Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Side 100
1956
— 98 —
grun um ca. ventriculi. Sendi ég liann
á sjúkrahús ísafjaröar. Röntgenmynd-
ir sýndu stórt sár á curvatura minor.
Vegna aldurs og hins lélega ástands
sjúklingsins hefur ekki enn þótt for-
svaranlegt að leggja út i stóra maga-
aðger'ð.
Isafj. Á öllum skráðum krabbameins-
sjúklingum gerð handlæknisaðgerð og
þeir síðan hlotið ýmist röntgenmeð-
ferð eða hormónalyf eða hvort tveggja,
og má árangur teljast viðunandi.
Hólmavíkur. 1 nýtt tilfelli, gömul
kona, er lézt á árinu.
Hvammstanga. 1 nýr sjúklingur, 88
ára karl, með lcrabbamein i maga. 2
dóu á árinu, og 1 virðist albata eftir
geislameðferð á ulcus rodens 1953.
Blönduós. Seint á árinu 1955 var
numinn tumor úr brjósti 39 ára gam-
allar konu, og virtist þar vera um
fibrom að ræða, en reyndist við vefja-
rannsókn vera schirrus. Ég taldi rétt
að senda konuna suður til aðgerðar
og eftirfylgjandi geislunar, en sökum
mjög tregra samgangna af völdum ó-
færðar beggja megin áramótanna dróst
úr hömlu bæði að fá svar við vefja-
rannsókninni og að koma konunni
suður. Eftir fengna skurðaðgerð og
geislameðferð þar kom hún til rann-
sóknar seint á árinu 1956, og sýndi
hún sig þá að vera komin með mein-
vörp í eitlana í holdhendinni og ofan
viðbeins. Tekinn var smátumor úr
brjósti þriggja annarra kvenna, og
reyndust 2 vera fibrom og 1 schirrus.
Sú kona var send til aðgerðar og
geislunar, og varð á þvi enginn drátt-
ur.
Sauðárkróks. Af 9 skráðum sjúk-
lingum á árinu með illkynja æxli eru
5 dánir i árslok.
Hofsós. Kona á niræðisaldri (ekki
á mánaðarskrá) veiktist skyndilega
með ógleði og uppköstum. Flutt á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki og andaðist
þar nokkru siðar. Allstór hnútur
fannst í kviðarholi og reyndist við
krufningu vera krabbamein, gengið út
frá maga.
Ólafsfj. 2 sjúklingar, annar með ca.
vesicae, hinn með ca. ventriculi.
Akureijrar. Úr cancer hafa dáið á
árinu 9 karlmenn og 9 konur. Af þess-
um 18 sjúklingum voru 5 með blóð-
krabba (4 leucaemia og 1 lympho-
granulomatosis). Allt var þetta há-
aldrað fólk, nema 1 barn ársgamalt.
4 karlar dóu úr ca. ventriculi, hinn
yngsti 58 ára. Úr ca. coli dó 1 karl og
2 konur, allt háaldrað, ca. uteri 1
kona, ca. recti 1 kona, ca. oris 1 kona,
ca. cerebri 1 kona, 38 ára, ca. pul-
monis 1 karl, 55 ára, og ca. sinus fron-
talis 1 karl, 73 ára. Allt má þetta fólk
teljast komið á sæmilega háan aldur,
nema barnið, sem dó úr leucaemia, og
konan, sem dó úr ca. cerebri.
Breiðumýrar. Óvenjumörg tilfelli,
eða 5 alls. Þar af dó einn á árinu,
annar er alveg moribundus á áramót-
um, og 2 hinna rétta varla við. En
nokkur von er i einum þessara 5.
Húsavíkur. 4 nýir sjúklingar á ár-
inu. Karlmaður 60 ára með fibrosar-
coma femoris. Skorinn hér 10/1 og
sendur síðan í R-geisla á Landsspital-
anum. 2 konur með ca. ventriculi, og
dóu báðar. Kona, 77 ára, með ca. pul-
monum var grunuð áður, en var ekki
talin fær um operatio vegna mb. cor-
dis hypertensivus. Dó á árinu. (Þess
skal getið, að hún hafði aldrei reykt
á ævinni.)
Kópaskers. Ekki kunnugt um neinn
sjúkling i héraðinu með activt krabba-
mein. Þeir 2 sjúklingar, sem skráðir
eru, hafa ekki leitað til min á árinu,
og ég held, að þeim sé batnað.
Þórshafnar. 1 nýr sjúklingur bættist
við á árinu, 43 ára kona með ca. coli.
Var tvívegis skorin á Akureyri, en
liggur þar nú dauðvona. 74 ára gamall
bóndi, er var skorinn við ca. ventri-
culi í ágúst 1954, lézt í sumar úr ileus.
Vopnafj. 52 ára karlmaður. Var ný-
kominn frá Akureyri, þar sem hann
hafði dvalizt um nokkurra mánaða
skeið, er hann leitaði mín. Hann var
áberandi anaemiskur, og á curvatura
major fannst greinileg fyrirferðar-
aukning við áþuklun. Ég sendi mann-
inn strax til dr. Halldórs Hansen, sem
gerði á honum radikala aðgerð. Að-
gerðin leiddi i ljós cancer með mein-
varpi til kirtla. Maðurinn lifði eitt ár
eftir aðgerðina.
Norður-Egilsstaða. Kona, sem skráð