Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 184
1956
182 —
hann. Við krufningu fannst út-
breidd bólga í neðra hluta v.
lunga. Mikil fita í lifur. í blóði
0,98%„ vínandi.
36. 11. júlí. Óskírt sveinbarn, 2 mán-
aða. Veiktist skyndilega að
morgni, en var dáið, er læknir
kom 3 klst. seinna. Við krufningu
fannst lungnabólga í báðum lung-
um neðanverðum, og úr bólgunni
óx bacterium coli og stafylo-
kokkar.
37. 16. júlí. S. G.-son, 4 ára. Lenti i
bílslysi og dó daginn eftir i
sjúkrahúsi. Við krufningu fannst
stórt brot á höfuðkúpu og kúpu-
botni. Enn fremur brot á hægra
upphandlegg og hægra viðbeini.
38. 18. júli. A. Þ. Ó.-son, 49 ára.
Fannst látinn í herbergi sínu, eftir
að hann hafði verið drukkinn í
marga daga samfellt. Hafði verið
berklaveikur. Við krufningu
fannst, auk menja eftir gamla,
gróna berklaveiki i v. lunga, svæs-
in lungnabólga i öllu lunganu.
Auk þess mikil og stór fitulifur.
39. 26. júlí. F. Ií.-son, 47 ára. Var að
aka börum með steinsteypu, er
hann hné niður og var þegar
örendur. Við krufningu fannst
stækkað hjarta (580 g) og lokun
á v. kransæð.
40. 27. júlí. A. P.-son, 27 ára. Fannst
látinn á legubekk i stofu, sem
hann hafði á leigu, er hann gisti
í Reykjavík. Við rúmstokkinn
fannst tómt meðalaglas, sem í
höfðu verið 30 töflur af mebumal-
natrium daginn áður. Auk þess
tvö bréf, sem báru með sér, að
maðurinn hafði ákveðið að stytta
sér aldur. Við krufningu fannst
enginn sjúkdómur. Upplýsingar
lögreglunnar og rannsókn á maga-
innihaldi bentu til, að maðurinn
hefði dáið af stórum skammti af
mebumal-natrium.
41. 30. júlí. R. K.-son, 34 ára. Var
fangi á Litla-Hrauni, þar sem
hann náði i riffil og skaut sig.
Við krufningu fannst riffilskotsop
ofan við hægra eyra, en kúlan
fannst inni heila. Suicidium.
42. 4. ágúst. Ó. Ó.-dóttir, 77 ára. Líkið
hafði verið kistulagt heima, og
vissi enginn, hvenær konan hafði
dáið né af hverju. Við krufningu
fundust engar greinilegar sjúk-
dómsbreytingar, nema gallsteinar,
enda var líkið orðið mjög rotið,
er krufning var úrskurðuð. En
við smásjárskoðun fannst krabba-
mein í lunga („oat cell“).
43. 7. ágúst. J. S.-son, 72 ára. Fannst
látinn í íbúð sinni. Við krufningu
fannst mjög stækkað hjarta (530
g) og lokun á vinstri kransæð.
44. 7. ágúst. A. K.-son, 37 ára. Hafði
drukkið heila nótt með öðrum
manni, sem fór til vinnu uin
morguninn. Er hann kom heim
fyrir hádegi, var gestur hans lát-
inn. Við krufningu fannst mikil
þykknun á vinstri kransæð, svo
að æðin var því sem næst lokuð.
45. 18. ágúst. J. Ó. Þ.-son, 2 ára. Varð
fyrir bil og dó svo að segja sam-
stundis. Við krufningu fundust
mikil brot á kúpubotni og miklar
skemmdir á heilavef, sem hafði
tætzt sundur á stóru svæði.
46. 20. ágúst. H. S.-son, 68 ára. Dó
skyndilega án áberandi veikinda.
Við krufningu fannst svæsin
berkjubólga og bólga i neðstu
hlutum beggja lungna. Allir brjóst-
vöðvar voru rýrnaðir, og hefur
það gert manninum lítt mögulegt
að hósta upp úr lungunum.
47. 28. ágúst. P. B.-son, 64 ára. Var
að vinna í skipi, er hann hné
skyndilega niður örendur. Við
krufningu fannst hjarta stækkað
(495 g) og vinstri kransæð kölk-
uð og svo til lokuð á stóru svæði.
Mikil fibrosis í hjartavöðva.
48. 29. ágúst. G. S. Þ.-dóttir, 59 ára.
Hafði lengi verið veik af asthma.
Fannst hengd niðri í kjallara
heima hjá sér. Við krufningu
fundust engin merki um sjúkdóm,
nema lítils háttar stækkun á
hjarta (420 g). Hengingarrák var
á hálsi. Suicidium.
49. 4. september. K. J.-son, 61 árs.
Var borinn út úr brennandi húsi
og andaðist samdægurs. Við lík-
skoðun og krufningu fundust
mikil brunasár á handleggjum og