Þjóðmál - 01.12.2015, Page 20
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 19
Þetta er sagt m.a. í því ljósi að rekstur RÚV
hefur um margt einkennst af stefnuleysi og
óstjórn. Um leið og skýrslan var birt opinber-
lega í lok október var hins vegar hjólað beint
í manninn af álitsgjöfunum og starfsmenn
RÚV héldu uppi samfelldum áróðri gegn
skýrslunni og spöruðu ekki stóru orðin. Minna
fór fyrir umræðum um staðreyndir sem
dregnar eru fram í skýrslunni. Því hefur meira
að segja verið haldið fram að í skýrslunni séu
alvarlegar villur en ekkert hefur ennþá komið
fram sem gefur tilefni til leiðréttinga af hálfu
skýrsluhöfunda.
Illugi Gunnarsson fær prik fyrir að ráðast í
skýrsluskrifin en á eftir að sýna að hann dragi
réttan lærdóm af henni. Fyrstu viðbrögð lofa
ekki góðu; svar hans er að setja meira fé í RÚV
þvert á megin niðurstöðu skýrslunnar.
Vandi RÚV liggur fyrir og hefur lengi legið
fyrir og RÚV skýrslan dregur skilmerkilega
fram aðalatriðin um tilurð hans og umfang.
Í skýrslunni er góð greining á stöðunni sem
duga ætti til að taka réttar ákvarðanir. Í fyrsta
sinn er til að mynda gerður samanburður á
framlögum RÚV og erlendra systurstofnana
svo og rekstrarkostnaður borinn saman við
365 miðla.
Helstu niðurstöður skýrslunnar:
• Rekstur RÚV ohf. frá stofnun félagsins árið
2007 hefur ekki verið sjálfbær. Gjöld hafa
verið meiri en tekjur á tímabilinu í heild
og hallarekstur verið fjármagnaður með
auknu ríkisframlagi, lántökum og frestun
afborgana lána.
• Heildartekjur á íbúa eru talsvert umfram
meðaltal erlendra systurstofnana og ein
fárra sem er einnig á auglýsingamarkaði.
• Frá stofnun RÚV sem ohf. hefur rekstrar-
kostnaður verið 5,4 milljarðar á ári á föstu
verðlagi.
Um leið og skýrslan kom fram í lok október var hins vegar hjólað beint í
manninn af álitsgjöfunum og starfsmenn RÚV héldu uppi samfelldum áróðri
gegn skýrslunni og spöruðu ekki stóru orðin, en minna fór fyrir umræðum um
staðreyndir sem dregnar eru fram í skýrslunni. Því hefur meira að segja verið
haldið fram að í skýrslunni séu alvarlegar villur en ekkert hefur ennþá komið
fram sem gefur tilnefni til leiðréttinga af hálfu skýrsluhöfunda.
Friedman hélt fram þeirri kenningu að stjórnmálamenn
hafi 6-9 mánuði í upphafi kjörtímabilsins til að ráðast í
þær lykilaðgerðir sem þeir sem telja nauðsynlegar. Þetta
eru hveitibrauðsdagarnir áður en menn festast í „sjálf-
heldu sérhagsmuna“, og „tyranny of the status quo“ nær
yfirhöndinni. Stjórnmálamenn leita í þessi störf til að
koma á breytingum en fæstir átta sig á því fyrirfram hversu
kraftar kyrrstöðunnar eru sterkir.