Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Síða 86
1956
— 84 —
veiktist af skarlatssótt, 2 dögum eftir
að hann kom heim. Fékk pensilín og
batnaði fljótlega. Veikin breiddist ekki
út, enda þótt ekkert væri sótthreinsað.
Vestmannaeyja. 3 væg tilfelli í
ember.
20. Munnangur
(stomatitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 20.
1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 529 570 500
Dánir „ „ „
MeS óbreyttum hætti.
Akranes. Gerir alltaf nokkuS vart
viS sig, og er leiður kvilli á smá-
börnum.
Ólafsvíkur. BærSi lítt á sér.
Stykkishólms. Nokkur dreifð tilfelli,
ekki skráð.
Patreksfj. ASeins séð stomatitis ap-
thosa. Er hún algeng og auðvelt að
lækna hana með gentianaviolaceum.
Akureyrar. Fleiri tilfelli en skráð
eru.
Norðar-Egilsstaða. Verður vart við
og við, en enginn eiginlegur faraldur
á árinu.
Bakkagerðis. Gekk hér í maí og júní
og aftur síðustu mánuði ársins.
Báða. Nokkur dreifð tilfelli (ekki
skráð).
Vestmannaeyja. Fáein dreifð tilfelli.
Hafnarfj. Stakk sér niður.
21. Kikhósti (tussis convulsiva).
Töflur II, III og IV, 21.
1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 1595 1162 2076 .321
Dánir 4 „ 2 „
Dreifð tilfelli í 9 læknishéruðum,
og skráning sums staðar talin vafa-
söm. Helzt mætti tala um smáfaraldra
i Eskifjarðar-, Djúpavogs- og Kefla-
víkurhéruðum.
Akranes. Skráð tilfelli vafasöm.
Vestmannaeyja. Varð ekki vart á
árinu. Öll börn bólusett með „triim-
munol“, úr þvi þau verða 6 mánaða.
22. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 22.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 750 1061 1201 873 525
Dánir ,, ,, ,, „ ,,
Skráð með minna móti og þó dreifð
svo til um allt land. Mikið af svo væg-
um og auðkenndum kvilla fellur vafa-
laust undan skráningu. Samband rist-
ils og hlaupabólu minnir alltaf við og
við á sig.
Rvík. í febrúar, marz og april bar
nokkuð á hlaupabólu.
Akranes. Gerir vart við sig, einkum
framan af árinu.
Patreksfj. 2 aðskilin greinileg til-
felli.
Flateyrar. Kom upp í barnaskólan-
um í Holti, og á Flateyri fékk eitt barn
veikina.
Hólmavíkur. Barn, er var gestur hér,
flutti hingað hlaupabólu seint i júlí,
og komu siðan upp nokkur tilfelli
hennar, 1 slæmt.
Blönduós. 2 krakkar, báðir á sama
heimili.
Akureyrar. Ekki um nein slæm til-
felli að ræða.
Breiðumýrar. Skráð 2 mánuði, marz
og september, en hefur eflaust verið
oftar og viðar á kreiki, þvi að yfirleitt
berst ekki vitneskja um hana til lækn-
is, nema þá fyrsta tilfelli í faraldrin-
um. Sem dæmi get ég nefnt, að þau 2
tilfelli, sem skráð eru í september,
fékk ég aðeins vitneskju um vegna
þess, að eldri systir þessara barna
fékk mjög slæman herpes opthalmicus,
og þegar mín var vitjað til hennar, sá
ég hlaupabóluna á yngri systkinunum
i leiðinni. Er hér enn eitt dæmið um
a. m. k. staðar- og tímatengsl milli
varicellae og herpes zoster.
Þórshafnar. 4 tilfelli út frá ristli.
Norður-Egilsstaða. Gerði vart við
sig, mjög væg og stundum eins og
vanalega samfara ristli, sem nokkur
tilfelli voru af.
Seyðisfj. Stakk sér niður við og við,
allt væg tilfelli.
Vestmannaeyja. Fá tilfelli. Nokkur
faraldur í uppsiglingu í árslokin.
Eyrarbakka. Nokkur tilfelli á víð og
dreif.
nov-
1956
357 373
1956
58