Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 14

Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 14
12 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að segja af sér embætti þrátt fyrir vona stöðu flokksins. Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup var fylgis Samfylkingarinnar í ágúst það minnsta í sögu flokksins eða 9,3%. Til saman- burðar er meðalfylgi flokksins í þingkosningum 25,5% en mesta fylgi flokksins var 2003 þegar 31% kjósenda greiddu honum atkvæði. Í viðtali í morgunþætti Rásar 1 föstudaginn 4. september skýrði Árni Páll ákvörðun sína um að sitja sem fastast á formannsstóli: „Ef að ég teldi að Samfylkingin væri ein í einhverri sérstakri stöðu þá auðvitað væri nærtækast að horfa á mínu stöðu. En þegar maður horfir á að þetta er almenn kreppa allra gamalla flokka og þegar maður horfir á þær hræringar sem eru í stjórnmálum í nágrannalöndum og Bandaríkjunum og alls staðar í kringum okkur þá er það niðurstaða mín allavega að ég vil leggja mitt af mörkum til þess að breyta Samfylkingunni og gera hana færa til þess að takast á við þessar nýju aðstæður.” Árni Páll ítrekaði síðan fyrri skýringar sínar á slakri stöðu Samfylkingarinnar: „Það sem mér finnst mikilvægast er að horfa á hvað þessi dýfa er að segja okkur. Ég hef sett fram þá túlkunarskýringu og held enn fast við hana. Þegar ríkisstjórnin sveik annan ganginn loforðið um þjóðaratkvæðagreiðslu að þá hafi fólk fyllst reiði og vonleysi og sú reiði bitnar á okkur líka.“ Á flokksstjórnarfundi 19. september síðastliðinn komst Árni Páll ekki hjá því að fjalla um fylgishrunið en hann reyndi að hugga félaga sína með nýstárlegum hætti: „Flokkar verða ekki litlir við að missa fylgi heldur við að hætta að hugsa stórt.“ Árni Páll hugsaði síðan stórt og ræddi um að „ný stjórnmál“ þurfi „nýja umgjörð“ og „við eigum að gera tilraun til að skapa hana á grunni Samfylkingarinnar“: „Hér, eins og alls staðar annars staðar, spretta upp hreyfingar fólks til að berjast fyrir samfélagsumbótum. Flóttamenn. Makríll- inn. Druslugangan. Reynslan frá hruni. Það skortir ekkert á vilja fólks til að leggja gott af mörkum. En hér, eins og um alla Evrópu, er fólk líka að átta sig á þeirri hættu að sjálf- sprottnar hreyfingar verði til af miklu afli, en skorti úthaldið til að koma breytingum í höfn. Þær geti orðið eins og glæsileg flugelda- sýning: Heillandi en endist alltof stutt til að knýja fram raunverulegar breytingar.“ Til að bjarga þessum hreyfingum en ekki síður Samfylkingunni lagði Árni Páll til að Sam- fylkingin bjóði sig „fram til að verða verkfærið sem vantar – farvegur fyrir fólk sem vill láta til sín taka“. Formaðurinn var á því að Samfylkingin geti verið afl sem hafi getu og úthald til að koma í gegn breytingum sem fólk kallar eftir. Lausn á vanda Samfylkingarinnar virðist ljós. Situr sem fastast
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.