Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 171
— 169
1956
allt árið, einkum'sá hluti þess, sem
sundlaugin er í. Er nú búið að ganga
þar frá öllu af vandvirkni og smekk-
visi, og mun því sundiðkan aukast
verulega.
Höfða. íþróttir ekki iðkaðar hér,
enda engin aðstaða til þess, nema þá
helzt skíðaiðkana að vetrinum.
Akureyrar. Hin nýja sundhöll tók
til starfa á þessu ári, og eru miklar
vonir bundnar við hana, enda hin
vistlegasta og fullkomnasta i hvívetna.
Þórshafnar. Kennd var leikfimi í
barnaskólanum í Þórshöfn í vetur.
Einnig var sundkennsla um tíma í
sumar.
Seyðisfí. íþróttir eru of lítið stund-
aðar. Auk skólaleikfimi iðka þó áhuga-
menn talsvert iþróttir undir forustu
Björns Jónssonar, lögregluþjóns, sem
er einn með áhugasömustu íþrótta-
mönnum landsins, þó að einangraður
se og alltaf hafi þurft að vinna við
erfið skilyrði á því sviði. Til dæmis
befur hann af eigin rammleik keypt
°g gefið bænurn svokallaða „tvíslá“
°g sýnt listir sínar á henni hér og i
Dærsveitum.
Vestmannaeyja. Áhugi á iþróttum
befur verið lítill undanfarið, og er svo
enn. Verið er að byggja myndarlegt
^bróttasvæði, sem væntanlega verður
lokið við snemma á næsta ári.
10. Alþýðufræðsla um
heilbrigðismál.
Ólafsvikur. Utan barnaskóla engin.
bó hefur presturinn á Staðastað haft
^nglingaskóla á ári hverju, en allur
þorri nemenda hans verið aðkomu-
^enn. Hafði hann sökum nemenda-
fjölda skóla sinn í sumargistihúsinu
a Búðum, en það húsnæði reyndist
oiiður hentugt.
Höfða. Ekki önnur en sú, að brýna
fyrir fólki heilbrigða lifnaðarhætti.
11. Skólaeftirlit.
Tafla X.
Skýrslur um skólaskoðun hafa bor-
izt úr öllum læknishéruðum og taka
tu 19783 barnaskólabarna.
Samkvæmt heildarskýrslu (tafla X),
sem gerð hefur verið upp úr skóla-
skoðunarskýrslum héraðslæknanna,
hafa 17728 börn, eða 89,6% allra
barnanna, notið kennslu í sérstökum
skólahúsum öðrum en heimavistar-
skólum, 759 börn, eða 3,8%, hafa
notið kennslu í heimavistarskólum, en
þau hafa þó hvergi nærri öll verið
vistuð í skólunum. 868 börn, eða
4,4%, hafa notið kennslu i sérstökum
herbergjum í íbúðarhúsum og 428, eða
2,2%, í ibúðarherbergjum innan um
heimilisfólk. Upplýsingar um loftrými
eru ófullkomnar, en það virðist vera
mjög mismunandi: í hinum almennu
skólahúsum er loftrými minnst 1,3 m3
og mest 7,8 m3 á barn, en jafnar sig
upp með 3,5 m3. í heimavistarskólum
1,3—9,6 m3, meðaltal 3,8 m3. í hin-
um sérstöku kennsluherbergjum i i-
búðarhúsum 1,0—7,9 m3, meðaltal 3,4
m3. í ibúðarherbergjum 1,3—12,0 m3,
meðaltal 3,5 m3, sem heimilisfólkið
notar jafnframt. í hinum sérstöku
skólahúsum, þar sem loftrýmið er
minnst, er það oft drýgt með því að
kenna börnum til skiptis i stofunum.
Vatnssalerni eru til afnota i skólunum
fyrir 19265 þessara barna, eða 97,4%,
forar- og kaggasalerni fyrir 518 börn,
eða 2,6%. Svo á að heita, að öll barna-
skólabörn hafi nú afnot salernis, og
hefur það ekki verið fyrr. Leikfimis-
liús hafa 12881 barnanna, eða 65,1%,
og bað 13513, eða 68,3%. Sérstakir
skólaleikvellir eru taldir fyrir 14737
börn, eða 74,5%. Læknar telja skóla
og skólastaði góða fyrir 15362 þessara
barna, eða 77,7%, viðunandi fyrir
4044, eða 20,4%, og óviðunandi fyrir
377, eða 1,9%.
Stykkishólms. í undirbúningi er
bygging myndarlegs heimavistarhúss
við miðskólann í Stykkishólmi, og er
vonast til, að framkvæmdir geti hafizt
á næsta ári. Það hefur staðið mið-
skólanum fyrir þrifum, hve erfitt hef-
ur verið að vista unglinga úr héraðinu
hér í Stykkishólmi, svo að fjöldi ung-
linga héðan af Snæfellsnesi og viðar
að, sem hafa viljað stunda miðskóla-
nám, hafa orðið að leita burt úr hér-
aðinu þeirra hluta vegna.
ísafí. Eftirlit með skólum var með
22