Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Side 71
69
Sjúkdómar þeirra sjúklinga, sem Iágu á hinum almennu sjúkrahús-
um á árinu, flokkast þannig (tölur síðasta árs í svigum):
Farsóttir ...................... 3,9 % ( 2,9 %)
Kynsjúkdómar ................... 1,3 — (1,2 —)
Berklaveiki .................... 6,9 — ( 6,9 —)
Sullaveiki ..................... 0,2— ( 0,2—)
Krabbamein og illkynjuð æxli .... 3,5 — ( 3,6 —)
Fæðingar, fósturlát o. þ. h..... 13,7— (12,4—)
Slys ........................... 6,9— ( 6,5—)
Aðrir sjúkdómar ................ 63,6— (66,3—)
Að öðru leyli láta læknar þessa getið:
Ólafsvikur. Auk venjulegra læknisferða hef ég eins og undanfarið
farið eina ferð á mánuði á Sand til sjúkramóttöku.
Þingeijrar. Störf héraðslækna virðast vaxa með hverju ári, ekki
sízt ineðan allir hafa yfirfljótanlegt fé með höndum. Geri ég ráð fyrir,
að fleiri en ég hafi orðið þess varir, að fólk leiti meira læknis en áður
tíðkaðist.
Vestmannaeyja. Eyþór Gunnarsson, háls-, nef- og eyrnalæknir,
dvaldist hér um vikutíma.
Byrarbakka. Viðtalstíma hafði ég tvisvar í viku allt árið að Selfossi.
Nú hafa Hvergerðingar farið fram á, að ég taki upp jafnmarga fasta
viðtalstíma hjá þeim, en ég hef ekki treyst mér til þess að verða við
þeirri beiðni að svo komnu, enda veit ég, að Stokkseyringar myndu
þá telja sig afskipta og krefjast einnig fastra viðtalstíma hjá sér. ÖIl-
nni þeim viðtalstímum væri með öllu ógerlegt að sinna.
F. Augnlækningaferðir.
Samkvæmt lögum nr. 12 25. janúar 1934 ferðuðust 4 augnlæknar
11 ni landið á vegum heilbrigðisstjórnarinnar: Kristján Sveinssoti,
augnlæknir í Reykjavík, um Vestfirði, Helgi Skúlason, augnlæknir á
Akureyri, um Norðurland, Bergsveinn Ólafsson, augnlæknir í Reykja-
vík, um Austfirði, og Sveinn Pétursson, augnlæknir í Reykjavík, um
Suðurland.
Hér fara á eftir skýrslur þeirra um ferðirnar:
1. Kristján Sveinsson.
Augnlækningaferðalaginu um Borgarfjörð, Breiðafjörð og Vestfirði
var hagað svipað og undanfarin sumur, aðeins með þeirri breytingu,
uð komið var við á fleiri stöðum samkvæmt beiðni fólksins. T. d. var
einn dag tekið á móti sjúklingum í Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaða-
breppi, einn dag í Berufirði, koinið við í Flatey, og að lokum farið til
Hólmavíkur (þar sem Akureyiaraugnlæknirinn átti ekki hægt með
;ið fara þangað í þetta skipti). Tekið var þar á móti fólki í tvo daga.
Aðsókn var á flestum stöðum óvenjulega mikil, sem sennilega er i
sambandi við betri afkomu fólks óg þar af leiðandi betri ástæður til að
leita læknis. Tel ég hér upp sjúklingafjölda á hverjum stað og helztu
sjúkdóma: