Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 119
117
Tannlækningar fengu skólabörnin ókeypis á þessu ári. Gerðar voru
148 skyggningar og' teknar 14 röntgenmyndir af skólabörnum.
Höfðahverfis. Skólabörn skoðuð í byrjun og lok skólaársins, vegin
og mæld. Lýsi gefið í skólanum mestan hluta vetrar, sem er vafalaust
mjög þarft, þar sem oft virðist sem illa gangi að lcoma því í börnin í
heimahúsum, þótt eklci beri á því þar.
Reykdæla. Elckert eftirlit er með farskólunum nema slcoðun í haust.
Yfirleitt er fræðslu og aðbúð slcólabarna allábótavant, eins og jafnan
er, þar sem farkennsla er. Fylgzt var með heilsufari nemenda Lauga-
skóla, og' mátti það heita gott. 1 piltur reyndist hafa berklabólgu í
hálseitlum, og fór hann úr skólanum.
Fáskrúðsfj. Skólastaðir yfirleitt viðunandi, þar sein farlcennsla fer
fram, að undan teknu prestsetrinu, en þar mun bráðlega eiga að
byggja nýtt íbuðarhús.
Vestmannaeyja. Skólahjúkrunarkonan virinur þarft verk og gott til
inikilla þrifa almenningi. Börnunum gefið lýsi í skammdeginu.
Eyrarbakka. Auk barnaskólanna slcoðaði ég nú nemendur
Kvennaskólans á Hverabökkum og kennara þar. Heilsufar þar gott.
Grimsnes. Lýsi er gefið í öllum heimavistarskólunum.
12. Barnauppcldi.
Af starfsemi barnaverndarnefndar fer litlum sögum í skýrslum
lækna og of litlum, miðað við þá vandræðatíma, er vér lifum, að því
er tekur til uppeldisskilyrða vorra og óséð er fyrir afleiðingar af.
Læknar láta þessa getið:
Hesteyrar. Barnauppeldi álít ég frekar gott hér víðast hvar. Börnin
eru snennna látin fara að vinna. Engin vandræðabörn hér, svo að
ég' viti.
Höfðahverfis. Börnin látin ráða sér mikið sjálf, en eins og' eðlilegt
er, talca unglingar upp á margri vitleysu, sem ]ieir mundu ekki g'era,
ef þeiin væri meira sinnt.
Seyðisfj. Barnauppeldi þykir ábóta vant hér sem annars staðar,
en efalaust kveður meira að óknyttum meðal barna, síðan setuliðið
lagði undir sig bæinn.
Fáskrúðsfj. Barnauppeldi að ýmsu leyti ábóta vant. Agi lítill, börn-
um líðst t. d. að slæpast á götum úti langt fram á kvöld með ærsl-
um, óhljóðum og leiðum - munnsöfnuði.
tíernfj. Er alveg vafalaust stórlega ábóta vant hér í kauptúninu.
Börnin virðast hafa allt of milcið sjálfræði. Þau fá að vera úti langt
fram á nótt, fá að sækja skemmtanir fullorðinna og vera á þeim
i'ram á nótt. Virðast yfirleitt fá að ráða sér sjálf að mestu. Auðvitað
á þetta eklci við um öll heimili, en allt of mörg.
Vestmannaeyja. Barnauppeldi víða ábóta vant, agalítið, sums
staðar agalaust, og börnin oft ,,sjálfala“. Barnaverndarnefndin starf-
ar að uppeldismálum vanrælctra og vandræðabarna og hefur víst
stundum talsvert að gera — þó eitthvað minna á jiessu ári en oft
áður.