Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 112
110
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
Áfengisverzluninni og iitsölustöðura hennar var lokað á niiðju úri,
er Bandaríkjamenn höfðn hernumið landið, og sat við það út árið.
Sá þess víða þegar í stað í minnkaðri áfengisnautn, en sums staðar
geta læknar um, að heimabruggs hafi af nýju orðið vart, og er við
ramman reip að draga í áfengismálunum.
Læknar láta þessa getið:
fíorgarfi. Áfengisnautn sama sem engin nema helzt á skemmtisara-
komum og í réttum. Kaffinautn er almenn og tóbaksnautn. Það þykir
nú gamaldags og' ómóðins að taka í nefið, og gera það ekki aðrir en
miðaldra menn og eldri, en enginn neftóbaksmaður hættir nokkurn
tíma við tóbakið, ú meðan hann heldur lífi og heilsu. Yngra fólkið
reykir vindiinga, og fer það í vöxt. Þær eru sumar orðnar sólgnar í að
reykja um fermingaraldur, sveitastúlkurnar.
Ólafsvíkur. Ivaffi og tóbak er mikið notað, en áfengi mjög lítið (af
því að það fæst ekki).
Bildudals. Afengis, kaffis og tóbaks er sjálfsagt neytt í óhófi, og
kunna fáir með að fara seni skyldi.
Þingeyrar. Drykkjuskapnr er litill. 2 stúkur starfandi.
Iióls. Vinnautn með minna móti. Vín ekki fengizt eins og áður.
Vindlingareykingar og kaffinautn svipað og áður.
Ögur. Áfengisnautn er engin, mér vitanlega, síðan útsölustað var
lokað á ísafirði.
Hesteyrar. Áfengisnautn litil sem engin hér. Landabrugg ekki uin
hönd haft. Kaffis niikið neytt við öll tækifæri og tækifærislaust
og meira en áður var, síðan skrúfað var fyrir vínkranann. Tóbaks-
nautn talsverð. Mikið ber á neftóbaksnautn. Kvenfólk reykir lítið.
Miðfj. Áfengisnautn minnkandi, en tóbaksnautn eykst heldur.
fílönduós. Áfengisnautn og tóbaks fer sennilega fremur í vöxt en
hitt, að minnsta kosti tóbaksnautn, enda fjárráð meiri en áður. Helzt
ber þó á þessu í sambandi við dansskemmtanir, sem haldnar eru
flesta laugardaga á sumrin, oft á inörgum stöðum í héraðinu sama
daginn. Ungmennafélögin hér hafa mörg komið sér upp samkomu-
húsum og reyna að fá upp kostnaðinn með dansleikjum, enda má svo
kalla að þau séu að verða að nokkurs konar náttldúbbum, en fræðslu-
og menningarstarfsemi þeirra fari minnkandi að sama skapi. Margir
ungir inenn eyða stórfé í þessi skröll, kaupa bíla með sig lang'ar leiðir,
því að mest þylcir varið í að fara í aðra hreppa. Tiltölulega rninnst
er af þessum ófögnuði í kauptúnunum, þótt undarlegt megi virðast,
en aftur á móti sækir unga fólkið lir þeiin mjög á sveitaskröllin og
gerir þar oft og tíðum óskunda.
Sauðárkróks. Afengisnautn mun nú vera minni en undanfarin ár,
en nokkuð mun bera á heimabruggun, þrátt fyrir sykurskömmtun.
Ólafsff. Áfengisnautn var með minnsta móti af eðlilegum ástæð-
um. Kaffi og tóbak heldur velli.
Akureyrar. Ölvun á almannafæri á þessu ári með allra minnsta
inóti, en þó helzt í sambandi við ýmiss konar hóf, sem haldin voru