Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Qupperneq 153
— 151
1956
4- Rauðakrossdeild Akureyrar. Um
starfsemi hennar á árinu hefur, ekki
þessu vant, engin skýrsla borizt.
5. Kvenfélagið Hlíf, Akureyri, rak
dagheimili fyrir börn (Pálmholt). Sjá
siðar um barnahæli.
6. Barnaverndarféiag Aknreyrar
rak leikskóla fyrir börn. Sjá siðar um
barnahæli.
7. Kvenfélagið Líkn, Vestmanna-
eyjum, heldur uppi margvíslegri likn-
ar- og styrktarstarfsemi.
8. Krabbavörn, Vestmannaeyjum,
styrkti ríflega á árinu kaup á nýjum
rontgentækjum til sjúkrahússins.
9- Rauðakrossdeild, Vestmannaeyj-
U1n, á og rekur sjúkrabifreið i kaup-
staðnum.
Heilsuverndarstöðvar.
!• Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
^erklavarnir.
Árið 1956 voru framkvæmdar 19583
Iseknisskoðanir (24410 árið 1955) á
14735 manns (19186). Tala skyggn-
lu8a 12676 (13158). Annazt var um
i öntgenmyndatöku 782 sinnum (822).
rramkvœmdar 1302 loftbrjóstaðgerðir
(1909). 68 sjúklingum útveguð sjúkra-
“ús- eða hælisvist (97). Alls fram-
kvæmd 2042 berklapróf á stöðinni og
auk þess 2317 berklapróf í framhalds-
skólum. Annazt um 614 hrákarann-
sóknir (609); auk 248 ræktana úr
úráka (264) var 75 sinnum ræktað úr
niagaskolvatni (153), 29 (14) sinnum
Ur Þvagi og 3 (5) sinnum úr brjóst-
mmnuvökva. Séð um sótthreinsun á
úeimilum allra smitandi sjúklinga,
sem vistaðir voru á hæli. 151, eink-
Ulu börn og unglingar á heimilum
berklaveikra, var bólusettur gegn
berklaveiki (337). Munu nú alls hafa
^erið bólusettir um 8875 manns.
bkipta má þeim, sem rannsakaðir
Vuru, í 3 flokka:
!• Þeir, sem verið höfðu undir eftir-
titi stöðvarinnar a. m. k. tvisvar
ö ári og henni því áður kunnir,
alls 1282 (1391) manns. Þar af
voru karlar 510 (532), konur 664
(766), börn 108 (93). Meðal
þeirra fannst virk berklaveiki i
48 (58), eða tæplega 3,7% (4,2%),
35 (44) þeirra voru með berkla-
veiki i lungum, lungnaeitlum eða
brjósthimnu. í 34 (51) tilfellum,
eða rúmlega 2,7% (3,7%), var um
sjúklinga að ræða, sem veikzt
höfðu að nýju eða versnað frá
fyrra ári. 1 (7) hafði haldizt svo
til óbreyttur frá 1955. 21 (28)
sjúklingur, eða 1,64% (2%), hafði
smitandi berklaveiki í lungum.
20 (27) þeirra, eða 1,56% (1,9%),
urðu smitandi á árinu. Af þeim
voru einungis 9 (4) smitandi við
beina smásjárrannsókn, en i 11
(27) fannst fyrst smit við ná-
kvæmari leit, ræktun úr hráka
eða magaskolvatni.
2. Þeir, sem vísað var til stöðvar-
innar í fyrsta sinn eða höfðu
komið áður, án þess að ástæða
væri talin til að fylgjast með þeim
frekar, alls 6546 (6543) manns,
þar af voru karlar 2171 (2378),
konur 2444 (2223), börn yngri en
15 ára 1931 (1942), meðal þeirra
reyndust 67 (93), eða rúmlega
1% (1,4%), með virka berkla-
veiki. Þar af 63 (86) með berkla
í lungum, lungnaeitlum eða brjóst-
himnu. 26 (30), eða 0,4%
(0,46%), höfðu smitandi berkla-
veiki. í 10 (17) þeirra fannst
smit við ræktun.
3. Stefnt var í hópskoðun alls 6907
(10357) manns. 1215 (1972)
þeirra voru börn yngri en 15 ára.
2 (4) þeirra, er i hópskoðun
mættu, reyndust vera með virka
lungnaberkla.
Ungbarnavernd.
Skoðuð alls af læknum deildarinnar
1244 börn í 2933 skipti. Auk þess leit-
uðu 36 mæður til lækna deildarinnar
vegna barna sinna, og 701 barn kom
til bólusetningar. Afgreiðslur alls því
3670. 111 börn fengu ljósböð í 1430
skipti (í Langholtsskóla). Ljósastofa
stöðvarinnar var ekki tekin til starfa.
Hjúkrunarkonur fóru i 17223 heimilis-
vitjanir til ungbarnaeftirlits.