Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 175
— 173
1956
Flugvöllurinn er nokkuð langt frá
byggð. Var gjöf þessi bæði þörf og
rausnarleg.
Flateyrar. Einkum mikið lif i
kvennadeildunum.
Isafj. Slysavarnir annast karla- og
kvennadeildir Slysavarnafélags ís-
lands, sem báðar starfa af áhuga. Sér
karladeildin um skipbrotsmannaskýlin
í Sléttuhreppi og sæluhús á Breiða-
dalsheiði. Er þessi starfsemi öll hin
merkasta. Til orða liefur komið að
reyna að fá því til leiðar komið, að
leiðarmerki verði sett á heppilega
staði með hinni löngu en mannlausu
strönd um Hornstrandir, sem bendi á
stytztu leið til skýlis. Tel ég þetta að-
kallandi.
Grenivíkur. Skipbrotsmannaskýlin i
héraðinu eru í góðu lagi, þó ekki sé
algjörlega búið að ganga frá skýlinu
a Þönglabakka. Bjarghringur og stjaki
eru hér á bryggjunni á Grenivík. Ung-
bngar og börn frá 10—11 ára eru nú
°rðin svo vel synd, að þau bjarga sér,
ef þau t. d. dyttu út af bryggju.
Bakkagerðis. Stofnuð var slysa-
''arnadeild og haldið námskeið til að
kenna hjálp í viðlögum.
Vestmannaeyja. í góðu lagi í sam-
bandi við fiskveiðarnar, og er nú
orðið fátíður viðburður, að maður
tarist við sjóvinnustörf.
16. Tannlækningar.
. Stykkishólms. Nokkuð bætir það úr
astandinu, að tannlæknir kemur hér
venjulega á hverju sumri, og ég hef
ha alltaf undirbúið komu hans með
Þvi að vera búinn að hreinsa allmarga
munna, og smíðar hann síðan gervi-
ennur i þá og gerir við eitthvað af
skemmdum tönnum. En vera hans hér
er yfirleitt allt of stutt til þess að
°*a að verulegum notum. Úr þessu
verður ekki bætt að fullu, fyrr en
annlæknir verður búsettur í hérað-
]I1V- Hann ætti að geta annazt tann-
ækningar við skólana hér á Snæfells-
nesi og ætti að geta haft nægilegt að
starfa.
h ÍLey*bó/a. Æskilegt, að héraðsbúar
e ou meiri skilyrði til að fá tannvið-
gerðir, t. d. að lærður tannlæknir
kæmi hér oftar.
Höfða. Stefán Pálsson tannlæknir
kom hingað í maí og framkvæmdi
tanndrátt og aðrar tannaðgerðir og
tannsmíð.
Dalvíkur. Tannlæknir og tannsmið-
ur dvöldust á Dalvík nokkurn tíma.
Var allmikið til þeirra leitað, einkum
af skólabörnum, eftir minni tilvísun.
Grenivíkur. Alltaf nokkuð dregið af
tönnum, enda oft svo illa farnar, að
um annað er ekki að ræða. Allmargir
láta gera við tennur sínar, en kvarta
um stutta endingu og að aðgerð sé
dýr.
Vopnafj. Óli Baldur Jónsson tann-
smiður kom hér og stundaði iðn sina
með sama hætti og undanfarið, eftir
þvi sem þörf krafði.
Norður-Egilsstaða. Tannlæknir
dvaldist hér á Egilsstöðum nokkrar
vikur og hafði mikið að gera, bæði
við viðgerðir á tönnum, svo og smíð
tanna.
Dakkagerðis. Óli Baldur Jónsson
tannsmiður dvaldist hér dálítinn tíma,
og var ekki vanþörf á því.
Seyðisfj. Siðan dr. Bloch tannlæknir
fór héðan, hefur Óli Baldur Jónsson,
tannsmiður í Neskaupstað, dvalizt hér
2 mánuði að vorinu, gert við tennur
skólabarna og stundað almennar tann-
lækningar, og er það mikil og góð
hjálp, meðan hennar nýtur, en svo eru
hinir 10 mánuðir ársins útundan.
Vestmannaeyja. Hér starfar tann-
læknir, að nokkru fyrir skólana, en
einnig sjálfstætt. Hér starfar einnig
tannsiniður.
Laugarás. Virðist það færast í vöxt,
sem betur fer, að fólk láti gera við
tennur sinar, einkum eftir að tann-
læknir settist að á Selfossi. Samt leita
alltaf einhverjir til min með þenna
kvilla. Dreg ég úr tennur, sem ekki
er hægt að gera við, en visa annars
fólki til tannlæknis.
17. Samkomuhús. Kirkjur.
Kirkjugarðar.
Ólafsvíkur. Kirkjubyggingar engar
nýjar, kirkjugarðar óbreyttir, sam-
komuhús einnig.