Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Side 74
1956
— 72 —
III. Sóttarfar og sjúkdómar.
Þó að nokkrir héraðslæknar telji
árið hafa verið með meira móti kvilla-
samt, reyndist flestum þeirra almennt
heilsufar með betra móti. Inflúenza
allskæð gekk þó að kalla um allt land,
og mænusóttarfaralaur frá fyrra ári
náði nokkuð fram á þetta ár, en var
reyndar að minnstu leyti raunveruleg
mænusótt, heldur hið dularfulla af-
brigði hennar, sem hlotið hefur heitið
Akureyrarveiki. Heilasótt er óvenju-
lega títt skráð á árinu, en sama máli
gegnir um hana, að engan veginn öll
tilfellin og sennilega fæst hafa verið
rsunveruleg heilasótt, heldur heila-
himnuerting af öðrum og ókenndum
rótum runnin. Þrátt fyrir nokkuð ó-
venjulegan inflúenzudauða, mátti dán-
artala ársins heita í lágmarki (7,2%c)
og var þó ivið lægri tvö siðast liðin
ár (1954: 6,9%c; 1955: 7,0%»), enda
aldrei verið skráð lægri en árið 1954.
Stykkishólms. Heilsufar frekar gott
á árinu yfirleitt.
Búðardals. Heilsufar í verra lagi.
Reykhóla. Allgott, að undanteknum
faraldri mænusóttar.
Palreksfj. Heilsufar mjög lélegt fram
á mitt sumar. Fór batnandi með haust-
inu, en var þó bágborið.
Þingeyrar. Fremur kvillasamt.
ísafj. Heilsufar gott allt árið og
sóttarfar með minnsta móti. Um hér-
aðið gengu engir faraldrar, sem nokk-
urt orð fór af.
Djúpavíkur. Heilsufar gott á árinu.
Hólmavíkur. Heilsufar sæmilegt.
Hvammstanga. Heldur kvillasamt.
Blönduós. Með nokkuð venjulegu
móti.
Hofsós. Heilsufar var gott, farsóttir
fáar og vægar.
Dalvíkur. Heilsufar gott, að undan-
teknum inflúenzufaraldri.
Akureyrar. Heilsufar gott flesta
mánuði ársins.
Grenivíkur. Heilsufar í meðallagi.
Breiðumýrar. Heilsufar yfirleitt gott
á árinu.
Húsavíkur. Heilsufar gott 3 fyrstu
mánuði ársins og sumarmánuðina.
Þórshafnar. Heilsufar bágborið
framan af árinu.
Norður-Egilsstaða. Heilsufar mátti
teljast sæmilegt.
Bakkagerðis. Mjög kvillasamt á
árinu.
Seyðisfj. Yfirleitt mátti heilsufar
teljast gott.
Hafnar. Með mesta móti kvillasamt
fyrra hluta ársins.
Kirkjubæjar. Heilsufar gott allt árið.
Vestmannaeyja. Heilsufar í meðal-
lagi.
Laugarús. Að öðru leyti en tekur til
kvefsóttar og fylgikvilla hennar, virð-
ist heilsufar hafa verið sæmilegt.
Hafnarfj. Heilsufar gott allt árið, að
undantekinni inflúenzu.
Kópavogs. Heilsufar hygg ég að
megi yfirleitt teljast hafa verið gott,
og raunar ætla ég, að jafnvel óvenju-
litið muni hafa verið um faraldra
næmra sótta. En um þetta veit ég þó
næsta lítið, þvi að flestir hafa heim-
ilislækna sína í Reykjavik, og þeir
senda borgarlækni farsóttaskýrslur
sínar.
A. Farsóttir.
Töflur II, III og IV, 1—28.
1. Kverkabólga (angina tonsillaris).
Töflur II, III og IV, 1.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 10365 9183 8466 10065 10425
Dánir 11112
Æðimargbreytileg i háttum og að-
förum, eins og jafnan, en í engu frá-
brugðin því, sem gengur og gerist.
Akranes. Gerir mikið vart við sig
allt árið, einkum síðara hluta ársins,
og faraldur að. Þó ekki skæð að
jafnaði.
Kleppjárnsreykja. Skráð alla mán-
uði ársins. í nokkrum tilfellum var
um ótviræða angina streptococcica að