Skessuhorn - 18.12.2019, Page 32
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201932
Eigendur GRun verðlaunaðir
Frá því útgáfa Skessuhorns hófst fyrir um 22 árum hefur blað-
ið gengist fyrir vali á Vestlendingi ársins í upphafi árs. Vest-
lendingar ársins 2018 voru eigendur fjölskyldufyrirtækisins
Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. Fyrirtækið stóð
fyrir uppbyggingu á fullkomnustu fiskvinnslu landsins í sínum
heimabæ og var húsið tekið í notkun á árinu. Í þessu verkefni
lagði fjölskyldan allt í sölurnar til að tryggja að öflugur sjávar-
útvegur yrði áfram í Grundarfirði. Eigendur G.Run eru börn
Guðmundar Runólfssonar og Ingibjargar S. Kristjánsdótt-
ur; systkinin Runólfur, Kristján, Páll, Ingi Þór, Guðmundur
Smári, María og Unnsteinn, auk allra maka þeirra og Mósesar
Geirmundssonar frænda þeirra. Það var Kristján Gauti Karls-
son blaðamaður á Skessuhorni sem afhenti G.Run fjölskyld-
unni vasa og blóm af þessu tilefni.
Stúlka var fyrsta barn ársins
Fyrsta barn ársins 2019 er stúlka sem kom í heiminn á Akra-
nesi laust eftir kl. 6:00 á nýársmorgun. Stúlkan vó 3.654
grömm og var 51 sentímetri að lengd. Foreldrar hennar eru
Sigríður Hjördís Indriðadóttir frá Kjaransstöðum í Hval-
fjarðarsveit og Hannes Björn Guðlaugsson, en þau eru búsett
í Reykjavík. Stúlkan var ekki aðeins fyrsta barn ársins hér á
landi heldur einnig fyrsta barn foreldra sinna. Þau Sigríður og
Hannes segja að litla stúlkan hafi látið bíða eftir sér, en fæðing
hennar hafði verið áætluð á Þorláksmessu.
Vetraráfangastaður Evrópu
Í upphafi ársins hlotnaðist ferðaþjónustu á Vesturlandi drjúg-
mikil viðurkenning þegar landshlutinn var annað árið í röð
verðlaunaður af tímaritinu Luxury Travel Guide sem vetrará-
fangastaður Evrópu. Árið áður var landshlutinn valinn mynd-
rænasti áfangastaður Evrópu. Tímaritið sérhæfir sig í skrifum
um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira en blaðið
leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. Vesturland var
valið vegna mikillar náttúrufegurðar og þá sérstaklega fyrir að
vera heillandi yfir vetrarmánuðina.
Ómannað mannvirki
Um síðustu áramót hætti Vegagerðin að halda úti mannaðri
vakt í fyrrum gjaldskýli við norðurenda Hvalfjarðarganganna.
Eftir að ríkið eignaðist göngin haustið 2018 og yfirtók rekst-
ur þeirra, var ákveðið að manna skýlið fyrst um sinn, án þess
að viðkomandi starfsmenn innheimtu gjald. Var það gert af
öryggissjónarmiðum. Öryggisvöktun með göngunum hefur
nú alfarið færst á hendur Vegagerðarinnar sem sinnir henni
með vöktun öryggismyndavéla frá vaktstöð í Borgartúni 7 í
Reykjavík, eða frá Ísafirði. Öryggisvöktun felst meðal annars í
að hægt er að loka fyrir umferð ofan í göngin ef eitthvað bját-
ar þar á, kalla til viðbragðsaðila eða loka fyrir almenna um-
ferð þegar forgangsakstur þarf að fara í gegn. Í febrúar varð
óhapp í göngunum sem kveikti umræðu um að dregið hafði
úr öryggi í göngunum. Bíll bilaði á „dauðu“ svæði eftirlits-
myndavéla og ökumaður hans slasaðist þegar ekið var á hann
og bílinn. Vegagerðin lofaði að bæta eftirlit í göngunum eft-
ir ítarlega umfjöllun Skessuhorns um málið, þar sem meðal
annarra slökkviliðsstjórinn á Akranesi gagnrýndi fyrirkomu-
lagið harðlega.
Rektorar koma og fara
Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir var í upphafi árs skip-
uð rektor Landbúnaðarháskóla Íslands til fimm ára. Tók hún
við af Sæmundi Sveinssyni sem gegnt hafa stöðunni frá 2017.
Ragnheiður er verkfræðingur að mennt og var áður fram-
kvæmdastjóri verkfræðistofunnar Svinna-verkfræði sem sinnt
hefur ráðgjöf á sviðum umhverfismála, nýsköpunar og rann-
sókna. Á meðfylgjandi mynd er hún ásamt Lilju D. Alfreðs-
dóttur menntamálaráðherra. Þá er framundan að ráða í starf
rektors Háskólans á Bifröst, en Vilhjálmur Egilsson lýkur
skipunartíma sínum næsta vor. Hann hefur gegnt starfinu frá
2013.
Rótgrónum verslunum fækkaði
Eftir fimmtíu ára samfelldan verslunarrekstur ákváðu eigend-
ur verslunarinnar Blómsturvalla á Hellissandi að hætta rekstri.
