Þjóðmál - 01.12.2015, Side 32
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 31
reynt fólk með í för. En það aftrar mér ekki
frá að hvetja fólk til að ganga á fjöll. Fleiri
og voðalegri slys hljótast af hreyfingarleysi
en fjallgöngum. Ég hef séð kunningja minn
hrapa til dauða í Alpafjöllunum, en það
fékk mér ekki eins mikillar sorgar og að sjá
fjölda fólks, sem ég þekki, grotna niður af
fitu, leti og óreglu.4
Bókin kom út árið 1946 og þá var þegar
vaknaður áhugi á ferðalögum og útiveru enda
gerðu margir sér grein fyrir því að göngu-
ferðir og fjallaferðir voru hollar, ekki aðeins
líkamlega heldur einnig andlega.
Ferðafélagið Útivist var stofnað árið 1975
og byggði á sama grunni og Ferðafélagið.
Skyndilega var komin samkeppni í ferða-
lögum um Ísland, gönguferðum, fjallaferðum,
skíðaferðum og skoðunarferðum og var
keppst um að gylla fjallaferðir. Um svipað
leiti var Íslenski Alpaklúbburinn stofnaður
og hefur síðan skipulagt námskeið í fjalla-
mennsku og krefjandi ferðir á hæstu fjöll,
jökla, ísfossa og fleira. Klúbburinn hefur
breytt miklu í fjallaferðum hér á landi rétt
eins og Ferðafélagið og Útivist.
Starfsemi björgunarsveita á þessum árum
tóku breytingum og nauðsynlegt þótti að
kenna ítarlega ferðahætti og fjallamennsku
til að þau gætu betur sinnt starfi sínu. Árið
1999 sameinuðust sveitirnar undir nafni
Landsbjargar. Aðildarfélögin sinna björgunar-
starfi, þjálfa meðlimi sína, halda við þekkingu,
byggja upp tækjakost og svo framvegis.
Lengi þótti lítið tiltökumál að aka utan
vega. Jafnvel eru dæmi um að rannsakendur
náttúru landsins hafi ekki látið vegleysur
koma í veg fyrir ferðir á áfangastað. Þetta var
einfaldlega lenskan hverjir sem í hlut áttu.
Ekki heldur var fjargviðrast yfir skemmdum á
landi. Vaðið var í það sem nefnt var „efnistaka“
án þess að biðja kóng eða prest um leyfi.
Sjást enn minjar um slíkt þar sem kroppað
hefur verið úr landinu, meðal annars fornum
gígum og aðrir hreinlega fjarlægðir enda
þótti rauðamölin afbragðs efni og til margra
hluta nytsamleg.
4 Guðmundur Einarsson frá Miðdal, 1946, bókin
Fjallamenn, bls. 161.
Hægt og rólega urðu miklar breytingar á
áhuga þjóðarinnar á útiveru og ferðalögum
og um leið viðhorfsbreyting til náttúru-
verndar. Upp úr 1990 varð svo gjörbylting
sem hefur staðið allt fram á þennan dag.
Fólk leitar í útiveruna, ekki aðeins með
ferðafélögum heldur fer áhuginn á ferðum á
eigin vegum vaxandi. Líklegt er að göngu- og
útivistarhópar séu í þúsundavís hér á landi.
Samkvæmt könnun sem gerð var árið 2000
ferðuðust það ár um 81% þjóðarinnar um
landið sitt. Að jafnaði fór fólk í fimm ferðir
á árinu og var meðallengd fyrstu ferðar 5,3
Guðmundar Einarssonar frá Miðdal:. „Ég veit, að fyrstu
tilraunum fylgir nokkur hætta, ef ekki er reynt fólk með í
för. En það aftrar mér ekki frá að hvetja fólk til að ganga
á fjöll. Fleiri og voðalegri slys hljótast af hreyfingarleysi en
fjallgöngum.“
Mynd: Sigurður Sigurðarson