Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Side 125
123
19. Störf heilbrigðisnefnda.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Heilbrigðisnefnd hélt aðeins 6 fundi á árinu. Þetta gerðist
lielzt. Ein mjólkurbúð var löggilt, en annarri synjað um lög'gild-
ingu, þar sem hún uppfyllti ekki sett skilyrði. 9 nýir veitingastaðir
voru leyfðir, en allir aðeins lil bráðabirgða. Margir eldri veitinga-
staðir voru skoðaðir og krafizt endurb'óta þar, sem þurfa þótti. Þá
voru og ýmis mál fyrir, er að þrifnaði utan húss lutu. Heilbrigðis-
nefnd íét og til sín taka húsnæðisvandræði fyrir geðveikt fólk, þó að
lítinn árangur bæri. Nefndin fór fram á, að settar yrðu ruslakörfur
úti á ýmsum fjölförnum stöðum í bænum, og enn sem fyrr fór hún
fram á, að auknir yrðu starfskraftar heilbrigðiseftirlitsins, en svo
sjálfsagðar kröfur eiga mjög erfitt uppdráttar, svo sem löngu er
kunnugt.
Skipaskaga. Ráðinn maður lil þess að hafa á hendi sorphreinsun.
Hesteyrar. Engin beilbrigðisnefnd hér.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd reyndi sem fyrr að vanda um við
menn vegna umgengni utan húss, þó að allmikið skorti á, að í góðu
lagi sé.
Svarfdæla. Heilbrigðisnefndin á Dalvík hélt 1 fund og gekk að
honum loknum um þorpið, athugaði þrifnað utan húss og leiðbeindi
og áminnti húsa- og lóðaeigendur um þrifnað kringum hús sín. Enn
fremur ritaði hún hreppsnefnd bréf um naúðsyn þess, að holræsi
væru gerð í suðurhluta þorpsins, og fékk það mál góðar undirtektir.
Akuregrar. Heilbrigðisnefnd fer á hverju ári, eftir að snjóa leysir,
i eftirlitsferð uin bæinn og hefur þá heilbrigðisfulltrúann og yfir-
lögregluþjóninn með sér. Er þá skrifað upp það, sem aflaga fer, og
kippt í lag eftir föngum. Að sumrinu til er oft afskaplegt moldryk
á götunum, en ekki til nema einn lítill vatnsbíll til að vökva þær, og
nægir það að sjálfsögðu hvergi nærri. Annars mun mega segja, að
götunum sé haldið vel hreinum, að minnsta lcosti í aðalbænum, þar
sem umferðin er mest, enda mun Akureyrarbær mega teljast með
hreinlegustu bæjum á íslandi. Fisksölumál bæjarins eru í megnasta
ólestri. Mest af fiskinum er selt á bryggju, óhausað og óslægt, en
nokkuð i smábúðarholu, sem á engan hátt fullnægir minnstu kröf-
um, sem gera verður til fisksölubúðar. Heilbrigðisnefnd mundi strax
loka búðinni, ef vöi væri á nokkurri fisksölubúð annarri, en á meðan
svo er ekki, þykir þó betra að hafa hana en ekki neitt.
Höfðahverfis. Heilbrigðisnefnd er hér í hreppnum, en hefur ekkert
starfað, enn sem komið er.
Segðisfj. Vor hvert fer heilbrigðisnefndin í eftirlitsferð um bæinn.
Fáskrúðsfj. Heilbrigðisnefnd hvetur menn til aukins þrifnaðar. A
vorin er kauptúnið hreinsað, einkum lækirnir, og sorpi ekið burt.
Menn eru einnig hvattir til að hreinsa lóðir sínar.
Vestmannaegja. Heilbrigðisnefnd hefur reynt að kippa ýmsu í lag,
og befur sumt af því tekizt. Heilbrigðisfulltrúi bæjarins er jafnframt
götuhreinsari. Eitthvað eru bæjarfulltrúarnir að átta sig á þvi, að
þetta sé ekki heppileg sameining á þessurn störfum, og vona ég, að