Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Síða 140
1956
—. 138 —
Bakkagerffis. Ungur sjómaður héðan
drukknaði við Vestmannaeyjar, er
hann var þar á vertíS. í héraSinu
sjálfu urðu nokkur smáslys, sem gert
var aS heima og varla eru teljandi.
Seyðisfj. Engin alvarleg slys urðu á
árinu á héraðsbúum. Aftur á móti
komu nokkrir erlendir sjómenn i
sjúkrahúsið vegna ýmissa meiðsla. Þar
á meðal 2 handleggsbrot, 1 fótbrot og
1 fractura colli femoris, auk smærri
áverka. Minnist ég, að komið var með
Norðmann úr norska eftirlitsskipinu,
og hélt sjúklingurinn þvi fram, að
gervitennur hans stæðu fastar í vélind-
inu. Lét ég hann dreltka „röntgen-
graut“ bak við skyggningarskerm. Var
engin hindrun fyrir, og þar með var
sjúklingur alheill. Læknir skipsins var
með sjúklingi. Létti af honum miklum
áhyggjum, þvi að þegar höfðu verið
gerðar ráðstafanir um flugfar til
Reykjavíkur.
Nes. 43 ára Norðfirðingur fórst með
v/b Hólmaborg frá Eskifirði. Gamall
maður mjófirzkur fannst látinn við
sjávarklöpp með mikið sár á höfði.
Mun hafa runnið til á sleipri klöpp-
inni, fallið á hnakkann og dauðrot-
azt. Fract. costarum 3, claviculae 1,
digiti 2, humeri 1, Collesi 3. Lux. hu-
meri 3. Distorsio talocruralis 9, aliis
locis 8. Commotio cerebri 5. Contusio
34. Vulnera incisa 56, abrasa 25, con-
tusa 23, sticta 13. Combustiones 11.
Corpus alienum oculi 28, subcutis 5,
nasi 2.
Búða. Ung stúlka vaknaði páska-
dagsmorgun og geispaði svo gríðar-
lega, að hún gekk úr kjálkalið. Ungur
maður ók með ofsahraða á bifhjóli.
Á vegi hans varð drengur á reiðhjóli,
og vék maðurinn til hliðar til að forð-
ast árekstur, missti við það stjórn á
bifhjólinu, stakkst fram af þvi og
hlaut, auk heilahristings, allmikla á-
verka á andlit og höfuð. Miðaldra
maður sat að sumbli á sjómannadag-
inn. Er á leið drykkjuna, sofnaði
hann, en vaknaði skömmu siðar og
geispaði þá svo mikinn, að hann fór
úr kjálkalið. 48 ára gömul kona gekk
aftur á bak niður brattan þurrklofts-
stiga, hugði sig vera komna niður stig-
ann, en steig fram hjá neðsta þrepinu,
hlaut fract. & lux. talo-cruralis sinis-
tra. Auk þess var gert að fjölda minna
háttar slysa.
Hafnar. Nagli hrökk ofan i 5 ára
dreng, lenti i hægra lunga, tekinn af
sérfræðingi i Reykjavik. Ambustio 3,
commotio cerebri 1, lux. humeri 1
(habitualis), fract. radii 1, fibulae 1,
tibiae 2.
Víkur. Hestur jós í samreið og sló
manninn á hnéskelina. Sjúklingurinn
sendur á Landsspitalann. Rupt. ten-
dinis calcanei. Stúlka steig út úr bíl
og sleit á sér hásinina. Send á Lands-
spítalann. Maður var að stelast i fýl
— fullur — hrapaði niður i sjó —-
fract. costarum, emphysema etc. Fékk
svo dellu upp úr öllu saman. Such is
life.
Vestmannaeyja. Utanbæjarsjómaður
drukknaði hér í höfninni, ölóður, um
páskana. Annars gekk vertíð vel og
slysalaust, en þetta er í annað sinn
nú í röð, sem sjómenn drukkna hér
i höfninni í ölæði. Hörmulegt bruna-
slys varð, er piltur skaðbrenndist við
þjóðhátiðarbrennu um sumarið, og
var honum vart hugað líf um tíma;
er hann enn ekki gróinn sára sinna
eftir tæpt ár. Um brennuæði unglinga
hér hefur annars verið rætt i fyrri
skýrslum. Verður nú ekki lengur við
l)að unað, að börn og unglingar stjórni
hátiðabrennum hér, en þess krafizt,
að fullorðnir, æfðir brunaliðsmenn
sjái um brennurnar og séu búnir eld-
varnarbúningi. 69 meira háttar slys
komu til aðgerða á sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja á árinu, þar af 43 beinbrot.
Hellu. Fract. bimalleolaris dx. 1-
Gerð var osteosynthesis á Landsspit-
alanum. Fract. femoris dx.: 3 ára
drengur varð fyrir dráttarvél. Lá 6
vikur á Landsspitalanum. Fract. ulnae
1. Bifreiðarslys varð með þeim hætti,
að bifreið rann á allmikilli ferð út af
bugðu á þjóðvegi niður í gilskorning
og kom niður á hvolfi. Einn farþeg-
anna, stúlka um tvítugt, hlaut meiðsli:
fract. baseos. cranii, vulnus dilacera-
tum capitis og trancisio tendinis ex-
tensorum digiti II manus. Send á
Landsspítalann til aðgerðar. Bóndi