Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Page 76
1956
— 74
Sauðárkvóks. Fæst tilfelli skráð á
3. fjórðungi ársins.
Hofsós. Ovenjulítið um kvef á árinu.
Má vera, að orsökin sé sú, að mestu
kvefmánuði ársins, janúar og febrúar,
gekk mænusóttarfaraldur í Sauðár-
krókshéraði og samgöngur því minni
en venjulega, bæði út úr héraðinu og
innan þess. Samkomur féllu að mestu
niður um áramótin, en þær munu oft
eiga ríkan þátt i því að dreifa farsótt-
um um sveitirnar. Seinast í desember
hófst kveffaraldur í héraðinu, sem
náði ekki hámarki fyrr en eftir ára-
mót. Fylgdi þvi allhár hiti og í því
nær öllum tilfellum hæsi. Hjá ung-
börnum bar mikið á stridor og önd-
unarerfiðleikum. Talsvert um fylgi-
kvilla, einkum í sveitunum, þar sem
ekki var hægt að fylgjast eins með
sjúklingunum. í Fljótum fengu t. d. 6
sjúklingar pneumonia á einni viku.
Ólafsfj. Varð vart í febrúar og júni,
en ákveðinn faraldur i nóvember og
desember. Lagðist einkum á börn og
unglinga.
Akureyrar. Ekki verið um neina
kveffaraldra að ræða, nema í desem-
ber, en þá gekk hér slæm kvefpest.
Grenivíkur. Alimikið um kvefsótt á
árinu, mest í júlí.
Þórshafnar. Nokkur tilfelli allt árið,
en yfirleitt væg. Fengu margir bron-
chitis upp úr henni i desember, og
fleiri en skráðir eru kvefuðust þá, þar
eð af mörgum fréttist af afspurn.
Vopnafj. Stakk sér niður.
Norður-Egilsstaða. Annað veifið allt
árið, en ekki vart fylgikvilla. Nokkur
börn fengu tracheobronchitis acuta
með háum hita og sum með miklum
stridor, en batnaði öllum vel við anti-
biotica (achromycin eða pensilín).
Bakkagerðis. Skrásett alla mánuði
ársins, nema september og nóvember.
Nokkur tilfelli af otitis media í börn-
um sem fylgikvilli. Batnaði öllum vel
af pensilíni eða súlfalyfjum.
Seyðisfj. Eins og oftast áður algeng-
asti kvillinn, dreifð tilfelli yfir allt árið.
Nes. Tíð að vanda.
Búða. Eins og að undanförnu mjög
tíður kvilli.
Víkur. Líkt og vanalega fram í nóv-
ember, en þá hef ég skrifað: „Kvef-
pest að ganga og ætti ef til vill frekar
að teljast inflúenza, einkum í mán-
aðarlokin.“ Enda var greinilegur in-
flúenzufaraldur í desember.
Vestmannaeyja. Með allra mesta
móti. Langmest í desember, og fylgdu
því allmörg lungnabólgutilfelli.
Eyrarbakka. Alltaf er kvef á ferð-
inni. Aldrei skráð öll tilfelli, sem vit-
að er um.
Hafnarfj. í öllum mánuðum ársins.
Munur á sjúklingatali lægsta mánaðar
sumarsins og hæsta mánaðar vetrar-
ins 1:4.
3. Barnaveiki (diphtheria).
Töflur II, III og IV, 3.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. „ 1 „ „ „
Dánir „ 1 „ „ „
Ekkert tilfelli skráð á árinu, og mun
veikin hvergi hafa gert vart við sig.
Er það þriðja árið í röð, sem eiður
er sær í því efni, en barnaveiki að
marki hefur ekki gengið í landinu
síðan 1943. Viða er kappsamlega bólu-
sett gegn barnaveiki, og mætti þó bet-
ur gera.
Norður-Egilsstaða. Engar bólusetn-
ingar hafa verið framkvæmdar gegn
barnaveiki á árinu, og virðist fólk
alveg hætt að óttast þá veiki.
Vestmannaeyja. Varð ekki vart. Öll
börn, sem til náðist á 1. aldursári,
voru bólusett.
4. Blóðsótt (dysenteria).
Töflur II, III og IV, 4.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 1 6 4 26 1
Dánir
1 blóðsóttartilfelli er skráð í Reykja-
vík og er nefnt amoebiasis, en frekari
grein ekki gerð fyrir. Að öðru leyti er
veikinnar ekki getið á árinu.
5. Heilablástur
(encephalitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 5.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 8 11 16 20 9
Dánir „ „ 3 „ „