Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 218
1956
216
Sainkvæmt þessu mundi hreint salt
eða hreint vítamín, eða blanda slíkra
efna, ekki teljast fæða, þótt nota megi
í hæfilegu magni til að blanda í fæðu
og hæta hana. Sama máli mundi gegna
um vitamínþéttu (,,concentrat“) sem
hreint viíamin í þessu sambandi.
Ad 2: Svo er að sjá, að það sé aðal-
lega eða eingöngu vítamínmagnið i
efnablöndunum Adesol og Sanasol,
sem þeim er talið til gildis. Sum vita-
mínanna leysast upp í olíu, en önnur
í vatni, hefur þeirra vafalaust verið
aflað sitt í hverju lagi að mestu, en
síðan blandað saman i viðeigandi upp-
lausnarefnum.
Af þvi, sem segir um Sanasol í máls-
skjali nr. 15, má ætla, að C-vítamínið,
eða a. in. k. nokkuð af því, teljist unn-
ið úr rósaraldinum og appelsinum. Um
Adesol er sagt í málsskjali nr. 34, að
í því sé lúðulýsi, og þá væntanlega
aðeins nokkrir dropar í 100 ml; og
skv. málsskjali nr. 1 virðist talið, að
calciferol sé bætt í þessa blöndu, enda
er hlutfallið ínilli A- og D-vítamina i
Adesol, eftir því sein gefið er upp á
sama stað, annað en gerist i lúðulýsi,
en lúðulýsi má teljast sem vitamín-
þétta. Að öðru leyti verður ekki séð,
hvort vítamínin séu fengin sem hrein
efni eða t. d. sem þéttuð upplausn,
dregin úr vítaminauðugu hráefni.
Þótt ætla megi, að eitthvað sé af
orkuefnum í blöndunum Adesol og
Sanasol, hlýtur magn þeirra að vera
svo lítið í þeim skammti, sem ætlazt
er til, að tekinn sé inn daglega, að ekki
skipti máli. Virðist mér þvi að öllu
athuguðu eðlilegt að telja þessar
blöndur vera fæðuuppbót eða lyf
frekar en fæðu.“
í bréfi sakadómara, dags. 9. janúar
1957, er þeirri spurningu beint til
Kristins Stefánssonar læknis, kennara
í lyfjafræði við háskólann, hvort hann
telji áður nefnd efni lyf eða ekki. í
bréfi, dags. 22. febrúar 1957, svarar
læknirinn á þessa leið:
„Sanasol er talið innihalda vítamín
A, D, B og C.
Samkvæmt rannsókn, framkvæmdri
af Atvinnudeild háskólans, finnast A
og C vítamín i Sanasol, en ekki verð-
ur séð, að reynt hafi verið að ákvarða
D og B vitamín. Fyrr greind vítamín
teljast öll lyf. Magn vítamína i Sanasol
er það mikið, að vænta mætti lækn-
andi verkana af þeim skömmtum, sem
ætlazt er til, að teknir séu. Gjört er
ráð fyrir, að Sanasol sé notað á þann
hátt, sem tíðkanlegt er um lyf.
a. Efnasamsetning
b. Magn virkra efna og
c. noíkunarform
einkenna lyf öðru fremur.
Adesol líkist Sanasol í fyrr greind-
um meginatriðum.
Laxatan virðist vera töflur, og inni-
heldur hver tafla 72,5 mg af phenol-
phthalein. Phenolphthalein er viður-
kennt lyf. Vænta mætti læknandi verk-
ana af þvi magni, sem greint er i töfl-
unum. Gjört er ráð fyrir að nota Laxa-
tan á þann hátt, sem tíðkanlegt er um
lyf.
Baldriana Beeren virðist innihalda
Valeriana-extrakt. Þetta efni hefur um
langt skeið verið notað sem lyf. Nokk-
ur óvissa rikir um læknandi gildi þess.
Ekki verður af fyrirliggjandi réttar-
skjölum ráðið, hversu mikið Valeriana-
extrakt sé í hverju „beri“, og því ó-
Ijóst, hvort gjört er ráð fyrir að nota
svipaðan skammt af Valeriana og tíðk-
anlegur er. Gjört er ráð fyrir að nota
Baldriana Beeren á þann hátt, sem
tíðkanlegur er um lyf.
Bierhefe Pulver virðist vera ölger
með dauðum gerlum. Þegar ölger er
ætlað til lækninga, eru gerlar venju-
lega drepnir i því. Bierhefe Pulver
virðist því vera sams konar ölger og
venjulega er notað til lækninga.
Mistelöl Gelatine Kapseln innihalda
engin þau efni, sem sannanlega hafa
læknandi verkanir. Gjört er ráð fyrir,
að Mistelöl Gelatine Kapseln séu not-
aðir svo sem tíðkanlegt er um lyf.
Immer Jiinger Knoblauch Beeren
innihalda engin þau efni, sem sannan-
lega hafa læknandi verkanir. Gjört er
ráð fyrir, að þau séu notuð svo sem
tíðkanlegt er um lyf.“
í bréfi landlæknis til dómsmála-
ráðuneytis, dags. 11. febrúar 1955, er
m. a. bent á eftirfarandi atriði:
„1. Eitt og sama efni getur verið
hvort tveggja í senn, lyf og annað en
lyf, þ. á m. einnig matur og iðnaðar-
i