Þjóðmál - 01.12.2015, Side 24
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 23
óbeint boðvald yfir félaginu sem er nú
horfið, nema hvað þjónustusamninginn
áhrærir.
7. 9 manna stjórn í félagi er 4-6 ofaukið. Það
er fullkominn misskilningur að skilvirknin
aukist með fjöldanum og að þá fáist
breiðari og betri skilningur á rekstrinum.
Og í ofanálag er 9 manna stjórnin kjörin
af Alþingi, ekki ráðherranum sem fer
með hlutabréfið. Stjórnin verður um leið
sérstakur þrýstihópur í sókninni í meira
skattfé.
Af hverju ríkisútvarp?
Í umræðu um RÚV er afar sjaldan staldrað við
og spurt sig þessarar spurningar. Nágrannar
okkar Danir hafa hins vegar gert það hvað DR
áhrærir. Per Stig Möller fyrrum menningar-
málaráðherra Dana gerði það um leið og
hann réttlætti nýjan þjónustusamning:
„Hvað höfum við þá eiginlega með DR að
gera? DR er ekki fjármagnað á markaði
heldur með skylduáskrift á grundvelli
sérleyfis. Öll heimili með sjónvarpstæki
greiða og rennur fjármagnið að mestu til
DR. Gætum við ekki sparað okkur þessa
3,5-4 milljarða króna? Veruleg þörf er fyrir
peningana annars staðar og þeir sem
greiða áskriftina gætu einnig haldið þeim
og keypt aðgang að öðru efni fyrir þá...
Á tímum þegar allt er fljótandi í sjónvarps-
rásum og efni á Netinu er það eðlileg
spurning hvort áfram skuli starfrækja
útvarps- og sjónvarpsrás með sérleyfi.
Okkur bjóðast kvikmyndir, tónlist og
afþreying á áskriftarstöðvum sem og
ókeypis á stöðvum fjármögnuðum með
auglýsingum. Fréttir finnum við auðveldlega
á Netinu frá dagblöðunum og erlendar
fréttir getum við sótt til stóru stöðvanna
sem starfa á heimsvísu. Til eru gríðar-
legar margar aðrar stöðvar sem bjóða
áhorfendum upp á skemmtun, ævintýri
Per Stig Möller, fyrrverandi menningaráðherra Danmerkur, hefur talið eðlilegt að spurt sé hvort það eigi að reka áfram
ríkisfjölmiðil. Hann er sjálfur sannfærður um að danska ríkisútvarpið, DR, gegni mikilvægu hlutverk. Hér er Per Stig á fundi
norrænna ráðherra árið 2004 og er að heilsa Leila Freivalds, sem þá var aðstoðar forsætisráðherra Svíþjóðoar. Geir H.
Haarde, þáverandi fjármálaráðherra fylgist með.
Mynd: Magnus Fröderberg