Skessuhorn - 18.12.2019, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 25
Gleðileg jól
Óskum Akurnesingum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Anton Sveinn McKee, sundmaður
ársins á Íslandi og einn af fremstu
bringusundsmönnum heims, heim-
sótti tvo elstu sundhópa Sund-
félags Akraness á mánudaginn. Ant-
on Sveinn ræddi við sundmennina
um markmiðasetningu og mikilvægi
svefns og hugarþjálfunar auk þess
sem hann fór yfir tækniatriði eins og
stungur, snúninga og hvernig megi
synda hraðar í bringusundi. Anton
Sveinn endaði heimsóknina á bringu-
sundsæfingu þar sem hann gaf sund-
mönnunum góð ráð. arg/ Ljósm. SA
Síðastliðinn sunnudag voru haldnir
jólatónleikar í Tónbergi, sal Tón-
listarskólans á Akranesi. Þar stigu
þau Rakel Páls, Íris Hólm og Birgir
Steinn á svið og sungu öll sín uppá-
halds jólalög fyrir nánast fullu húsi.
Tónlistarflutningur var í höndum
Birgis Þórissonar og Péturs Val-
garðs Péturssonar.
arg
Jólatónleikar
í Tónbergi
Rakel Páls, Íris Hólm og Birgir Steinn sungu við tónlistarflutning Birgis Þórissonar
og Péturs Valgarðs Péturssonar. jósm. Hafliði Breiðfjörð
Anton gaf sundmönnum SA góð ráð á
bringusundsæfingu.
Góð heimsókn til Sundfélags Akraness
Anton Sveinn McKee, sundmaður ársins á Íslandi og einn af fremstu bringusund-
smönnum heims, í heimsókn hjá SA.