Skessuhorn - 18.12.2019, Síða 76
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201976
Grundfirðingurinn Rúnar Geir-
mundsson og konan hans Eyrún
Telma Jónsdóttir voru búin að
reyna að eignast barn í fjögur ár án
árangus þegar þau ákváðu að fara í
glasafjóvgun. Meðferðin heppnað-
ist mjög vel og síðastliðið vor komu
í heiminn tveir heilbrigðir dreng-
ir, þeir Atlas og Eldar. „Við vorum
bæði alveg viss um að við vildum
verða foreldrar og byrjuðum því
kannski heldur snemma að reyna
eða þegar við vorum búin að vera
saman í um eitt ár,“ segir Rúnar.
„Ég hafði lúmskan grun um að ég
væri ófrjó því ég er með fjölblöðru-
eggjastokkaheilkenni og legslímuf-
lakk. Það er þekkt að konur sem
glíma við þetta eigi erfitt með að
verða ófrískar og þurfa gjarnan að-
stoð,“ útskýrir Eyrún. Eftir að hafa
reynt í eitt ár leituðu þau aðstoðar
hjá lækni og hófst þá langt og erfitt
ferli. Eyrún þurfti að gangast undir
allskonar skoðanir sem allar komu
vel út og því ekkert sem gat útskýrt
af hverju hún varð ekki ófrísk.
Barneignir í forgang
Ferlið tók mikið á Eyrúnu sem
meðal annars prófaði að taka inn
hórmónalyf sem gerðu ástand-
ið enn verra. Hún fékk þá stórar
blöðrur á eggjastokkana sem ollu
miklum kvölum og endaði Eyrún
á bráðamóttökunni með morfín
í æð. „Þetta tók mikið á okkur og
svo hjálpaði ekki að á sama tíma var
fólk alltaf að spyrja okkur hvort við
ætluðum ekki að fara að koma með
eitt kríli. Ég veit að það var ekkert
illt á bakvið þessar spurningar en
það er erfitt að fá þær þegar maður
er í þessari stöðu. Þetta var sérstak-
lega erfitt fyrir Eyrúnu,“ segir Rún-
ar. „Ég kenndi mér mikið um og
fannst ég vera gölluð,“ segir Eyrún
og bætir því við að hún hafi upp-
lifað líkama sinn sem tímasprengju.
„Almennt minnkar frjósemi kvenna
alltaf með aldrinum en þegar mað-
ur bætir við öllum þeim vanda-
málum sem ég glími við þá verð-
ur maður mjög meðvitaður um að
með hverju árinu sem líður minnka
líkurnar á að þetta takist. Barneign-
ir voru því í algjörum forgangi hjá
okkur,“ segir Eyrún.
Óhefðbundið brúðkaup
Rúnar og Eyrún ákváðu að fá að-
stoð hjá Livio hér á Íslandi og fóru
í fyrsta viðtalið í maí 2018. Þá var
tekin ákvörðun um að fara beint í
glasafrjóvgun. „Biðin er um þrír
til fjórir mánuðir og inn í það kom
sumarfrí hjá þeim svo meðferðin
dróst fram á haustið,“ segir Eyrún
og bætir því við að þau hafi á þess-
um tíma verið að undirbúa brúð-
kaup í ágúst. „Brúðkaupið okkar
var frekar óhefðbundið þar sem við
erum ekki trúuð og vorum því ekki
með neinar hefðir. Við fórum bara
til sýslumannsins í Stykkishólmi
og skrifuðum undir pappírana og
héldum svo partý fyrir fjölskyldu
og vini. Við sendum ekki einu sinni
boðskort heldur gerðum bara við-
burð á Facebook þar sem við buð-
um fólki,“ segir Rúnar og hlær.
Þau ákváðu líka að gera ekki gjafa-
lista heldur báðu fólk um að ann-
að hvort sleppa alveg gjöfum eða
gefa pening til að borga glasameð-
ferðina. „Þetta ferli kostar yfir sex-
hundruð þúsund krónur svo okk-
ur fannst upplagt að biðja frekar
um pening en hluti sem við þurft-
um ekki. Það tóku allir vel í þetta
og borguðu brúðkaupsgestirnir
því bæði glasameðferðina og brúð-
kaupsferðina okkar til Balí,“ segir
Rúnar og brosir. „En þegar þetta
fréttist lengra fengum við að heyra
að við værum dónar og frekjur fyr-
ir að biðja um pening í brúðkaups-
gjöf. Það hefur þó aldrei neinn kall-
að fólk frekjur eða dóna fyrir að búa
til gjafalista og biðja um allskonar
hluti,“ bætir Rúnar við.
Lentu í mannskæðum
jarðskjálfta
Eftir brúðkaupið héldu þau í
draumaferðina til Balí þar sem þau
ætluðu að núllstilla sig fyrir gla-
sameðferðina. Ferðalagið gekk þó
ekki alveg áfallalaust fyrir sig og
eftir aðeins fjóra daga á Balí reið
yfir jarðskjálfti á Lombok eyju
skammt frá þeim stað sem Rún-
ar og Eyrún voru á. Skjálftinn var
7,2 á Richterskvarða og lést fjöldi
fólks á svæðinu. „Þetta var í fyrsta
skipti á ævinni sem ég hugsaði að
ég gæti í alvöru bara drepist,“ seg-
ir Rúnar og Eyrún tekur undir það.
„Eins og sannur Íslendingur fór
maður beint í að finna upplýsingar
um hvað væri best að gera í þessum
aðstæðum en eftir smá stund áttaði
maður sig á því að maður er í raun-
inni bara lítið peð sem getur ekk-
ert gert og stjórnar engu í svona
aðstæðum,“ segir Rúnar. „Þetta var
það undarlegasta sem ég hef upp-
lifað. Þetta var ekki svona venjuleg-
ur jarðskjálfti eins og maður finn-
ur hér á Íslandi, þetta var svo mik-
ið meira,“ segir Eyrún og bætir því
við að hún sé enn að jafna sig eft-
ir skjálftann, rúmlega ári síðar. „Ég
á það ennþá til að missa allt í einu
jafnvægið. Þetta er ótrúlega skrýt-
ið,“ segir hún og Rúnar tekur und-
Fengu glasagrjóvgun í brúðkaupsgjöf
og eignuðust tvíbura
Rætt við Rúnar Geirmundsson og Eyrúnu Telmu Jónsdóttur
Eyrún og Rúnar giftu sig í ágúst 2018.
Eftir að hafa reynt lengi varð Eyrún loks ófrísk eftir glasameðferð og eignuðust
þau hjónin tvo stráka síðasta vor.
Rúnar og Eyrún fóru í brúðkaupsferð til Balí haustið 2018.
Rúnar hefur mikið keppt í kraftlyftingum og varð m.a. heimsmeistari árið 2017.