiður, Sig-
urður Þór Elísson varðstjóri/þjálf-
unarstjóri, Þórður Bogason sjúkra-
flutningamaður og Þorlákur Snær
Helgason varaslökkviliðsstjóri.
kgk
Hver er
Vestlendingur ársins?
Liðsmenn Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar við æfingar. Ljósm. úr safni.
Tíu sækjast eftir
slökkviliðsstjórastöðu
Sendum íbúum Vesturlands,
félagsmönnum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum velunnurum
hugheilar jóla- og nýjárskveðjur
Við þökkum stuðning við kaup á
sjúkrarúmum fyrir HVE á árinu
Stjórn Hollvinasamtaka HVE S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9