Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 61
skyrbjúgseinkenni. Batnaði fljótt, eftir að henni hafði verið gefið C-
vítamín. Allmikið er hér um neuralgíur, hef nokkuð gefið Bl-vítamín
og fengið góðan árangur í sumum tilfellum, í öðrum engan.
Reijkdæla. 2 tilfelli af allslæmri rachitis, og hef ég grun um, að fleiri
börn muni hafa vott af beinkröm. Margar mæður eru ótrúlega tregar
til að gefa krökkunum lýsi, nema einhvern píning í svartasta skamm-
deginu, en hella í þess stað sumar rjóma í krakkana, í þeirri sælu trú,
að það geri sama gagn. Með C-vítamínosis hef ég fengið 3 sjúklinga.
Engin ábyggileg einkenni B-avitamínosis hef ég rekizt á, en undarlega
vel reynist að gefa B-vítamín við sumum hinna algengari kvilla, ])ó að
annað komi að engu haldi.
Öxarfj. Vert væri að skýra frá alls konar bölvun í fólki, sem eink-
um hefst síðara hluta vetrar. Ég álít ekki fæðuna eina í leiknum. Þeir,
sem eru rnikið úti og á ferli fá þetta —- ég segi alls eklci aldrei —- en
miklu síður. Hef alls ekki séð þetta byrja á suinri, en hér víða sami
matur vetur og sumar. Fjörefnaberserkir munu segja þetta allt stafa
af vítamínskorti. Ég held fræði þeirra merka, en enn á barnsskóm.
Og hvernig stendur á því, að útivist og birta bæði ver fólk fyrir þess-
um ófögnuði og læknar suma?
Fáskrúðsf. 2 sjúklingar með beri-beri, annar hefur haft sjúkdóm-
inn lengi, báðir sjómenn.
Vestmannaeyja. Reynt að fyrirbyggja veikina (rhachitis) með lýsi,
geisluðu og ógeisluðu. Engin veruleg brögð að veikinni, sé þess gætt
að gefa börnum, sem l'æðast síðsla árs, geislað lýsi, jafnframt því sem
þau eru höfð á brjósti. Hrogn og lifur má gefa börnum snemma, og
er því haldið að mæðrum, þegar það fæst, einkum framan af vetrar-
vertíð. Það svíkur ekki börnin fremur en þá fullorðnu, sem vit hafa
á að neyta þess.
Grimsnes. 1 tilfelli sá ég af skyrbjúg.
7. Diabetes.
Borgarjj. Á fyrsta ári mínu hér höfðu 2 af sjúklingum mínum syluir
í þvagi (annar með fingurmein, hinn með carbunculus). Hvorugur
þeirra hafði önnur diabeteseinkenni né hefur haft síðan, og enginn
hefur verið skráður með diabetes öll þessi ár.
Hesteyrar. Ekki rekizt á sykursýki í héraðinu enn ])á.
Akureyrar. 2 sjúklingar hafa hér sykursýki á nokkuð háu stigi og
• á sykursýkisfæði og insúlíngjafir.
Fáskrúðsf]. Diabetes mellitus hafa 2 konur í héraðinu. Notar önnur
þeirra insúlín að staðaldri, hin hefnr viðeigandi mataræði. Báðum
líður vel og eru fullstarfandi.
8. Ecthvma.
Patreksfj. Getið um 2 sjúklinga (börn ó—10 ára og 10—lö ára) á
niánaðarskrá í október.
9. Eczema.
Hesteyrar. Er nokkuð algengt.
10. Epilepsia Jacksonii.
Hesteyrar. Mér telst svo til, að 1 kona, 53 ára gömul ekkja, hafi
þennan sjúkdóm. Hún hefur og hypertensio arterialis.