Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Side 136
1956
134 —
kantinum. Sami bilstjórinn hér í pláss-
inu hefur tvisvar fótbrotnað af því að
þessi hringur hefur losnað frá hjólinu
harðpumpuðu, og í annað skiptið
hrokkið í fót honum og valdið sköfl-
ungsbroti, en i hitt skiptið stóð bíl-
stjórinn á hringnum (á lijólinu flötu),
er hann losnaði og þeytti manninum
í loft með þeim afleiðingum, að con-
dylus medialis tibiae brotnaði frá
(líklega snöggt og geysiöflugt átak
orðið á ligamentum mediale, er kippt
hefur með sér stykki úr tibia).
Stykkishólms. Alltaf er töluvert um
slys, en flest smávægileg. Fract. tibiae
2, Collesi bilateralis 1, cruris 1, clavi-
culae 1, fibulae 1, lux. humeri 1, Auk
þess fjöldi af ýmiss konar smáslys-
um, svo sem skurðir, mör, stungur,
smábrunar, tognanir, aðskotahlutir í
holdi og augum. 1 dauðaslys varð á
árinu. Unglingspiltur héðan úr Stykk-
ishólmi fór á rjúpnaveiðar með öðr-
um manni héðan. Er þeir voru að
ganga upp fjallshlíð, hljóp skot úr
byssu félaga hans og lenti i brjósti
piltsins ofanvert og rétt vinstra megin
við hjartað. Varð það mikið svöðusár,
og mun pilturinn hafa beðið bana
samstundis.
Búðardals. 6 ára drengur datt í
sjóinn út af bryggju. Náði faðir hans
honum meðvitundarlausum. Komst
hann eftir alllangan tíma til meðvit-
undar og náði sér fullkomlega. 12 ára
stúlka datt úr allmikilli hæð á horn á
steinvegg. Var að leik úti i hlöðu. Ein-
kenni bentu til innri blæðingar. Var
send á Landsspítalann og reyndist
hafa miltisruptur. 2 ára barn datt ofan
úr glugga á efstu hæð niður á kjall-
aratröppur um 7 m fall: Fract. fe-
morsis & cranii. Náði sér vel. Fract.
radii typica 2, bimalleolaris 1, hu-
meri 1, tibiae 1.
Patreksfj. Fá og smá slys, innlend.
Erlendir togarasjómenn koma oft mik-
ið slasaðir, einkum Þjóðverjar. Virð-
ast þeir sækja veiðar af meira kappi
en forsjá. 2 minna háttar bílslys. 1 rif-
beinsbrot, er dráttarvél rann á hús-
bónda sinn.
Þingeyrar. Commotio cerebri 1,
combustiones 2, fract. costarum 7,
fibulae 3, pedis 1, radii 4, ulnae 1,
corpus alienum 9, contusio 15, dis-
torsio 6, vulnera incisiva, lacerata,
contunda et puncta diversis locis 27.
Flateyrar. IV2 árs gamalt barn
brenndist á brjósti, baki og handleggj-
um. Hafði náð í pott með sjóðandi
vatni og hvolfdi þvi yfir sig. 2 bíl-
slys: Bílstjóri skarst á höfði og fékk
commotio cerebri, er bíllinn rann út
i skurð. Vörubill valt með þeim af-
leiðingum, að einn, er i sat, skarst á
höfði og eyra rifnaði nærri af, en auk
þess kom sprunga i 6. hálslið. Bíl-
stjórinn skarst mikið á höfði, 2 und-
ust, annar i ökla, hinn i hné.
Bolungarvíkur. Telpa á 4. ári lenti
með hægri hönd i rafmagnshakkavél.
Var höndin að mestu tekin af um
framanvert miðhandarbein. Sárið greri
per primam, eftir að það hafði verið
saumað saman og búið um það. Engin
tök voru að koma barninu burtu, þar
eð Hlíðin var ófær og ólendandi við
brimbrjótinn. Af minna háttar slysum,
sem fyrir komu á árinu, má nefna
eftirfarandi: Ungur maður datt að
næturlagi niður á brimbrjót, og brotn-
aði á honum önnur hnéskelin. Fékk
hann meðferð hér heima. 12 ára göm-
ul telpa datt á reiðhjóli og fékk brot
og epiphyseolysis á neðra enda sköfl-
ungs. Send á sjúkrahús ísafjarðar.
Gömul kona með fract. Collesi. Lækn-
ismeðferð hér heima.
Djúpavíkur. Það leiðinlega slys varð
að Dröngum, nyrzta bænum i Djúpa-
víkurhéraði og mjög afskekktum, að
barn á 3. ári lenti með hönd á vélsög
og meiddist illa. Barnið var flutt til
Djúpavikur i skyndi, en þangað kom
ég á móti. Við skoðun sást, að húðin
á handarbaki var illa rifin og í sund-
ur sinar þriggja fingra. Við oliulampa
og vasaljós staglaði ég þetta saman.
Barnið er nú jafngott í hendinni. Önn-
ur slys: commotio 5, distorsio 10, vul-
nera incisa 20, puncta 5, combustio 3,
fract. claviculae 3, costae 3, malleoli
et fibulae 2, femoris 1, phalangis 3,
ulnae et radii 1, lux. humero-scapu-
laris 2.
Hólmavíkur. Slys eða meiðsli á
mönnum eru varla teljandi. Fract.
ossis navicularis manus á tvítugum
manni. Önnur meiðsli engin utan smá-