Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Qupperneq 134
1956
— 132 —
Kópaskers. Læknir viðstaddur um
þriðjung fæðinga. 1 tvíburi fæddist
andvana eftir erfiða fæðingu. Önnur
fæðing tók um 3 sólarhringa (frum-
byrja).
Þórshafnar. Öllum konunum heils-
aðist vel, og öll börnin lifðu. Tók einu
sinni á móti barni í forföllum ljós-
móður. 1 töng hjá primigravida. Stöðv-
aðist höfuð í miðri grind í fram-
höfuðstöðu. Var kollega minn staddur
hér. Svæfði hann konuna, og gekk svo
aðgerðin vel, en konan rifnaði niður
að endaþarmi, enda fóstur stórt. 1
andlitsfæðing hjá primigravida. Gekk
fæðing mjög seint, en án aðgerðar.
1 praeeclampsia, og heilsaðist kon-
unni vel. Kona, komin 6 mánuði á
leið, fékk pyelitis og kom það fæð-
ingu af stað. Er að var komið, var
legvatn farið, framfallinn, púlslaus
lækur og fóstur i þverlegu. Snúningur
mistókst og konan þá send með flug-
vél til Akureyrar. 3 fósturlát komu
fyrir, 2 þeirra skafin út, en hið þriðja
hreinsaðist af methergíni og pitúit-
ríni.
Vopnafj. Hjá 30 ára frumbyrju gekk
fæðing mjög seint vegna framhöfuð-
stöðu. Barnið tekið með töng í chloro-
formsvæfingu, þar eð móðirin var
orðin aðþrengd. Konum og börnum
farnaðist vel.
Norður-Egilsstaða. Engar meira
háttar aðgerðir vegna fæðinga. 1 jan-
úar var ég við fæðingu uppi í Fljóts-
dal, en þann sama dag var bráðafæð-
ing hjá konu í Fellunum. Var collega
minn Ari Jónsson kallaður til. Hafði
konan fætt andvana ófullburða barn.
Blæðing var allmikil og lost það mik-
ið, að konan andaðist stuttu siðar, án
þess að við yrði ráðið. Kona ein úr
héraðinu fæddi á sjúkraskýlinu. Fæð-
ing gekk vel, en fylgja var föst, og
þurfti að sækja hana með hendi. Kom
þá i ljós, að um placenta bipartita var
að ræða, tvær jafnstórar, eins og með-
alundirskál að stærð með streng á
milli.
Bakkagerðis. Fæðingar gengu frem-
ur vel. 1 kona hafði praeeclampsia
og lá 3 vikur fyrir fæðingu. Heilsaðist
báðum sæmilega. Vissi ekki um fóst-
urlát.
Seyðisfí. Fæðingar með alfæsta móti.
Flestar fæddu konurnar i sjúkrahús-
inu. Læknir var viðstaddur 6 sinnum,
aðallega til hugarhægðar fyrir kon-
urnar. Hér hefur ekki þurft að grípa
til fæðingartangar 6 síðustu árin. Mér
er kunnugt um 2 fósturlát á árinu.
Hreinsa þurfti leg annarrar konunn-
ar eftir blæðingu.
Nes. Fæðingar gengu yfirleitt vel.
Fósturlát 5, mér kunn.
Búða. Tilefni vitjana til sængur-
kvenna oftast óskir um deyfingu eða
til að herða á sótt. Kunnugt um eitt
fósturlát.
Djúpavogs. Abortus completus (ca.
3 mánaða), án komplikationa (hefur
tvisvar áður misst fóstur).
Vestmannaeyja. 1 barn fæddist and-
vana, en annað dó skömmu eftir fæð-
ingu. Tviburar fæddust þrisvar og
lifðu allir. 1 kona dó úr fæðingar-
krampa viku eftir fæðingu tvibura,
sein annars hafði gengið vel. Annars
lítið um afbrigðilegar fæðingar. Einu
sinni lögð á töng vegna sóttleysis og
einu sinni gerður framdráttur. Einu
sinni var gert við utanlegsþykkt og
tvisvar sinnum við blöðruegg. Ljós-
mæður geta ekki fósturláta, en 14
sinnum var skafið út leg á sjúkrahús-
inu hér vegna fósturláta. Abortus pro-
vocatus ekki gerður á árinu. Annars
gengu fæðingar vel, og þurfti eigi sér-
stakra læknisaðgerða við, en þó var
læknir viðstaddur flestar fæðingarnar
til að deyfa í kollhrið. Alls fæddu 122
konur 125 börn, þar af þrenna tvi-
bura, sem allir lifðu. 1 kona fékk fæð-
ingarkrampa, sem leiddi til dauða
viku eftir tviburafæðingu, sem hafði
gengið vel. Öllum öðrum konum heils-
aðist vel. 1 barn fæddist andvana,
vanskapningur, og annað lifði aðeins
í 6 klst., en það fæddist 12 vikum
fyrir tíma.
Hvols. Meira háttar blæðing post
partum stöðvaðist að lokum með því
bæði að halda við leg í langan tíma
og gefa ergometrín i æð.
Hellii. Fæðingar gengu yfirleitt vel.
í eitt skipti lögð á lág töng vegna
partus protractus. í eitt skipti var
föst fylgja. Reyndi fyrst Credé-tak í