Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Blaðsíða 91
S!)
L i ð h 1 a u p :
Sublux. columnae..................................... 2
Lux. claviculae acromialis ............................ 2
— humeri .......................................... 19
— cubiti............................................ 3
— capituli radii ................................... 5
—• digiti manus ..................................... 7
— menisci ......................................... 2
— patellae ......................................... 1
— talocruralis ..................................... 2
Samtals 368
VI. Geðveikir, fávitar, daufdumbir, málhaltir,
heyrnarlausir, blindir og' deyfdyfjaneytendur.
Töflur XV—XVI.
Skýrslur hafa nú borizt úr öllum héruðum nema Hafnarfj., en í
Rvík laka þær þó aðeins til blindra. Skýrslur þessar munu ætið vera
mjög' ófullkomnar og margt vantalið þessa annmarkafólks. Þannig
hefir koinið í ijós við samanburð Hagstofunnar á þessum skýrslum
1940 og aðalmanntalinu hið sama ár, að manntalið greinir 76 dauf-
dumba og 161 blindan, sem béraðslæknar geta ekki um, en daufdumba
greina héraðslæknar alls 45 (Rvík og Hafnarfj. ekki meðtalin) og
blinda 337 (Hafnarfj. ekki meðtalið). Hins vegar greina héraðslæknar
13 daufdumba og 95 blinda, sem ekki getur í manntalinu. Ber hcr
undarlega mikið á milli, og er ekki því til að dreifa, að fvrirsögn
manntalsins um það, bvað telja skuli daufdumba eða blinda, víki svo
frá reglum þeim, sem héraðslæknum er gert að telja eftir, að það geti
gert muninn. í töfluin XV og XVI er umframtölum manntalsins bætt
við tölur héraðslæknanna um daufdumba og blinda, og teljast þá dauf-
dumbir í landinu 121 alls, eða nokkurn veginn nákvæmlega \%0 þjóð-
arinnar, en blindir 498 eða 4,1(4, og er það geysihá hlutfallstala. Ann-
ars hefir ölluin héraðslæknum verið send nákvæm greinargerð uin,
hverju skakkar um skýrslugerð þeirra og manntalsins að þessu levti,
með tilmælum um, að þeir hafi hliðsjón af því við þessa skýrslugerð
sína eftirleiðis. Með þessu er ekki sagt, að meiri ástæða sc til að tor-
tryggja tölur læknanna en manntalsins, sem iðulega munu vera mjög
hæpnar. Hafa foreldrar tilhneigingu til að telja fávita sína fremur
til daufdumbra barna, og sjóndöpru fólki mun yfirleitt hætta til að
gera heldur ineira en minna úr sjónlevsi sínu. Er ekki við að búasl,
að rnenn þeir, er manntalið skrá, rati hér réttar leiðir.
Læknar láta þessa getið:
U m geðveika.
ísafj. Á geðveikrahæli ísafjarðar síðastliðið ár 5 sjúklingar.
Re.ijkjarf). 2 geðveikir eru hér frá fyrri tíð, og hefir reynzt ómögu-
legt að koma þeim á sjúkrahús. 1 piltur varð geðveikur á árinu og er
12