Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 183
181
1956
en öll líffæri svo rotin, að ekki
var unnt að úrskurða dánaror-
sök.
23. 3. maí. Þ. B. G.-son, 4 mánaða.
Fékk krampaköst eftir fæðinguna,
og mánuði fyrir andlát fékk barn-
ið kýli, sem ekki er greint frá,
hvar var. Barnið vaknaði að
morgni, frískt að sjá, en klukku-
tíma seinna var það dáið. Við
krufningu fundust blæðingar í
báðum nýrnahettum, og hafði það
leitt barnið til bana. tJr lifur óx
þéttur gróður af streptococcus
viridans.
24. 12. maí. Þ. J.-dóttir, 70 ára. Hneig
niður heima hjá sér og var þegar
örend. Við krufningu fannst mikil
kölkun í báðum kransæðum
hjarta. Hin vinstri var svo til al-
veg lokuð og mikil þrengsli einnig
í hinni hægri. Mikil fibrosis i
hjartavöðva.
^5- 14. mai. G. L. D.-dóttir, 30 ára.
Fannst hengd heima hjá sér, þar
sem hún hafði búið með manni
um skeið. Suicidium.
30. mai. M. E.-dóttir, 2 ára. Datt
af 4. hæð úr glugga á steinsteypta
stétt. Dó 3 klst. seinna. Við krufn-
ingu fannst brot framan til á höf-
uðkúpu, og hafði blætt þar milli
heila og höfuðbeina. Heili hafði
niarizt mikið og var sundurtættur
á stóru svæði.
7* júni. M. M.-son, 44 ára. Varð
bráðkvaddur á heimili sínu. Við
krufningu fannst þversprunga á
aorta, og hafði blóð rutt sér braut
niilli laga i æðinni og inn í goll-
urshús (aneurysma dissecans),
bar sem það brauzt inn með mik-
„ iHi blæðingu.
19- júní. G. B. E.-son, 24 ára. Datt
skyndilega, er hann var i knatt-
leik, og var þegar örendur. Við
krufningu fannst enginn sjúk-
dómur, sem útskýrt gæti dauða
niannsins. Hins vegar fannst
status thymico-lymphaticus, með
stórum eitlum og þröngri aorta.
29' 20. júní. S. K. S.-son, 83 ára.
Fannst örendur í höfninni. Við
krufningu fundust greinileg'
drukknunareinkenni. Enn fremur
stækkað hjarta, bjálkablaðra og
hydronephrosis. Mikil kölkun i
kransæðum og heilaslagæðum.
30. 23. júní. S. O. H.-son, 35 ára.
Fannst hengdur i útihúsi. Hafði
verið þunglyndur. Greinileg heng-
ingarrák á hálsi. Á úlnlið sáust
merki eftir hníf, sem bentu til
þess, að hann hefði reynt að skera
á slagæðina þar.
31. 30. júní. V. Ó.-son, 60 ára. Var á
gangi á götu, er bíll ók á hann
með þeim afleiðingum, að hann
lézt tæpri klst. síðar. Við krufn-
ingu fannst mjög mikið brot á
höfuðkúpubotni, sem skrölti laus
að miklu leyti, svo að þetta hefur
leitt manninn fljótlega til bana.
32. 3. júlí. Ó. L.-son, 40 ára. Fannst
látinn undir kletti utanbæjar. Við
krufningu fannst þverbrot á 6. og
7. hálslið, og var mænan marin
þar undir. Þetta hefur valdið
bráðum bana. Auk þess fundust
ýmis merki um ytri áverka og
ferskt brot á olnboga. Af mari,
sem var á háhvirfli, virtist mega
ráða, að maðurinn hefði steypzt
á höfuðið úr syllu i klettinum,
þar sem úr hans og koníaksflaska
fannst. í blóði mannsins fannst
1,90%C vínandi.
33. 3. júlí. H. J. J.-son, 34 ára. Var
fáviti, sem fékk köst með miklu
rugli. Var að drekka kaffi, er
kaka stóð í honum, og dó hann
rétt á eftir. Við krufningu fannst
barkakýlið fullt af kekkjum, sem
sýnilega voru komnir upp úr
maganum. Sams konar kekkir
fundust i barka og lítið eitt í vé-
lindi. Heilinn vó 1180 g, með
mikrogyri í lobi frontales.
34. 3. júli. S. B.-son, 46 ára. Fór upp
úr rúmi um miðja nótt og kvart-
aði um ógleði. Fannst skömmu
seinna látinn í baðherberginu. Við
krufningu fannst enginn sjúk-
dómur, sem útskýrt gæti dauða
mannsins, enda var líkið orðið
mjög rotið.
35. 9. júlí. Á. J.-son, 57 ára. Fannst
látinn i stofu sinni, sitjandi á
legubekk, en mikið af tómum á-
fengisflöskum allt í kringum