Afmæli verslunarinnar var fagnað í september árinu áður en
þá voru 50 ár liðin síðan hjónin Íris Tryggvadóttir og Ótt-
ar Sveinbjörnsson opnuðu verslunina, fyrst í bílskúrnum við
heimili sitt. En það var hætt með rekstur fleiri verslana, með-
al annars Bensó í Stykkishólmi sem jafnframt var eina bensín-
sala Olís, veitingastaður og eina sjoppan. Hólmarar þurftu því
um tíma að aka í önnur bæjarfélög eftir tóbaki, ís í brauðformi
og öðru slikki. Í húsnæðinu hóf Skúrinn svo rekstur í haust og
Hólmarar tóku gleði sína að nýju.
Loftslagshlýnun alltumlykjandi
Umræðan um hlýnun jarðar, mengun og slæm áhrif lifnaðar-
hátta okkar jarðarbúa á heilbrigði jarðarinnar er líklega það
einstaka mál sem heimspressan hefur fjallað mest um árið
2019. Í heimsfréttirnar komst í haust þegar formlega var lýst
yfir andláti jökulsins Oks í ofanverðum Borgarfirði. Komið
var upp minningarskildi á Oköxlinni og jökulhettan sögð sú
fyrsta á Íslandi sem orðið hefur loftslagsbreytingum að bráð.
Jökullinn er orðin það lítill að vísindamenn töldu hann ekki
lengur hafa þá eiginleika sem einkenna jökla sem t.d. er að
skríða fram undan eigin þunga og mynda sprungur með til-
heyrandi vatnsgangi í leysingum. Að vísu var einn galli á gjöf
Njarðar, heimamenn hafa aldrei litið á Ok sem jökul og fuss-
uðu því og sveiuðu yfir tilstandinu. Reyndar eru alvöru jöklar
í hættu eins og mælingar sýna. Þannig spá vísindamenn á Veð-
urstofunni því að Snæfellsjökull verði ekki til sem jökull um
miðja öldina, ef hlýnun jarðar heldur áfram með sama hætti
og undanfarin ár.
Framhald á næstu opnu
Það sætti tíðindum
Fréttaannáll ársins 2019 í máli og myndum
Árið 2019 var síst eftirbátur annarra ára þegar kemur
að fréttum af Vesturlandi, nema síður væri. Í spegli tím-
ans hefur hvert ár sín einkenni. Kannski verður ársins
2019 einkum minnst fyrir að vera sólríkt á Vesturlandi.
Flestir glöddust yfir því en áhrif þurrka voru allavegana.
Meðal annars viðbúnaðarástand vegna hættu á gróð-
ureldum, vatnsból þornuðu upp, laxar gengu ekki í
árnar og dró úr sprettu. Það var því mikið af sólríkum
myndum sem við tókum í sumar. Í það minnsta hefur
okkur blaðamönnum á Skessuhorni sjaldan fallið verk
úr hendi. Allir höfðu nóg að gera og sjaldnast reyndar
sem verkefnalistinn var tæmdur þegar vikan var gerð
upp. Meðal þess sem stendur upp úr má nefna að
hátæknifiskvinnsluhús var opnað í Grundarfirði, drög
voru lögð að kanadískri þangvinnslu í Stykkishólmi,
jarðböð voru opnuð í gili í Húsafelli, laugin Guðlaug í
flæðarmálinu á Langasandi sló í gegn og kom þannig
Akranesi á kortið þegar ferðmennska er annars vegar.
Sólríkt sumar hafði gríðarleg áhrif á fjölda ferðamanna
í landshlutanum. En við upplifðum einnig bakslög í at-
vinnugreinum, sigra og ósigra. Atvinnugreinar fara og
koma. Erfiðleikar hafa verið í fiskvinnslu á Akranesi þar
sem útgerð er nánast lögst af. Sauðfjárbændur þurfa
enn að sýna útsjónarsemi til að láta enda ná saman og
þá stendur til að loka upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Borgarnesi. Hjá Skagamönnum stóð upp úr mikil bygg-
ing íbúðarhúsnæðis og þá var Sementsstrompurinn
felldur í vor.
Í Skessuhorni reyndum við af mætti að segja frá fólkinu
sem byggir Vesturland, þessum harða kjarna sem kýs
að lifa hér og starfa og halda merkjum landshlutans á
lofti. Margt tókst okkur blaðamönnum á Skessuhorni að
þefa uppi á árinu. Gleðifréttir og gagnrýnar, léttar fréttir
sem þyngri. Við erum fjölmiðill sem hefur þá stefnu að
gefa sem raunsannasta mynd af mannlífinu hverju sinni.
Þá, eins og gefur að skilja, þarf stundum að fjalla um
það sem betur mætti fara, skapa umræðu, leita lausna,
ekki síður en varpa fram því jákvæða og gleðilega sem
sannarlega er oftar. Það sem gefur lífinu gildi.
Hér á eftir verður stiklað á stóru í atburðum ársins 2019
í máli og myndum. Kæru lesendur! Takk fyrir samfylgd-
ina á árinu sem er að líða, takk fyrir að lesa fréttir, takk
fyrir að lesa Skessuhorn.
Magnús Magnússon