Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 156
1956
154 —
ara samlaga. Heilsuverndarstöð Akur-
eyrar hóf eftirlits- og ráðleggingar-
starfsemi fyrir þungaðar konur hinn
15. september 1956, og mættu 86 konur
til þessara rannsókna, og framkvæmd-
ar voru 205 rannsóknir í þann 3%
mánuð, sem þessari starfsemi var
haldið uppi á árinu, en hana annaðist
Bjarni Rafnar læknir og yfirljósmóð-
ir Sjúkrahúss Akureyrar, Ingibjörg
Björnsdóttir.
Grenivíkur. Sjúkrasamlagsgjald hjá
Sjúkrasamlagi Grýtubakkahrepps kr.
300,00 á ári, % til lyfja þeirra, er
greiða má. Afkoma samlagsins með
betra móti. Ekki heyri ég neinar óá-
nægjuraddir gagnvart því.
Vestmunnaeyja. Heilsuverndarstöðin
tók til starfa í nýjum húsakynnum í
ársbyrjun. Þarna er fengin ágæt að-
staða fyrir heilsuverndarstarfsemi
bæjarins. Berklavarnastöðin er norðan
megin i húsinu uppi. Sunnan megin
er gengið inn i ungbarnaeftirlitið.
Þar er ágæt vagnageymsla niðri, en
uppi rúmgóðar vistarverur fyrir bið-
stofur, skrifstofu hjúkrunarkonu, ljósa-
herbergi, skoðunarherbergi læknis, svo
og biðherbergi fyrir barnshafandi
konur, en ætlazt er til, að aðstaða
verði fyrir slíkt eftirlit á þessum stað.
Þarna er einnig skrifstofa heilbrigðis-
eftirlitsins, þar sem meðal annars heil-
brigðisfulltrúi starfar og hefur bæki-
stöð sína. Á efsta lofti hússins er ibúð
heilsuverndarhjúkrunarkonu, nudd-
konu og hjúkrunarkonu frá sjúkrahús-
inu. Á neðstu hæð er nudd- og ljós-
lækningastofa, sem bærinn lætur
nuddara í té. í húsakynnum heilsu-
verndarstöðvarinnar fer einnig fram
skólaeftirlit, þ. e. skólaskoðanir, vegna
skorts á húsrými í barnaskólanum.
Hjúkrunar-, líknar- og styrktarfélög
eru hér 3 starfandi: Kvenfélagið
„Likn“, Rauðakrossdeild Vestmanna-
eyja og félagið „Krabbavörn“. Rauða-
krossdeildin starfrækir eins og áður
sjúkrabifreið í bænum. „Krabbavörn“
styrkti verulega kaup röntgentækja
til sjúkrahússins. Sjúkrasamlag Vest-
mannaeyja starfaði eins og undanfar-
in ár. Á árinu starfaði eins og áður
heilsuverndarstöð, berklaeftirlit og
ung- og smábarnavernd.
C. Rannsóknarstofa Háskólans.
Prófessor Níels Dungal hefur gert
eftirfarandi skýrslu um störf hennar
á árinu 1956:
Berklaveiki: Jákvæð Neikvæð Samtals
Hráki, smásjárrannsókn 45 559 604
Ræktun úr hráka 238 1295 1533
— — þvagi 24 258 282
magaskoli 19 385 404
— — ígerð 5 26 31
— — liðvökva 1 11 12
— — brjóstholsvökva 4 20 24
— — lungum 12 25 37
— — mænuvökva - 13 13
— — ýmislegu 47 87 134
395 2679 3074
Taugaveiki:
Widalspróf: ± JákvæB NelkvæO Samtal*
Typhus .................... - - 64 64
Paratyphus ................ 1 2 61 64
Ræktun úr saur .............. - 1 1
1
2
126
129