Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Síða 126
1956
— 124
sjúkrahúslegudagar á hvern mann í
landinu (1955: 3,3), á almennum
sjúkrahúsum 2,2 (2,1) og heilsuhælum
0,40 (0,44).
Sjúkdómar þeirra sjúklinga, sem
lágu á hinum almennu sjúkrahúsum á
árinu, flokkast þannig (tölur síðasta
árs í svigum):
Farsóttir 2,92 % ( 2,56 %)
Kynsjúkdómar . . 0,02 — ( 0,03—)
Berklaveiki 0,70 — ( 0,89—)
Sullaveiki 0,03 — ( 0,05—)
Krabbamein og illkynjuð æxli 3,19 — ( 3,45—)
Fæðingar, fóstur- lát o. þ. li. ... 23,44 — (22,49—)
Slys 6,69 — ( 6,83—)
Aðrir sjúkdómar 63,01 — (63,70 —)
Akranes. Aðsókn að sjúkrahúsinu
mun meiri en áður, og kemur allmikið
af sjúklingum utan héraðs þangað,
einkum lir Borgarfirði, Mýrum og
Snæfellsnesi. Verða sjúklingar oft að
bíða eftir plássi. Byrjað er nú á bygg-
ingu húss fyrir yfirlækni og annað
starfsfólk sjúkrahússins, og fæst þá
aukið rúm í sjúkrahúsinu fyrir sjúk-
linga. Um aðsókn að læknum eru ekki
skýrslur fyrir hendi.
Ólafsvíkur. Ferðir 63 á Hellissand,
í Fróðárhrepp 9, í Breiðuvíkurhrepp
15, að viðbættri 1 skólaskoðunarferð,
í Staðarsveit 4, að viðbættri 1 skóla-
skoðunarferð, vegna mænusóttarbólu-
setningar i Staðarsveit 2 ferðir, í
Breiðuvik 2 og í Fróðárhrepp 2.
Þingeyrar. Auk annarra læknisferða
var mín vitjað 70 sinnum í skip.
Flateyrar. Augnlæknir og tannlækn-
ir komu hingað, hinir sömu og áður.
Hvammstanga. Eknir voru i læknis-
ferðum 12000 km.
Blönduós. Aðsókn að lækni með
svipuðu móti og áður, eða sízt ininni
en árið áður, eftir að héraðinu var
skipt. Aðsókn að spítalanum stórum
meiri. Ferðir voru með fæsta móti,
t. d. engin í janúar innanhéraðs, enda
mátti lieita, að allar samgöngur lægi
niðri og ófært væri með öllu um hér-
aðið sökum fannkyngi, en heilsufar
gott, sem betur fór. Ferðir alls 107,
samtals 5762 km, þar af voru sjúkra-
vitjanir út um sveitir innanhéraðs 76
og ekin vegalengd 3752 km, ferðir til
skólaskoðana og mænusóttarbólusetn-
inga innanhéraðs 12, vegalengd 642,
12 ferðir til Höfðakaupstaðar, 4 til
Sauðárkróks og 3 til Hvammstanga. I
ferðunum til Sauðárkróks voru gerðir
2 keisaraskurðir, annar vegna grind-
arþrengsla, hinn vegna fyrirsætrar
fylgju, aðgerð vegna utanlegsfósturs
og brottnám á belgæxli i eggjakerfi.
í Hvammstangaferðunum var tvisvar
lekinn botnlangi með drepi, en i 3.
skiptið var um að ræða sprungið belg-
æxli ásamt vöðvaæxlum í legi, og var
legið numið burt ásamt belgnum.
Sauðárkróks. Aðsókn að lækni mik-
il. Sjúklingafjöldi á sjúkrahúsi sami
og áður, en legudagafjöldi heldur
minni.
Höfða. Læknisferðir fremur fáar.
Hofsós. Sjúkravitjanir út um sveitir
með fæsta móti. Auk læknisferða 7
ferðir vegna kjötskoðunar í Haganes-
vík.
Breiðumýrar. Ferðir 230, þar af 185
innanhéraðs, en 45 út úr því, flestar í
Húsavíkurhérað, en einnig i Kópa-
skers- og Grenivikurhérað. Eru það
allmiklu færri ferðir en undanfarin
ór, eða % af ferðafjölda þriggja sið-
ustu ára. Á hinn bóginn hefur aðsókn
að lækni heima fyrir, svo og sjúkra-
húsvist héraðsbúa, verið svipað og
undanfarin ár.
Kópaskers. Hef ekki haldið skrá
yfir ferðafjölda, en þær eru margar.
Norður-Egilsstaða. Aðsókn að lækni
nokkuð mikil, að minnsta kosti þeirra,
sem ekki eiga mjög langt að sækja.
Nes. Ferðir í Norðfjarðarhrepp 46
og til Mjóafjarðar 5.
Hafnar. Ánnriki með mesta móti,
en verulegur hluti þess heilsuverndar-
störf, bólusetningar, skólaeftirlit o. fl->
að ógleymdri mænuveikibólusetningu,
sem er tímafrek í víðáttumiklu og tor-
færu héraði.
Vestmannaeyja. Miðað við lyfseðla-
fjöldann 22645 i ár á móti 22529, seni
afgreiddir voru hér frá lyfjabúðinni,
mætti telja aðsókn að læknum svipaða