Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 91
89
Sauðárlcróks. 1 kona geðveik á árinu. Er hún á sjúkrahúsi. Önnur
býr ein sér og hirðir um sig sjáli'. Mun þar að líkindum bresta á við-
unandi aðbúð. Fávitar hafa viðunandi aðbúð, en þyrftu vegna að-
standenda að komast á hæli.
Ólafsfi. 2 geðveikar konur standa í barneignumi
Akureýrar. Megnustu vandræði eru að koma frá sér nolckrum geð-
veikissjiíkling, þar eð aldrei virðist hægt að fá rúm fyrir slíka sjúkl-
inga á Kleppi, en gæzla þeirra í heimahúsum mjög erfið og kostnaðar-
söm og á engan hátt fullnægjandi, sízt af öllu eins og nú er komið
málum, þar eð ókleift er að fá nokkra hjálp til þeirra hluta eða
annarra.
U m f á v i t a.
Grímsnes. Fávitar eru 15 alls í héraðinu í árslok, þar af einn utan
fávitahælisins á Sólheimum í Grímsnesi. Á hælinu eru að mestu sömu
fávitarnir og undanfarin ár. Auk þessara 15 er stúlka sú, er ég hef
nefnt í kafla IV hér að framan. Hún er imbecil, en getur unnið grófa
vinnu. Var búin að eignast 2 börn, og því gerð á henni vönun.
Um deyfilyfjaneytendur:
Reykdæla. Deyfilyfjaneytandi er 1 kona í Mývatnssveit. Hefur hún
vegna sjúkdóms, encephalitis chronica og parkinsonismus, orðið að
nota morfín, guttae rosae, um alllarigt skeið.
VII. Ýmis heilbrigðismál.
1. Heilbrigðislöggjöf 1941.
A árinu voru sett þessi lög, sem lil heilbrigðislöggjafar geta talizt:
1. Lög nr. 26 27. júní, um breyting á lögum nr. 65 19. júní 1933
um varnir gegn því, að næmir sjúkdómar berist til Islands.
2. Lög nr. 28 27. júní, um breyting á lögum nr. 66 19. júní 1933,
um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma.
3. Lög nr. 29 27. júní, um heimild fyrir ríkisstjórnina til að taka á
leigu húsnæði í sveitum og kauptúnum o. fl.
4. Lög nr. 44 27. júní, um tannlæknakennslu við læknadeild Há-
skólans.
5. Lög nr. 49 27. júní, uin læk'nisvitjanasjóði.
6. Lög nr. 52 27. júní um ráðstafanir til loftvarna og annarra
varna gegn hættum af hernaðaraðgerðum.
7. Lög nr. 56 27. júní, um viðauka við og breytingar á lögum nr.
74 31. desember 1937, um alþýðutryggingar.
8. Lög nr. 76 9. júlí, um breyting á lögum nr. 66 7. maí 1940 um
stríðsslysatryggingu sjómanna.
9. Lög nr. 81 9. júlí, um breyting á lögum nr. 3 9. janúar 1935, um
verkamannabústaði, og lögum nr. 58 8. sept. 1931 um einkasölu
ríkisins á tóbaki.
10. Lög nr. 84 9. júlí, um breyting á lögum nr. 91 frá 14. ma.í 1940
um húsaleigu.
12