Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Qupperneq 177
— 175 —
1956
Þórshafnar. Rottur hafa ekki sézt
hér í héraði fyrr en i sumar, að þær
komu á nokkra bæi í Þistilfirði frá
Raufarhöfn.
Seyðisfi. Mjög lítið ber á rottum.
Við önnur meindýr er ekki að stríða.
Vestmannaeyja. Heilbrigðisfulltrúi
lætur mönnum í té rottueitur og leið-
beinir um notkun þess, og má segja,
að með því sé rottugangi sæmilega
baldið i skefjum. Við húsaskíti eða
ve8gjalýs hefur ekki orðið vart.
19. Störf heilbrigðisnefnda.
Rvík. Heilbrigðisnefnd hélt 16 fundi
á árinu og tók til meðferðar 153 mál.
Nefndinni bárust 76 umsóknir um
leyfi til starfrækslu fyrirtækja eða til
breytinga. Auk þess samþykkti nefnd-
m uppdrætti að almenningsnáðhúsi í
Hljómskálagarði og heildarskipulags-
uPpdrátt að Kjötmiðstöð á Kirkju-
sandi, svo og uppdrátt að húsnæði
SIS þar. Önnur mál, sem heilbrigðis-
nefnd fjallaði um, voru: Frárennslis-
mál og holræsagerð rædd á 7 fund-
Urri. Samþykkt var að leggja til, að
erlendur sérfræðingur yrði ráðinn til
að gera tillögur um þau. Innpökkun
á sælgæti og kexi var rædd á 3 fund-
urn; Samþykktar voru leiðbeiningar
lyrir þá, sem vinna með blý. Rætt var
um hávaða frá 2 fyrirtækjum og þeim
lyrirskipað að framkvæma endurbæt-
Ur- Fjórum aðilum var gefinn ákveð-
inn frestur til að hætta búpenings-
haldi, og 3 var fyrirskipað að rífa
nrður úr sér gengin útihús. Nefndin
Suf 15 fyrirtækjum fyrirmæli um end-
urbætur og þrifnað, að viðlagðri lok-
l'n. Lokun kom til framkvæmda á 2
stöðum, samkvæmt kröfu nefndarinn-
ar- Ein matsala hætti störfum sam-
^væmt kröfum nefndarinnar vegna
elegs húnæðis. Bönnuð var notkun
salernis í fjölbýlishúsi vegna ófull-
nægjandi fráræslu. Leitað var umsagn-
ar nefndarinnar um 5 mál. Auk ofan-
rrtaðs ræddi nefndin ýmis önnur mál,
sem snerta verksvið hennar.
Lyjafsvíkur. Heilbrigðisnefnd hefur
1 rð eftir umgengni i plássinu, og get
8 tilfært ummæli ýmissa aðkomu-
anna á þá leið, að þeim finnist um-
gengni í plássinu góð og það þrifa-
legt. Byrjað var niðri við höfn á aðal-
sorpræsi fyrir þorpið (20 þuml. pípa).
Sett ný vatnsleiðsla fyrir þorpið sunn-
an Gils.
Flateyrar. Heilbrigðisnefndir aðeins
starfandi á Flateyri og Suðureyri.
Verkefni er nóg, en mesti timinn fer
í að ítreka fyrri samþykktir, og smátt
og smátt þokast þær í framkvæmd.
ísafi. Heilbrigðisnefnd hefur haldið
fáa fundi á árinu. Eftirlit var haft með
matvöruverzlunum, brauðgerðarhús-
um, mjólkurstöð, mjólkurbúðum, slát-
urhúsum og fiskbúðum, svo sem til er
ætlazt í heilbrigðissamþykkt. Enn
fremur var gengið ríkt eftir sómasam-
legri hirðingu sorpíláta og umgengni
utanhúss á bæjarlóðinni. Tekin var í
notkun nj' sorpbryggja, sem byggð var
að fyrirlagi nefndarinnar. Heilbrigðis-
fulltrúi hefur séð um þessa hluti í
samráði við héraðslækni.
Akureyrar. Heilbrigðisnefnd hélt
fundi, þegar þurfa þótti og tilefni var
til. Ýmsar kvartanir bárust heilbrigð-
isnefnd, og voru þær afgreiddar, svo
fljótt og vel sem kostur var á í hvert
skipti. Oft gátu héraðslæknir og heil-
brigðisfulltrúi afgreitt minna háttar
mál án þess að kalla saman fund í
nefndinni, en ef ekki tókst að leysa
málið á þenna hátt, fékk nefndin þau
til meðferðar á fundum sínum.
Vestmannaeyja. Heilbrigðisnefnd
beitti sér aðallega fyrir útrýmingu úti-
kamra i sambandi við sérstaka her-
ferð í þeim málum. Einnig beitti
nefndin sér sérstaklega fyrir lagfær-
ingu á hreinlæti við höfnina.
Hafnarfi. Heilbrigðiseftirlitið rekið
með sama hætti og áður. Heilbrigðis-
fulltrúi lítur eftir þrifnaði, utanhúss
og á götunum i bænum. Enn frernur
hefur hann ásamt héraðslækni eftirlit
með hreinlæti i mjólkur- og matvöru-
búðum og fiskbúðum. Sýnishorn eru
tekin öðru hverju af vatni úr vatns-
veitu bæjarins til rannsóknar og úr
sundlaug bæjarins. Hefur tekizt að
halda vatninu i henni sæmilega
hreinu.
Kópavogs. Heilbrigðisnefnd hélt 8
fundi og fór tvisvar eftirlitsferð um
kaupstaðinn. Samdi frumvarp að heil-