Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 150
1956
148 —
það, að þau þykja ekki lengur rekstr-
arhæf eða greiður aSgangur aS sjúkra-
húsi þykir gera reksturinn óþarfan.
Þessi sjúkraskýli eru (rúraafjöldi í
svigum): Reykhóla (2), Árness (2),
ÓlafsfjarSar (5), Dalvíkur (2), Greni-
víkur (2), Eskifjarðar (4), Hafnar í
HornafirSi (2), Víkur í Mýrdal (4),
Stórólfshvols (3), Laugaráss (2).Fleiri
þessara smáskýla munu þá og þegar
eiga vísa sömu leiðina. ViS hefur bætzt
Bæjarspitali Reykjavíkur með 60 rúm-
um, áður talið farsóttahús (mænusótt-
ardeild, 30 rúm). Hinn nýi Blöndu-
ósspítali kemur nú í fyrsta sinn á skrá
(31 rúm, í stað 11 áður). Rúmafjöldi
annarra sjúkrahúsa hefur verið end-
urskoðaður og samræmdur. Við til-
komu bæjarspitala Reykjavikur var
Farsóttahús Reykjavíkur lagt niður
sem farsóttahús, og telst síðan geð-
veikrahæli.
Rúmafjöldi allra sjúkrahúsanna, 39
alls, telst 1633. Koma þá 10,1 rúm á
hverja 1000 íbúa. Almennu sjúkrahús-
in teljast 34 með 1077 rúmum samtals,
eða 6,7%o. Rúmafjöldi heilsuhælanna
er 257, eða 1,6%.,.
Rvik. Byggingu Heilsuverndarstöðv-
arinnar er nú að fullu lokið. í húsinu
er, auk heilsuverndarstöðvarinnar og
skrifstofu borgarlæknis, eins og áður
er frá skýrt, einnig Bæjarspitalinn og
Slysavarðstofan. Húsið var tekið í
notkun eins og hér seg'ir: Barnadeild
4. desember 1953, Húð- og kynsjúk-
dómadeild 15. desember 1954, Mæðra-
deild 29. desember 1954, Skrifstofa
borgarlæknis 7. júli 1955, Áfengis-
varnadeild 11. júlí 1955, Slysavarð-
stofan 15. september 1955, Bæjarspít-
alinn 12. október 1955 og Berkla-
varnadeild 7. júli 1956. Við stofnanir
þær, sem eru í byggingu heilsuvernd-
arstöðvarinnar, unnu í árslok 1956:
Við heilsuverndarstöðina 10 læknar,
20 hjúkrunarkonur og 20 aðrir starfs-
menn, við borgarlæknisembættið 2
læknar og 9% starfsmaður, við bæjar-
spitalann 6 læknar, 7 hjúkrunarkonur
og 27% starfsmaður, við slysavarð-
stofuna 5 læknar, 5 hjúkrunarkonur
og 3 starfsmenn, eða alls 23 læknar,
32 hjúkrunarkonur og 60 aðrir starfs-
menn. Unnið var að stækkun Lands-
spítalans áfram. Um áramót var lokið
við að steypa 3. hæð, nema i mið-
hluta byggingarinnar, en þar var
steypt 2. hæð. Byggingu bæjarsjúkra-
hússins var haldið áfram, og steyptar
voru 2. og 3. hæð sjúkrahússins.
Akranes. Sjúkrahúsið nær því alltaf
fullskipað og oft meira en það. All-
mikið var gert af ambulant aðgerðum,
bæði við slysum og minna háttar sjúk-
dómum. Röntgenmyndatökur voru 875
á 584 sjúklingum. Myndatökur af bein-
um og liðum voru 500, maga og þörm-
um 145, lungum 84, nýrum 48, gall-
vegum 41, höfði 26, fóstri 7, ýmisl-
24. Skyggndir voru og allmargir sjúk-
lingar.
Kleppjúrnsreykja. Sjúkraskýlið ekki
starfrækt á árinu.
Stykkishólms. Sjúkrahúsið i Stykk-
ishólmi rekið á sama hátt og áður.
Hér er ekki nein heilsuverndarstöð
starfrækt, en á viðtalsstofu læknis og
á sjúkrahúsinu er framkvæmd ýmis
heilsuverndarstarfsemi, svo sem
berklaeftirlit, eftirlit með ófriskum
konum og ungbörnum o. fl.
Reykhóla. Fengin voru röntgentæki
fyrir samskotafé héraðsbúa og tekin i
notkun á árinu. Er tegundin Picker-
Meteor, litil, en mjög þægileg í not-
kun. Eru að þessu mikil þægindi og
öryggi.
Patreksfj. Sjúkrahúsið er 10 ára
gamalt, illa við haldið og að mestu
þægindalaust. Áhaldalaust, að röntgen-
tæki undanskildu. Fyrrverandi hér-
aðslæknir átti öll áhöldin sjálfur og
tók þau með sér. Mjög lélegt skurS"
stofuborð og enginn skurðstofulampi-
Á árinu voru keypt áhöld til einföld-
ustu aðgerða, auk þess 10 rúm. Rúmin
voru úr sér gengin og ekki til nógu
mörg i allar stofurnar. Voru keypt
rúm og áhöld fyrir tæpar 100 þúsund
krónur. Rúmföt voru ekki til skipt-
anna. Var úr því bætt á árinu. Eldhús
er ófullkomið og gjörsneytt öllum
þægindum. Sama er að segja um
þvottahús. Húsbúnaður mjög fábrot-
inn, aðeins kollóttir stólar, þó ekki
einn á hvert rúm. Mætti svo lengi
telja. Enda þótt ekkert hafi veriö
keypt á siðustu árum og litlu kostað