Þjóðmál - 01.09.2015, Side 45
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 43
mannréttinda. Evrópa byggði upp meiri velferð
og öryggi fyrir borgara sína en áður hafði og
hefur þekkst. Það öryggi tryggðu öflugir herir,
góðir kaupmenn, bestu handverksmenn í heimi,
yfirburðir í mannréttindum og virðing fyrir
eignarréttinum og manngildinu. Á sama tíma
varð Evrópa umburðarlyndasta svæði heimsins.
Engin ein lífsskoðun ræður ríkjum í Evrópu.
Miðað er við að hver sem er megi halda fram
eins réttum eða röngum skoðunum og hann vill
án þess að amast sé við því nema í rökræðum
og pólitískri baráttu. Við erum frjáls skoðana
okkar. Við erum frjáls að því að gera innan
hóflegra marka grín að skoðunum annarra og
afneita þeim sem tómu rugli. Þetta eru þau gildi
sem Evrópa verður að standa vörð um og vera
tilbúin til að verja. Einkum þegar inn í Evrópu
streymir fólk sem vill afnema þessi gildi frelsis
og umburðarlyndis.
Þess vegna er það jafnbrýnt og fyrr að
Evrópa verji landamæri sín. Veiti fólki sem þarf
alþjóðlega vernd og aðstoð á heimaslóð eða
sem næst heimaslóð. Sýni pólitíska forustu og
framtíðarhyggju og gæti ekki síst hagsmuna
trúarsystkina okkar hvar sem er í heiminum og
geri öllum ljóst að við látum ekki viðgangast
villimannlegan skepnuskap gagnvart fólki óháð
því hvort það er á forsendum fasisma, nasisma,
kommúnisma, íslam eða annarra öfga.
Öfga sem eru ætíð ógn við frelsi og mann-
réttindi einstaklingsins.
Evrópa verður að vakna og takast enn á ný á
við nýja böðulshönd, sem blóðug sínu sverði
lyftir, gegn friði, frelsi og öryggi okkar.
Danmörk, Svíþjóð og Noregur raða
sér í þrjú efstu sætin yfir mesta
frelsi einstaklinga samkvæmt frelsis-
vísitölu þriggja hugveitna. Ísland er
í sjöunda sæti. Efnahagslegt frelsi er
hins vegar talið mest í Hong Kong,
Singapore og á Nýja-Sjálandi. Finn-
land er efst Norðurlandanna í tíunda
sæti en Ísland er neðst í 37. sæti.
Í heild er Ísland í 14. sæti frelsis-
vísitölunnar en efst trjóna Hong
Kong, Sviss og Finnland.
Það eru þrjár hugveitur sem
standa að umfangsmikilli rannsókn
á ýmsum þáttum einstaklings- og
efnahagslegs frelsis í 152 löndum
heimsins – Cato stofnunin í Bandaríkjunum,
Fraser stofnunin í Kanada og Friedrich Nau-
mann frelsisstofnunin í Þýskalandi. Að baki
frelsisvísitölunni eru 76 þættir er mæla mann-
réttindi, einstaklingsfrelsi og efnahagslegt frelsi.
Þar með talið öryggi borgaranna, ferðafrelsi,
trúfrelsi, félagafrelsi, tjáningafrelsi og rétt-
inn til að koma saman, stærð hins opinbera,
lagaumhverfi og vernd eignaréttarins, frelsi til
alþjóðlegra viðskipta, aðgangur að traustum
gjaldmiðli, og regluverk fjármálamarkaðar,
vinnumarkaðar og viðskipta.
Það kemur ekki á óvart að frelsi skuli vera
mest í Norður-Evrópu, Norður-Ameríku (Banda-
ríkin og Kanada) og í Vestur-Evrópu. Minnst
Frelsisvísitalan:
Ísland í 14. sæti – neðst Norðurlandanna
Evrópa byggði upp meiri velferð og
öryggi fyrir borgara sína en áður hafði og
hefur þekkst. Það öryggi tryggðu öflugir
herir, góðir kaupmenn, bestu handverks-
menn í heimi, yfirburðir í mannréttind-
um og virðing fyrir eignarréttinum og
manngildinu. Á sama tíma varð Evrópa
umburðarlyndasta svæði heimsins. Engin
ein lífsskoðun ræður ríkjum í Evrópu.