Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Side 204
Viðbætir,
Læknaráðsúrskurðir 1958.
1/1958.
Borgardómari í Reykjavík hefur
með bréfi, dags. 19. nóvember 1957,
samkvæmt úrskurði, kveðnum upp á
bæjarþingi Reykjavikur 18. s. m., leit-
að umsagnar læknaráðs í málinu nr.
181/1956: Á. J. gegn Sogsvirkjun og
Fosskraft.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 20. janúar 1953, um kl. 11 ár-
degis, var stefnandi máls þessa, Á. J.,
trésmiður, . .., að vinna við smíðar á
yinnusvæði stefndra við Neðra Sog i
Árnessýslu. Vann hann ásamt tveim
öðrum mönnum að smíði vinnupalls
yfir aðrennslisopi, og var pallurinn
reistur við stiga, sem þarna var fyrir
og hafði áður verið notaður. Stefnandi
var að ljúka við að klæða gangpall
vinnupallsins og fór þvi síðastur
þeirra félaga niður af pallinum. Kveðst
hann hafa tekið hamar sinn og sög í
hægri hönd og stigið i 4. stigaþrep,
talið ofan frá, en tekið með vinstri
hendi í efsta þrepið, sem hafi losnað
í sama bili með þeim afleiðingum, að
hann missti jafnvægi og hrapaði til
jarðar. Telur hann fallið hafa verið
um 4 m. Stefnandi kom standandi nið-
ur á hægri fót og hælbrotnaði.
Slasaði var samdægurs fluttur að
... og skoðaður þar af ..., héraðs-
lækni, sem taldi, að um hælbrot væri
að ræða, og batt um fótinn til bráða-
birgða. Næsta dag fór slasaði til
Reykjavíkur, og var þar tekin rönt-
genmynd af fætinum á röntgendeild
Landspitalans, þar sem í ljós kom
slæmt hælbrot, og var fóturinn siðan
settur i gipsumbúðir á handlæknis-
deild sama spítala. Er framan ritað
byggt á frásögn stefnanda sjálfs, en
vottorð frá ..., fyrr nefndum héraðs-
lækni, og Landspítalanum eru ekki
fyrir hendi.
..., héraðslæknir í ..., stundaði
slasaða, meðan hann lá rúmfastur, og
fylgdist með heilsu hans eftir það,
meðan hann var að ná sér. Sjúkrasaga
slasaða er rakin i læknisvottorði ....
sérfræðings í bæklunarsjúkdómum,
Reykjavik, dags. 19. marz 1956, en það
hljóðar svo:
„Þ. 18. 2. 56 sá ég Á. J., ..., f. 20.
6. 23.
Sjl. segist hafa dottið úr stiga þ. 20.
1. 53 og brotið hægra hælbein. Búið
var um brotið í gipsumbúðum, og segir
hann umbúðirnar hafa verið á í 7—8
vikur. Fór eftir það að ganga umbúða-
laus, en var í 5 mánuði að jafna sig
svo, að hann gæti byrjað á léttri
vinnu. Hann segist þreytast fljótt og
vera mun óöruggari á vinnupöllum en
áður var, svo og ef hann gengur a
ósléttu. Hann vinnur við húsbyggingar
og segist geta unnið 8 tíma á dag, en
sé þá kominn að þrotum. Hann segist
hafa verki i hægri ökla, sérlega a
morgnana, segist svitna meira á hægri
fæti en þeim vinstri. Hann segist hafa
meiðzt á vinstri fæti 11 ára gamall,
og hafi hreyfing verið minni i þeim
ölíla eftir það, fram að þvi að hann
hælbrotnaði.
Sjl. gengur óhaltur á sléttu gólfi-
Iválfar jafngildir.
Hægri hæll er í 15° valgusstillingu,
en sá vinstri í 5° valgus. Bátbein (os
naviculare) á hægri fæti skagar inn,
il er flöt. Hjarahreyfing er eins í báð-
um öklum, 75°/125°, en hverfihreyfing