Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 18
16
III. Sóttarfar og sjúkdómar.
Flestir héraðslæknar telja heilsufar á árinu hafa verið miður en í
meðallagi gott. Inflúenza geklí yfir landið, og kvefsótiar gætti með
meira móti. Óvenjulegur faraldur var að rauðum hundum. Skarlats-
sóttar gætti og aftur rneira en 2 ár undanfarin og gulusóttar meira
en 7 síðastliðin ár. Enn virðist árið hafa verið óvenjulegt lungna-
hólguár. Faraldrar að kikhósta og hettusótt hófust fyrra hluta vetrar.
Og loks er í fyrsta sinni verulegur faraldur að hinni nýju sótt hér
á landi, heilasótt, sem kalla má, að numið hafi hér land á síðastliðnu
ári. Almennur manndauði ársins var meiri en verið hefur siðan 1935.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Heilsufarið miðlungi gott á árinu og verra en næsta ár á
undan. Lakast fyrstu mánuðina vegna inflúenzu og kveffaraldursi
Álafoss. Heilsufar yfirleitt gott.
Borgarfj. Heilsufar með lakara móti.
Borgarnes. Um sóttarfar segir fyrrverandi héraðslæknir í bréfi til
mín: Engar þungar landfarsóttir.
Ólafsvíkur. Heilsufar gott. Aðrir sjúkdómar en kvef fremur fátíðir.
Bíldudals. Heilsufar í meðallagi.
Flateyrar. Lítið urn farsóttir á árinu, og má segja, að heiisufar hafí
verið mjög gott.
Hóls. Ekki mjög kvillasamt.
ísafj. Frekar gott heilsufar á árinu.
Miðfj. Heilsufar yfirleitt gott.
Blönduós. Sóttarfar talsvert.
Sauðárkróks. Mjög kvillasamt á árinu.
Hofsós. Heilsufar miður gott þetta ár.
Höfðahverfis. Heilsufar í lakara Iagi.
Reykdæla. Arið heldur kvillasamt.
Öxarfj. Heilsufar má teljast hafa verið gott á árinu í heild sinni.
Síðu. Heilsufar heldur í lakara lagi.
Mýrdals. Nokkuð kvillasamst á árinu.
Vestmannaeyja. Heilsufar yfirleitt gott.
Eyrarbakka. Fyrstu 2 mánuði árins sjúkfellt með meira móti.
Grimsnes. Heilsufar fremur gott, nema fyrstu mánuði árins.
Keflavikur. Framan af árinu venju frenuir kvillasamt.
A. Farsóttir.
Töflur II, III og IV, I—27.
1. Kverkabólga (angina tonsillaris).
Töflur II, III og IV, 1.
S júklingafjöldi 1932—1941:
1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941
4330 3909 4090 6036 4175 6713 6417 5528 5175 4781
1 l 1 1 .. 1
Sjúkl.
Dánir