Þjóðmál - 01.12.2015, Side 22
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 21
hefur eftirspurn eftir þjónustunni minnkað
mikið. Tölur sína að neyslumynstur fólks
hefur breyst umtalsvert svo og áhorf og hlust-
un. Æ fleiri horfa/hlusta minna á miðla RÚV
og uppfylla sínar þarfir fyrir afþreyingu með
öðrum hætti. Rás 1 og Rás 2 höfða til sama
hóps í meira mæli og yngri hluti þjóðarinnar
notar RÚV lítið. Það er því sannarlega öfug-
mæli að tala um útvarp allra landsmanna.
Spunastjórnun hjá RÚV
Við þekkjum vel þetta hugtak úr stjórn-
málum en erum ekki vön að upplifa spuna-
stjórnun í beinni útsendingu ríkisfjölmiðils
sem er miskunnarlaust misbeitt í þágu eigin
hagsmuna. Fyrst í kringum fjárlögin 2015, um
sama leyti fyrir ári og svo nú í kjölfar skýrsl-
unnar. Spunastjórnun er m.a. sú aðferð að
snúa staðreyndum á hvolf, svart verður hvítt,
hækkun framlaga til RÚV er nefnd lækkun,
samanburður við framlög systurstofnana
rangur svo nokkuð sé nefnt.
Ennþá er á heimsíðu RÚV baráttutexti fyrir
útvarpsgjaldinu svo og 11 „staðreyndir“ í
spunaumfjöllun um RÚV. Þetta hlýtur að vera
fáheyrt. Útvarpsstjórinn nýi leiddi kórinn,
stjórn RÚV varð að hagsmunaafli í þágu
starfsmanna í stað almannahagsmuna og fré-
ttastofur misnotaðar. Ef marka má viðbrögð
við RÚV skýrslunni þá hafa menn ekkert lært
og spuna-stjórnun hefur fengið fastan sess í
húsum ríkisfjölmiðilsins.
7 dellur um RÚV
Nú mætti ætla að í ljósi þess hversu fyrir-
ferðarmikið RÚV er á fjölmiðlamarkaðinum
og hversu frek stofnunin er til almannafjár
að skýrar kröfur væru gerðar til stjórnenda
og starfsmanna um vönduð vinnubrögð:
Um gagnsæi, um upplýsingagjöf um stöðu
rekstrarins, um vandaða áætlanagerð sem
miði að skilgreindu marki, um skilvirkni í
stjórnun, um að stjórn félagsins starfi í þágu
eigandans. Allt þetta og margt fleira er
margbrotið, ekki af slysni eða sakleysi heldur
af ásetningi. Allt skal hjúpað dulúð þannig að
erfitt sé fyrir fyrir þá sem um þurfa að véla, –
fjárlaganefnd Alþingis og ráðuneyti – að fá
raunsanna mynd af rekstri og fjárhagsstöðu
félagsins. Stjórnendum hefur tekist með nær
undraverðum hætti að slá virki um RÚV þan-
nig að það er orðið ríki í ríkinu.
Þessi delluumræða er svo sérstök að maður
spyr sig, afhverju enginn fari að fordæmi
barnsins og bendi á einfalda staðreynd:
„Keisarinn er í engum fötum“?
Nokkrar staðreyndir til umhugsunar:
1. Menntamálaráðherra klárar ekki þjónustu-
Ennþá er á heimsíðu RÚV baráttu-
texti fyrir útvarpsgjaldinu svo og 11
„staðreyndir“ í spunaumfjöllun um
RÚV . Þetta hlýtur að vera fáheyrt.
Útvarpsstjórinn nýi leiddi kórinn,
stjórn RÚV varð að hagsmunaafli í
þágu starfsmanna í stað almanna-
hagsmuna og fréttastofur mis-
notaðar. Ef marka má viðbrögð við
RÚV skýrslunni þá hafa menn ekkert
lært og spunastjórnun hefur fengið
fastan sess í húsum ríkisfjölmiðilsins.