Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 44
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 43
samvisku sinni - það er þeirra réttur. En á
grundvelli þessara ályktana getum við mælt
hversu samstíga þessir fulltrúar flokksins eru
grasrót hans. Og það þarf að virkja grasrótina
til að taka afstöðu til fulltrúa sinna á grund-
velli sannfæringar þeirra, en ekki á grundvelli
þess hversu þekktir þeir eru í fjölmiðlum,
ekki hversu lengi þeir hafa setið á þingi eða í
sveitastjórn, ekki hvaða starfi þeir hafa áður
gegnt eða hvort í hlut á karl eða kona, ungur
eða gamall.
Það er vel þekkt erlendis að ýmis samtök
halda því til haga hver afstaða þingmanna er
til einstakra mála og síðan mælt hvernig það
samrýmist málefnum viðkomandi samtaka.
Það væri áhugavert ef ungir Sjálfstæðismenn
héldu svipaða skrá um afstöðu þingmanna
Sjálfstæðisflokksins á þessu kjörtímabili til
einstakra mála og legðu síðan mat á hvort
kosið væri með frelsi eða helsi, hærri eða
lægri útgjöldum, hærri eða lægri sköttum,
fleiri eða færri reglugerðum o.s.frv. Mæli-
kvarðarnir eru á stundum erfiðir, en ályktanir
landsfundar koma sér hér vel. Þær eru sá
mælikvarði sem eðlilegt er að miða við.
Sum mál eru einföld. Þannig tók landsfundur
skýra afstöðu til að:
- staðgöngumæðrum skal leyfð
- í öllum tilvikum skal hæfni ráða för við
ráðningu í opinber störf (kynjakvótum
hafnað)
- stöðva ber birtingu nafngreinanlegra
upplýsinga úr skattframtölum með fram-
lagningu álagningaskrár
- ríkið á ekki að standa í útgáfu námsefnis
- listamenn skuli ekki vera á launaskrá hjá
ríkinu
- þeir sem heimsæki ferðamannastaði greiði
fyrir uppbyggingu þeirra
- verslun með áfengi verði gefin frjáls
- einfalda ber allt regluverk
- lækka ber skatt og fækka skattþrepum
Ekki sannfærandi og vont fordæmi
Hér er aðeins getið örfárra atriða, en flokkur
sem ályktar, án athugasemda eða mót-
atkvæða, um lækkun útgjalda hins opinbera
úr 45% af landsframleiðslu í 35% á næstu tíu
árum, er ekki sannfærandi þegar ríkisútgjöld
hækka verulega umfram verðbólgu frá ári
til árs undir hans forystu. Fulltrúar flokksins
í sveitastjórnum kvarta sáran undan „tekju-
vanda” og ekkert fer fyrir niðurskurði útgjalda
og lækkun skulda. Hið opinbera gengur á
undan með slæmu fordæmi í eftirgjöf í kjara-
samningum til hálaunahópa og ætlast síðan
til að aðrir sýni gott fordæmi. Þannig ráðslag
kallar ekki á tiltrú kjósenda og grefur undan
vilja stuðningsmanna til að tala máli flokksins
út á við.
Góð frammistaða fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í Árborg, undir forystu Eyþórs Arnalds,
kjörtímabilið 2010–2014, ætti hins vegar að
tala öðru máli. Tekið var á fjármálum sveitar-
félagsins af myndugleika, skorið niður og
sparað, enda skuldastaðan ekki sjálfbær. Þrátt
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var kjörin ritari Sjálfstæðis-
flokksins. Ungt fólk var sérstaklega áberandi á lands-
fundinum og stóð fyrir miklum og góðum breytingum á
ályktunum landsfundar