Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Síða 202
1956
— 200 —
varpshöfundi vakir að setja liér á stofn.
En um aldamótin sí'ðustu var ráðið
fyrir „besværlig og langsom forretn-
ingsgang“ orðið óstarfhæft, svo að
ríkisvaldið var hætt að taka nokkurt
tillit til þess, enda lognaðist ráðið út
af nokkru siðar, með þvi að ráðsmenn-
irnir sögðu allir af sér. Aftur var það
hresst við í starfhæfari mynd (Sund-
hedsstyrelsen), sem síðan þróaðist til
þeirra skipulagshátta, sem lögfestir
voru 1932 og búið hefur verið við síð-
an, en það er i öllum grundvallaratrið-
um hið sama skipulag, sem hér ríkir,
enda fráleitt mjög frábrugðið því, sem
gerist í menningarlöndum yfirleitt.
„Sundhedsstyrelsen“ danska, eins
og henni er skipað nú, svarar ná-
kvæmlega til landlæknisembættisins
hér. Það „ráð sjö lækna“, sem frum-
varpshöfundi miklast svo mjög, er
ekkert ráð, að hans skilningi, heldur
hefur hann séð í skringilega röngu
ljósi landlækni sjálfan og sex aðalað-
stoðarmenn lians, fasta starfsmenn við
landlæknisembættið danska, víst flest-
ir deildarstjórar eða fulltrúar, sem
landlæknirinn skiptir verkum með,
auðvitað undir sinni yfirstjórn og
handleiðslu. Þeir eru sem sé „skrif-
stofubákn“ hins danska landlæknis.
Læknaráðið danska er alls annars
eðlis og í mjög lausum tengslum við
landlæknisembættið. Það er satt að
segja aðallega um að ræða nöfn á blaði
til að minna landlækni á, hverja sér-
fræðinga hann getur kallað á sér til
ráðuneytis eftir mjög frjálslegum regl-
um, en fyrst og fremst eftir eiginni
dómgreind. Tólf efstu ráðsþjónustu-
mennirnir á listanum lieita upp á út-
lenzku „konsulenter“*, en hinir, sem
fyrir neðan þá eru skráðir, heimalegra
nafni: „rádgivere“. Þeir, sem fyrra
nafnið bera, eru ásamt landlækni titl-
aðir læknaráð (Sundhedsstyrelsens
lægerád). En mjög er landlæknir sjálf-
stæður gagnvart Jjví ráði, sem liefur
í mjög fáum tilvikum sjálfstæðu hlut-
verki að gegna. Er eftirtektarvert, hve
danska löggjöfin gerir sér titt um að
*) Sérstakur „konsulent", hinn 13., er fyrir
lyfsöiumáladeild dönsku heiibrigðisstjörnar-
innar, og er hann að sjálfsögðu lyfsölufræð-
ingur.
tryggja sem allra rækilegast sjálfstæði
landlæknis gagnvart ráðunautum hans.
Öll dagleg embættistörf vinnur hann á
sjálfs sín ábyrgð með aðstoð starfsliðs
skrifstofu sinnar. Til hins svo kallaða
læknaráðs á hann ekkert að sækja,
nema um mál sé að ræða, sem að
sjálfs hans dómi eru „af mere princi-
piel betydning“, og þá er gert ráð fyr-
ir, að hann kalli til einungis einn af
ráðsmönnunum. Aðeins ef niðurstaða
landlæknis um málið „afviger i væsent-
lig grad“ frá niðurstöðu ráðsmannsins,
á ráðsmaður kost á því að nefna til
annan ráðsmann til umræðu um mál-
ið. Verði nú ekki samstaða, geta fæst
tveir af þremur fengið málið Iagt fyr-
ir læknaráð í heild. Ef þá næst enn
ekki samkomulag, og sé um mál að
ræða, sem ráðuneyti hefur beiðzt um-
sagnar landlæknis um, þá ber honum,
jafnframt þvi sem hann sendir ráðu-
neytinu umsögn sína, að skýra því frá
þeim mismunandi sjónarmiðum, sem
gætt hafi í ráðinu. Það er allt og sumt.
Um umsögn landlæknis á læknaráðið
eftir sem áður ekkert atkvæði. Danir
hafa auðsjáanlega fengið nægju sína
af „besværlig og langsom forretnings-
gang“ þunglamalegra og sundurþykkra
heilbrigðisráða. Aður en landlæknir
gerir tillögu til ráðuneytis um veit-
ingu læknisembættis, ber honum að
vísu að heyra álit læknaráðs í heild,
en einn og eftir sinu höfði gerir hann
tillöguna. í tveimur tilvikum aðeins
ræður afl atkvæða niðurstöðu land-
læknis og tilkallaðra ráðsmanna, og
er annað tilvikið, að um sé að ræða
álitsgerð til ráðuneytis, hvort hæfi eða
ekki að svipta lækni lækningaleyfi eða
tannlækni tannlækningaleyfi, en hitt
tilvikið, að fjallað sé um lyfsölumál.
Er siðara tilvikið vafalaust nærgætnis-
legt tillæti við metnað ríkilátrar
danskrar lyfsalastéttar í viðurkenn-
ingu þess, að landlæknir sé ekki nægi-
lega lyfsölufróður. Með þessum tveim-
ur undantekningum er það landlæknir
einn, sem í hverju máli „bærer ansvaret
for behandlingen og afgörelsen“, eins
og það er orðað í hinum dönsku lög-
um, sem þetta varða. Tvisvar á ári
kemur danska læknaráðið saman til
reglulegs skraffundar um heilbrigðis-