Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 85
83
bjargað með björgunartækjum slysavarnafélagsins (línubyssu). Fract.
costarum 4, tibiae 1, fibulae 1. Lux. antibrachii 1. Ruptura aponeurosis
palmaris 1, corpus alienum oesophagi (lárviðarblað), vulnera incisa
12, puncta 3, distorsiones 2, morsus canis 1, corpora aliena conjunc-
tivae 3, corneae 7, vulnera contusa et dilacerata 28 (þar af eitt:
Maður varð með fingur á milli tveggja báta, og klipptist framan af
3. og 4. fingri annarrar hendar). Önglar í holdi 7. Combustiones I &
II 12.
Svarfdæla. 6 ára piltbarn fcll á höfuðið niður í framræsluskurð,
sem börn höfðu stíflað sér að leik; mun ekki hafa getað rétt sig við,
þar eð skurðurinn var mjókkandi niður og leðja í botni, og var ör-
endur, er að var komið. Fract. cruris I: karlmaður, 21 árs, varð undir
bátasjiili, antibrachii 1: karlmaður, 46 ára, lenti í fallhamarsvindu, er
stoppari bilaði, fibulae 1: karlmaður 19 ára, hrasaði á hálku, Collesi
1: kona á 70. ári, datt niður stiga, ulnae 1: karlmaður 56 ára, var að
taka sundur bílhjól, er felguhringur hrökk á liöndina, articulationis
cubiti 1: stúlkubarn, 2 ára, datt úti við að leik, costae 1: sextug
kona, hrasaði á fjósbyrgslu, digiti complicata 2: fertugur karlmaður
við járnsmíðar varð inilli hamars og steðja, annar i vél, ossis meta-
carpi V complicata 1: ungur maður sagaði í sundur miðhandarbein
í hendi sér í vélsög ásaint 4 beygisinum og réttisin, enda er höndin
hálfónýt eða meira, þótt sinar næðust saman með saumum. Infractio
costae 2, antibrachii 1, ossis sterni 1. Combustio II 4, III 1. Stúlkubarn
2 ára hellti sjóðheitri mjólk niður með hálsmáli um brjóst, háls og
handleggi á sér og brenndist allmikið. Vulnera contusa 16, incisa 7,
puncta 2. Tvítugur maður skarst á hendi við hvalskurð með þeim
bætti, að er hann ætlaði að leggja dýrið með hnífi, geigaði lagið, kom
í bein, en kreppt höndin rann fram blaðið, sem skarst djúpt inn í 4
fingurna um miðkjúkur. Munu þar allar sinarnar hafa skorizt sund-
ur, en ekki verið aðgætt, þegar sauinuð voru saman sárin, því að eftir
að gróið var, gat hann ekki kreppt hnefann til fulls og getur ekki enn,
mörgum mánuðum síðar. Distorsiones 11, læsio menisci 1, contusiones
1. Aðskotahlutir 10.
Akureyrar, Fract. jielvis el columnae 1, femoris 1, colli femoris 3,
cruris 6, humeri 8, huineri complicata 1, antibrachii 12, antibrachii
complicata 1, costae 4, metatarsi 1, claviculae 1. Vulnera dilacerata
digitorum 1, vulnera digti cum amputatione dígiti 2. í ölluin þessum 3
síðustu tilfellum orsökuðust sárin af því, að viðkomandi lénti með
fingurna í vélum. Auk þeirra slysa, sem þegar eru nefnd, má nefna
smærri brunasár og önnur smáslys. 24 ára piltur drekkti sér í Akur-
eyrarpolli, náðist úr sjónum eftir röskan hálftíma, en varð ekki lífg-
aður, þrátt fyrir langvarandi lífgunartilraunir.
Höfðahverfis. Slysfarir heldur fáar á árinu, og allar frekar smávægi-
legar. Commotio cerehri 1: maður, er stóð uppi í vagni, er hestur fæld-
ist fyrir, datt oi'an úr honum og' kom niður á öxlina og höfuðið. 4
brunar komu fyrir, 3 minni háttar. Sá 4. var 3 ára drengur, er brennd-
ist töluvert á læri. Var hann einn í eldhúsi, en á gólfinu stóð pottur
með heitri mjólk. 10 ára stúlkukrakki var að flytja hest stutta bæj-
arleið. Hesturinn fældist, og hún hentist af baki, snerist illa um öxl
*