Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20196
Stofnunum fækk-
að um eina
LANDIÐ: Stofnunum á sviði
skatta og tolla fækkar um eina
um áramót, en Alþingi sam-
þykkti í síðustu viku lög sem
greiða fyrir sameiningu emb-
ætta ríkisskattstjóra og toll-
stjóra. Sameinuð stofnun mun
heita „Skatturinn“ og verða
leiðandi upplýsingastofnun á
sviði skatta- og tollamála. Stofn-
unum á sviði skatta og tolla hef-
ur fækkað talsvert undanfar-
inn áratug. Árið 2009 voru þær
þrettán talsins, en verða nú um
áramótin þrjár. Um 470 manns
munu starfa í hinni nýju stofn-
un, undir forystu núverandi rík-
isskattstjóra, Snorra Olsen.
-mm
Framlög til tón-
listarnáms
LANDIÐ: Samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra hefur sam-
þykkt tillögu ráðgjafarnefndar
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um
úthlutun framlaga vegna nem-
enda sem þurfa að sækja tón-
listarskóla utan síns sveitarfé-
lags fyrir skólaárið 2019-2020,
á grundvelli 7. gr. reglna frá 31.
ágúst 2016. Framlagið bygg-
ist á samkomulagi milli ríkis og
sveitarfélaga um eflingu tón-
listarnáms og jöfnun á aðstöðu-
mun nemenda til tónlistarnáms.
Framlag á hvern nemenda fyrir
skólaárið 2019-2020 er 472.855
kr. og samþykktar voru um-
sóknir fyrir 13 nemendur. Einn
umsækjandi af Vesturlandi
hlýtur styrk og er sá búsettur
í Dalabyggð. Heildarupphæð
framlaga er um 6,2 m.kr. sem
greiðist í jöfnum greiðslum á 12
mánuðum. Við greiðslu fram-
lagsins fyrir nóvember fer jafn-
framt fram greiðsla vegna fram-
laga fyrir september og október.
-mm
Ekið of hratt
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi var við eftirlit á
ómerkta myndavélabílnum í
vikunni sem leið. Milli kl. 8:00
og 9:00 á fimmtudagsmorgun
var lögregla við hraðamæling-
ar á Innnesvegi við Akranes-
höll, þar sem hámarkshraði er
30 km/klst. Umferð var mikil á
svæðinu, en alls voru 179 öku-
tæki hraðamæld þessa klukku-
stund og sex kærðir fyrir of
hraðan akstur. Á mánudag var
lögreglu tilkynnt að hraða-
takmarkanaskilti á Innnesvegi
hefði verið ekið niður. Ekki er
vitað hver á sök á því, að sögn
lögreglu. Ökumaður var í vik-
unni stöðvaður á 80 km/klst.
á Borgarfjarðarbraut í Borg-
arfirði, þar sem hámarkshraði
er 50 km/klst. Var honum gert
að greiða peningasekt að fjár-
hæð 50 þúsund krónur fyrir
brotið.
-kgk
Of hratt og
ótryggður
BORGARNES: Ökumaður
var stöðvaður á Borgarbraut
í Borgarnesi á sunnudag. Ók
hann á 72 km/klst., þar sem
hámarkshraði er 50 km/klst.
Reyndist hann enn frem-
ur vera á ótryggðum bíl. Var
hann sektaður um 30 þúsund
krónur fyrir of hraðan akstur,
auk þess sem hann á yfir höfði
sér sekt fyrir að vanrækja vá-
tryggingarskyldu ökutækisins.
-kgk
Út af Útnesvegi
SNÆFELLSB: Útafakstur
varð á Útnesvegi um hálf þrjú
leytið á sunnudag. Mikil ís-
ing var á veginum og flughált
þegar slysið varð. Ökumað-
ur kvaðst hafa farið mjög var-
lega en misst stjórn á bílnum
þegar sviptivindur skall á hon-
um. Tveir voru í bílnum og
kenndi farþegi sér eymsla eft-
ir slysið. Var hann fluttur með
sjúkrabíl á heilsugæslustöðina
í Ólafsvík til aðhlynningar hjá
lækni. Bíllinn er óökuhæfur
eftir slysið.
-kgk
Braut spegil
og rúður
HOLTAVÖRÐUH: Öku-
maður mætti vöruflutn-
ingabifreið með tengivagn
við Miklagil á Holtavörðu-
heiði á mánudag. Þegar bíl-
arnir mættust lenti eitthvað á
vagninum á bifreið mannsins,
braut af honum hliðarspegil
og braut auk þess tvær hliðar-
rúður. Ökumaðurinn og dótt-
ir hans, sem sat í aftursætinu,
fengu bæði yfir sig glerbrot
og hlutu minniháttar skurði í
andliti. Talið er að kapall eða
strekkjari af vagni hafi hang-
ið út af og valdið óhappinu.
Ökumaður vörubifreiðarinnar
virðist ekki hafa orðið óhapps-
ins var og hélt för sinni áfram.
Ökumaður fólksbifreiðarinn-
ar sá ekki skráningarnúmer
vörubifreiðarinnar eða hverr-
ar tegundar hún var.
-kgk
Aftakaveður gekk yfir landið á
þriðjudag og miðvikudag í síð-
ustu viku. Víða um land varð mik-
ið eignatjón og björgunarsveitir
sinntu meira en sex hundruð út-
köllum um landið allt á þriðjudags-
kvöld og aðfararnótt miðvikudags.
Veðrið byrjaði að versna um
vestanvert landið síðdegis á þriðju-
dag og fór versnandi með kvöld-
inu. Skólahald raskaðist víða vegna
veðurs, verslunum var lokað fyrr
sem og allmörgum vinnustöðum
og voru viðbragðsaðilar í starthol-
unum áður en veðrið skall á.
Færð á vegum spilltist mjög víða.
Lokað var um Kjalarnes, Hafnar-
fjall, Bröttubrekku, Fróðárheiði
og Holtavörðuheiði og ófært var
frá Borgarnesi í Norðurárdal og á
sunnanverðu Snæfellsnesi, svo fá-
ein dæmi séu nefnd.
Veðrið tók síðan að ganga nið-
ur aðfararnótt miðvikudags og á
miðvikudagsmorgun. Leiðirnar
um Kjalarnes og Hafnarfjall voru
opnaðar að nýju sem og leiðin um
norðanverðan Borgarfjörð. Bratta-
brekka og Holtavörðuheiði voru
þó lokaðar lengur og Fróðárheiði
var sömuleiðis lengur ófær.
Smávægilegt tjón
Að sögn Ásmundar Kr. Ásmunds-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
hjá Lögreglunni á Vesturlandi,
virðist óveðrið ekki hafa haft mik-
il áhrif í landshlutanum. „Við virð-
umst hafa sloppið einna best hér í
þessum landshluta,“ segir Ásmund-
ur Kr. Ásmundsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í samtali við Skessu-
horn. „Merkilegast fannst mér eft-
ir nóttina að einhver náði að keyra
of hratt og láta hraðamyndavél á
þjóðveginum taka af sér mynd, í
vitlausu veðri,“ segir hann.
Ásmundur segir lögreglu hafa
fengið tilkynningu um lausar þak-
plötur og flasningar á húsi á Akra-
nesi á miðvikudagsmorgun. Þá hafi
fokið upp hurð í húsnæði Öldunn-
ar og Rafta í Borgarnesi. Fyrst var
talið að um innbrot væri að ræða,
en þegar lögregla athugaði mál-
ið kom í ljós að hurðin hafði fok-
ið upp. Þakplötur tóku að fjúka á
húsi við Hafnarbraut á Akranesi.
Haft var samband við björgunar-
sveit sem kom og negldi plöturn-
ar niður. Þá var tilkynnt um stórar
lausar þakplötur í Álfalundi á Akra-
nesi sem fólk hafði áhyggjur af að
fykju á næstu hús. Verktaki kom á
staðinn og fergdi plöturnar. Einn-
ig barst lögreglu tilkynning um að
slárnar sem notaðar eru til að loka
Bröttubrekku væru farnar af vegin-
um. Ekki er vitað hvers vegna, en
líklegast er talið að þær hafi ein-
faldlega fokið, að sögn lögreglu.
Rafmangslaust í Dölum
og Reykhólahreppi
Þó ekki hafi orðið mikið eigna-
tjón hlutust þó nokkur óþægindi af
óveðrinu sums staðar í landshlut-
anum. Rafmagnslaust var í Döl-
um frá þriðjudagskvöldi vegna bil-
unar í byggðalínu og fram á mið-
vikudagskvöld, þegar varaleið um
Skógarströnd var tengd. Einnig
varð rafmagnslaust í öllum Reyk-
hólahreppi um tíma á þriðjudag.
Rafmagn komst fljótlega aftur á
Reykhóla og Reykhólasveitina í
gegnum vararafstöð á Reykhólum.
Lengur var rafmagnslaust í Geira-
dal og Gilsfirði og eins í Gufudals-
sveit, eða frá á þriðjudegi og fram á
fimmtudagsmorgun að sögn Guð-
mundar Ólafssonar á Grund, að-
stoðarflokksstjóra hjá Orkubúi
Vestfjarða.
Þá hafði óveðrið einnig áhrif á
heitavatnsneysluna í Borgarnesi og
Akranesi. Bilun kom upp í Deild-
artunguæð á þriðjudagskvöld og
lág birgðastaða var í heitavatns-
tönkunum á Akranesi og Grjóteyri
í Borgarnesi. Þurfti að lækka þrýst-
inginn á dreifikerfinu vegna þessa.
Rafmagnstruflanir hjá Landsneti
gerðu það síðan að verkum að ekki
var hægt að dæla í tankana af full-
um krafti á miðvikudag. Sundlaug-
um í Borgarnesi og Akranesi var
lokað og íbúar beðnir að fara spar-
lega með heita vatnið á fimmtu-
daginn.
kgk
Vestlendingar sluppu einna
best frá óveðrinu
Lítið tjón en einhver óþægindi af völdum veðursins