Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 129
á fornum vegi milli bæja. Fór ég heim á bæinn, þar sem hún átti
heima, ásamt sýslumanninum, sem tók réttarskýrslu af öllu heimilis-
fólkinu. Tilkynntum við stjórn setuliðsins hér, og bárust böndin að
bílstjóra frá herstöðvunum á Reykjaslcóla, sem hafði farið frá
Blönduósi, hálftíma áður en þetta gerðist. Var stúlkan látin segja til,
hvort hún þekkti hann úr 12 manna hópi, og tókst henni það, en þó
með nokkru hiki. Síðan var hún og heimilisfólkið kölluð hingað til
yfirheyrslu af hverjum fyrirliðanum á fætur öðrum og síðan
eftir 4—5 vikur haldinn herréttur með miklum serímóníum og yfir-
heyrslur hafðar þar enn á ný. Eftir allt saman var svo sakborning-
urinn sýknaður vegna ónógra sannana. Hinn hái réttur virtist álíta,
að barn, sem fyrir slíkri meðferð verður, ætti að hafa athyglisgáfu
sína í svo góðu lagi, meðan á verknaðinum stendur, að það gæti ekki
aðeins lýst bílnum nákvæmlega, heldur og rnunað eftir nokkrar vilc-
ur, hvernig orð hefðu farið milli hennar og hvers einstaks heinra-
manns, þegar hún skýrði frá atvikunr. Hin flókna, margendurtekna
og skriffinnskulega rannsókn ásanrt hinni endanlegu dómsniðurstöðu
varð til þess að kveikja hér nokkurn kala í garð enska setuliðsins,
en annars hafði sanrbúð þess við fólk yfirleitt gengið slysalaust af
og hernrennirnir konrið sér vel.
22. Sótthreinsanir samkvæmt lögum.
Tafla XXI.
Sanrkvænrt sótthreinsunarreikningunr, er borizt hafa landlæknis-
ski-ifstofunni, hefur sótthreinsun heimila farið 233 sinnunr franr á
árinu á öllu landinu, og' er tíðasta tilefnið senr fvrr berklaveiki (37%),
þá skarlatssótt (29%), en önnur tilefni fágæt.
23. Framfarir til almenningsþrifa.
Læknar láta þessa getið:
Bíldudals. Nokkrir nýir trillubátar hafa bætzt hingað á árinu. 2 tog-
arar hafa og flutzt hingað. Hafa þeir þegar veitt hingað allmiklu fé og
atvinnu. Fyrir höndunr eru ýnrsar franrkvæmdir hér á Bíldudal, svo
senr húsabyggingar, vatnsleiðsla, uppfylling og bátabryggja, ver-
búðir og fleira, og vænta nrenn sér nrikils af framkvænrdum þessum.
Hesteyrar. Framfarir til almenningsþrifa engar nrér vitanlega. Nú
virðist Síldarverksmiðjan á Heklueyri vera í þann veginn að leggjast
niður, svo að þar má þá tala unr afturför. Ekki er rafmagnið konrið
enn hér á Hesteyri, en eitthvað var vakið nráls á því að virkja ána
1938, en síðan hefur það legið í þagnargildi. Þó veit ég, að nokkur
áhugi er að vakna lrjá nrönnunr hér fyrir þessu máli, en ég er hrædd-
ur unr, að það eigi lang't í land, að til franrkvænrda konri.
Sauðárkróks. Nýtt hraðfrystihús tók lil starfa á árinu, og eru nú
hraðfrystihúsin 2 á Sauðárkróki. Á árinu 1940 lét kaupfélagið út-
búa gufuklefa í sanrbandi við nrjólkursamlagið, leiddi heita gufu inn
í klefann frá kötlunum. Útbúnaður inni í klefanum lrefur ekki verið
góður, en í ráði er að bæta úr því. Menn hafa getað komið þarna og