Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 35
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 33
saman lagt stund á að skera friðsama borgara
á háls af því að þeim líkar ekki við þá. Nú geta
bæði hryðjuverkamenn og friðsamari borgarar
sem halda yfir landamærin farið hindrunarlaust
áfram til þess lands innan ESB þar sem búseta
kemur þeim best. Þar geta þeir síðan dvalist
frjálsir og án eftirlits.
Fyrr á árum litu Danir á þjóðfluthninga sem
atburði löngu liðins tíma. Við lærðum um þá í
skólanum – um Kimbra, Tevtóna, Gota og aðra
germanska þjóðflokka sem héldu í suður og
eyðilögðu Rómarríkið.
Nú búum við sem
betur fer við friðsam-
legar aðstæður,
er okkur sagt, her
landsins stendur vörð
um Dani og aðra
evrópska ríkisborg-
ara gegn ytri ógn og
lögreglan gegn innri
ógn.
Auðvitað hefur
komið til þjóðflutninga
síðar. Fólk fluttist til
Bandaríkjanna, Kanada
og Ástralíu frá Evrópu,
það voru einskonar
þjóðflutningar við breyttar aðstæður. Menn
gátu þó ekki bara komið á staðinn og krafist
inngöngu. Allt varð að fara eftir bókinni, menn
áttu að vera frískir og vinnufærir. Náið var
farið í saumana á högum þess sem óskaði eftir
landvist. Þá var ekki heldur um það að ræða
að frá og með fyrsta degi ættu menn rétt á að
njóta víðtæks velferðarkerfis á kostnað íbúa
móttökulandsins. Þetta gilti einnig um fólk sem
vildi setjast að í Danmörku, þ. á m. gyðinga frá
Austur-Evrópu fyrir fyrri heimsstyrjöldina.
Á 20. öldinni kom einnig til mikilla búferla-
flutninga eða þjóðflutninga í Evrópu sjálfri: Eftir
fyrri heimsstyrjöldina voru kristnir Grikkir reknir
frá Tyrklandi; fjöldi Rússa neyddist til að yfirgefa
Rússland eftir borgarastríðið 1918-1920;
milljónir sovéskra borgara voru fluttar nauðung-
arflutningi innan landamæra Sovétríkjanna;
milljónir evrópskra gyðinga voru sendar í
útrýmingarbúðir; milljónir Þjóðverja flúðu eða
voru reknar á brott eftir að Þýskaland tapaði
annarri heimsstyrjöldinni; eftirlifandi gyðingar
flýðu Evrópu og héldu til Ísraels; arabar flýðu til
arabískra nágrannaríkja undan stríðinu við ríki
gyðinga.
Það er með öðrum orðum ekkert nýtt að
mikill fjöldi fólks flytjist eða sé fluttur frá einum
stað til annars. Þjóðflutningar líðandi stundar
eru hins vegar að mörgu leyti ólíkir því sem
áður var. Í fyrsta lagi er um að ræða fólk með
menningu og af menningarsvæði sem er mjög
frábrugðið hinu evrópska, fólk sem hvorki óskar
né vill laga sig að hinu evrópska heldur krefst
sérmeðferðar. Í öðru lagi er hugsanlega um að
ræða ótölulegan fjölda fólks sem mun eyði-
leggja hið evrópska
samfélag takist ekki
að setja skorður við
þessu flóði sem nú er
stjórnlaust.
Þjóðflutninga
samtímans má rekja
til þriggja grunnþátta:
1) Sprengingar, án
hliðstæðu í mannkyns-
sögunni, í fólksfjölda
í nágrenni Evrópu – á
svæðum þar sem ríki
hafa hrunið eða eru
að hruni komin auk
innbyrðis hugmynda-
fræði/trúarbragða
átaka og borgarastyrjalda. 2) Góðra tækifæra til
að flytjast til Evrópu og viðskiptalegs skipulags
við undirbúning brottfarar þangað. 3) Landa-
mæra- og varnarlausrar Evrópu sem stendur til
boða eins og aðlaðandi hlaðborð þar sem hver
og einn getur valið úr réttunum.
Með netinu og farsímum má upplýsa hvern
og einn um öll réttindi sem njóta má jafnskjótt
og maður stígur fæti á komulandið. Opinberar
og einkareknar stofnanir í víðtæku neti sjá um
að aðstoða, veita ráð og sinna komumönnum.
Þeim stendur til boða húsnæði, klæðnaður,
peningar, heilsugæsla, lögfræðiþjónusta auk
annars. Hreyfi einhverjir í komulöndunum gagn-
rýni eru þeir barðir til hlýðni af stjórnmála- og
fjölmiðlaelítum landanna, dugi það ekki er
gripið til refsilaganna.
Í fyrsta lagi er um að ræða fólk með
menningu og af menningarsvæði sem
er mjög frábrugðið hinu evrópska, fólk
sem hvorki óskar né vill laga sig að hinu
evrópska heldur krefst sérmeðferðar.
Mynd: Takver