Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Qupperneq 106
104
legar endurbætur á eldri liúsuin. Þrifnaði sem fyrr talsvert ábóta
vant, allt of óvíða salerni í sveitum. Á Sauðárkróki vantar tilfinnan-
lega fráræslu frá húsum, og stafar af því mikill sóðaskapur, sem erfitt
er úr að bæta með öðru en skolpleiðslu. A þessu ári var byrjað að
flytja sorp og óhreinindi frá húsum á afvikinn stað, en áður höfðu
menn klínt því hér og þar, sem stytzt frá húsum sínum. Sá hrepp-
urinn um flutning á þessu.
Ólafsfi. Ekkert nýtt íbúðarhús var reist á árinu. Gert við mörg
hús. íbúðir endurbættar, gólf dúklögð, veggir fóðraðir. Vatnssalernum
fjölgar. Utanhússþrifnaði ábóta vant eins og áður. Beinahjallar, sem
mikill ódaunn stafaði oft frá, voru teknir burt og verða ekki reistir
hér aftur. Var það mikil landhreinsun. Þá ekki síður, er vilpa sú,
sem um getur í skýrslu 1909, var framræst, vegna byggingar hrað-
írystihússins.
Sixirfdiela. 5 steinsteypuhús til íbúðar voru byggð i héraðinu.
Endurbætur og viðhald á húsum lítið.
Akureyrar. Húsakynni víðast hvar sæmileg, en sums staðar þó
mjög léleg, bæði torfbæirnir í sveitunuin og svo ýmsar vistarverur,
sem teknar hafa verið til íbúðar í bænum á þessum siðustu árum
vegna hinna auknu húsnæðisvandræða. Þrifnaður er upp og ofan,
og gengur fremur illa að bæta hann. Hvað bænum viðvíkur má sér-
staklega nefna hin algerlega óhæfu sorpílát, sem flestir bæjarbúar
hafa við hús sín og eru sitt með hverri gerð, flest loklaus og mörg
götótt og hálf-botnlaus. Nokkur brögð munu vera að því enn þá, að
ekki séu vatnssalerni í öllum húsum hér í bænum. T. d. má nefna,
að hér var reistur einn meiri háttar hressingarskáli, sem hafði 5
þjónustustúlkur, auk allra gestanna, án j)ess að séð væri fyrir nokk-
urs konar salerni, og fékkst þessu ekki kippt í lag, fyrr en héraðs-
læknir hótaði eigandanum, að lokað yrði veitingasalnum, þar til búið
væri að setja upp vatnssalerni.
Höfðahverfis. Ekkert íbúðarhús verið byggt, en 2 inikið endurbætt
og stækkuð. Þrifnaður er' yfirleitt góður, en á nokkrum heimilum
þó töluvert ábóta vant. Vatnssalerni hafa verið sett í fjrrr um getin
hús. Á 1 heimili hefur verið raflýst með ,,vindrellu“, og í ráði er,
að þær komi á fleiri heimili. Er það mikill þrifnaðarauki að losna
við öll oliuljós.
Reykdæla. 2 ný íbúðarhús reist á árinu. Þrifnaður yfirleitt í góðu
lagi, lítið um lús, þó að ekki sé hún óþekkt með öllu.
Öxarfi. Man ekki til þess, að nokkurt íbúðarhús hafi verið byggt
í héraðinu á árinu, en eitthvað var lagað utan húss og innan, eftir
því sem efnivörur fengust. Með bættum húsakosti og aukinni menn-
ingu í ýmsu hefur þrifnaður alltaf farið batnandi. Eitt er þó, sem
mér hefur fundizt standa í stað í 20 ár hér. Það er lúsin. Hún hefur
alltaf verið lítil hér, til að staðaldri á fáeinum heimilum, sem svo
hafa smitað frá sér, þannig að mörg heimili hafa orðið vör lúsar ár-
lega. Flest fólk er þannig, að því verður illa við, ef lús kemur á
heimili þess og útrýmir henni þegar. Hér veltur alveg á húsmæðr-
unum. Því miður eru til konur, sem ala hjá sér lús að staðaldri, og
það sumar konur, sem metnaður er í að telja sig í betri manna röð