Þjóðmál - 01.09.2015, Page 74

Þjóðmál - 01.09.2015, Page 74
72 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 Triton-hópsins (Nielsen o. fl., 2010b). Söluverð bankans var í orði kveðnu fimm milljarðar danskra króna (€670 milljónir), sem var talsvert lægra en eigið fé bankans, en samt talsvert hærra en upphæð veðlánsins, sem skilanefnd Kaupþings skuldaði Seðlabankanum. En aðeins var greiddur út 1,9 milljarður danskra króna. Afgangurinn var háður því, hversu miklu bankinn myndi tapa á útlánum tímabilið 30. júní 2010 til 31. desember 2014. Á móti ætti seljandi að njóta þess, fengist gott verð fyrir fjárfestingasjóðinn Axcel III. Seðlabankanum til aðstoðar voru JP Morgan og danska lög- mannsstofan Kromann Reumert. Taldi Már Guðmundsson seðlabankastjóri, að þessi niðurstaða væri „ágæt miðað við aðstæður“ (Seðlabankinn, 2010). Fjárfestirinn Christian Dyvig, sem nú eignaðist 10% í FIH banka, hafði verið lögfræðingur Kromann Reumert löngu áður, en síðan starfað hjá fjármálafyrirtækjum og auðgast svo árin 2003–2009 á fyrirtækinu Nordic Capital, sem hann rak ásamt félögum sínum, að hann gat snarað fram sinn hluta af útborguninni, 190 milljónum danskra króna, en þurfti ekki að taka lán (Carlsen, 2012). Hinir nýju eigendur tóku við bankanum í janúarbyrjun 2011 og biðu ekki boðanna. For- stjóri lífeyrissjóðsins ATP, Bjarne Graven Larsen, varð bankastjóri við hlið Henriks Sjøgreens. Hafist var handa við að minnka veltu bankans, innheimta lán og afskrifa. Sagði bankinn upp öllum fasteignalánum, sem hann gat, og þótti mörgum viðskiptavinum illa með sig farið. Eftirmaður Larsens hjá ATP, Lars Rohde, leyndi því ekki í viðtölum við dönsk blöð, að stefna eigendanna væri að safna öllu hugsanlegu tapi bankans saman á því tímabili, sem samningurinn við Íslendingana næði til, fram í árslok 2014. Kvað hann allt útlit fyrir, að ekki þyrfti að greiða síðari afborgunina til Íslendinga, sem nema átti 3,1 milljörðum danskra króna. Hann bætti því við, að Íslendingarnir gætu leyst lánabókina til sín aftur, ef þeir vildu (Jeppesen, 2011a). Þegar Børsen leitaði álits Steingríms J. Sigfús- sonar á þessum ummælum, vildi hann ekkert láta hafa eftir sér um þau (Jeppesen, 2011b). Bankastjórarnir tveir, Larsen og Sjøgreen, fengu vildarkjör við að kaupa hlutabréf og gerðu það fyrir níu milljónir danskra króna hvor. Þeirra kjara naut einnig Fritz Suhr, stjórnarformaður fjárfestingafyrirtækis Dyvigs, en einnig stjórnar- formaður SAS-flugfélagsins, einkavinur Hinriks drottningarmanns og forystumaður hóps kaupsýslumanna, sem studdu stjórnarflokkinn Venstre fjárhagslega. Keypti hann hlutabréf fyrir tíu milljónir króna (Sixhøj, 2012). Vorið 2012 fékk FIH banki sérstaka aðstoð frá danska ríkinu, sem leysti til sín fasteignalán fyrir 17 milljarða danskra króna. Komst ráðherranefnd Evrópu- sambandsins að þeirri niðurstöðu, að þetta jafngilti ríkisaðstoð að upphæð 425 milljónum danskra króna, sem FIH banki greiddi ríkinu (EU Commission, 2012; Kirketerp, 2014). Árið 2013 endurgreiddi bankinn ríkinu þann 1,9 milljarð danskra króna, sem lagður hafði verið inn í hann fjórum árum áður, og gerði upp öll skulda- bréf með ríkisábyrgð. Í maí og júní 2014 seldi bankinn síðan útlánasöfn sín til norðurjósks banka, Spar Nord, og Nýkredit Bank í Kaup- mannahöfn og tilkynnti, að hann yrði lagður niður á næstu árum. Lítið hafði gengið á eigið fé bankans við þessar aðgerðir allar. Í árslok 2014 var bókfært eigið fé FIH 5.739 milljónir danskra króna (€769 milljónir) og reksturinn orðinn sáralítill (FIH, 2015). Þar eð eigendurnir þurftu ekki að greiða Íslendingunum, sem seldu þeim bankann, nema 1,9 milljarð danskra króna, gátu þeir næstu ár gert ráð fyrir að þrefalda fjárfestingu sína. Christian Dyvig getur búist við að græða um 400 milljónir danskra króna, um 8 milljarða íslenskra króna, á þessum kaupum (Theil o. fl., 2014). Bankastjórarnir tveir og Fritz Schur eiga von á því að hagnast um 20 milljónir danskra króna hver, um 400 milljónir íslenskra króna hver. Eftir situr Seðlabankinn íslenski með sárt ennið. Þótt hann eigi ef til vill von á einhverju fé frá Axcel III fjárfestingarsjóðnum, fékk hann ekki nema €255 milljónir til baka af því €500 milljóna láni, sem hann veitti Kaupþingi með veði í FIH Eftir situr Seðlabankinn íslenski með sárt ennið. Þótt hann eigi ef til vill von á einhverju fé frá Axcel III fjárfestingar- sjóðnum, fékk hann ekki nema €255 milljónir til baka af því €500 milljóna láni, sem hann veitti Kaupþingi með veði í FIH banka, þótt bókfært eigið fé bankans við söluna haustið 2010 hafi verið um €1 milljarður og í árslok 2014 um €769 milljónir. Jafnframt verður að hafa í huga, að veðið var allsherjarveð.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.