Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Blaðsíða 97
9Ó
hundrað manns, en læknir þess var í Borgarnesi og kom ekki nema
með höppum og glöppum. Tók ég því að mér að veita því mest af
þeirri læknishjálp, er það þurfti þá 3—4 síðustu mánuði ársins, er
það var hér. Ymsir af þessum herinönnum, eða 9 alls, voru einhvern
tíma á sjúkrahúsinu, aðallega til smáviðgerða, og auk þess var lagður
á land sjómaður af norsku skipi, svo að alls lágu 10 útlendingar á
spítalanum. Utanhéraðsmenn voru þar 7, en af innanhéraðsfólki var
aðsókn að honum með ininna móti, eða um 3% héraðsbúa, en tæp-
lega 1 legudagur koin á hvern héraðsbúa að meðaltali. Berklasjúkl-
ingum hefir mjög fækkað hin síðari ár og afkoma sjúkrahússins
því orðið lakari, enda lögðu þeir áður til flesta legudaga. Nú hefir
þetta unnizt nokkuð upp á útlendingum og utanhéraðssjúklingum,
sem voru til samans yfir 20% sjúkrahússlimanna. Utanhéraðsmenn
koma aðallega af skipum, enda eru sjúkrahús á báðar hendur i ná-
grannahéruðunum. Af sjúklingum spítalans fengu 60% handlæknis-
meðferð. Sjúkrahúsið er rekið á sama hátt og áður. Allmiklar um-
bætur hafa verið gerðar á því undanfarin ár, og kemur það sér nú
vel, er allt hækkar í verði. Ljóslækninga nutu 5 sjúklingar, sein ekki
voru á sjúkrahúsinu.
Saudárkróks. Engar breytingar gerðar á sjúkrahúsinu eða rekstri
þess. 18 sjúklingar röntgenmyndaðir og 30 gegnlýstir auk þeirra, er
herklayfirl'æknir skoðaði. Ljóslækninga á sjiíkrahúsinu nutu á árinu
55 sjúklingar.
Ólafsfj. Sjúkraskýlið með sama fyrirkomulagi og áður, en alltaf
einhver halli á rekstrinum. A árinu nutu 19 manns ljósbaða, og var
rafveitan i bezta lagi. Flestir voru börn með eitlabólgur, lystarleysi
og vanþrif, einnig sjúklingar með brjósthimnubólgu. Læknisbústað-
urinn er með mjög hallalitlu þaki og hefir lekið l'rá upphafi. Fyrir
tæpum 2 árum var bárujárn rifið af þakinu og hella steypt í stað-
inn, en þá kastaði fj-rsl tólfunum með lekann. Síðastliðið sumar
var þakhellan bikuð, og þótti nú trygg't, cn allt fór á sömu leið.
Svarfdæla. Fyrirhugaðir sjúkrastofur eru ekki enn komnar í lag,
en hægt að skjóta skjólshúsi yfir sjúklinga, ef á liggur.
Akureijrar. A þessu ári var tekin í notkun hin nýja bygging Sjúkra-
húss Akureyrar, sem gerð er fyrir skurðstofur, berklavarnastöð,
ljósastofur, röntgendeild, skrifst’ofu yfirlæknis, röntgenmyndageymslu
o. l'l. Þessi bygging er hin myndarlegasta og innrétting hennar og iit-
lninaður með nýtízkusniði.
Reykdæla. Aðstaða lil lækninga er hér slæm, ekkert sjúkraskýli
m. a., og ekki einu sinni unnt að skjóta skjólshúsi yfir sjúkling, þó
að mikið liggi við. Má það varla vanzalaust kallast í svo dreifbyggðu
og afskekktu héraði.
Instilfj. Sjúkraskýlið var ekki í rekstri þetta ár, nema einhver ósk-
aði el'tir vist. Var engin föst hjúkrunarkona, heldur varð að kaupa
slúlkur fyrir tímakaup til að hjúkra þeim fáu sjúklingum, er á árinu
lágu hér.
Seijðisfj. Aðeins 10 sjúklingar röntgenmyndaðir, þar eð algerð
vöntun var á röntgenfilmum síðara hluta ársins. 45 sjúklingar voru
gegnlýstir (l'yrir utan gegnlýsingár berklavarnarstöðvarinnar). Um