Þjóðmál - 01.12.2015, Side 55
54 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015
heimsins, Bandaríkjanna. Í kjölfar heims-
kreppunnar veittu þeir restinni af heiminum
föðurlegar áminningar um að stunda ábyrga
jafnvægishagstjórn og ráðdeild, forðast bæði
taumlausa græðgi, eitruð lán, of mikinn halla
á ríkisfjármálum og stjórnlausa neyslu. En í
þessari áminningu Kínverjanna bólaði ekki
á minnstu efasemdum um kapítalismann
sem slíkan, enda er hann orðinn grundvallar-
viðmið í Kína.
Guðirnir Frjáls Verslun og Frjálsir Fjármagns-
flutningar byggja heimsveldi sitt á því
að hægt sé að flytja allt um heim allan á
tiltölulega auðveldan og ódýran hátt. Það
er enn hægt. Í leiðinni er dreift sjúkdómum
og meinsemdum, en þó einkum einsleitni
á öllum sviðum. Störf eru flutt þangað sem
vinnuaflið er ódýrast. Stjórnendurnir eru
ósnertanlegir og njóta annarra kjara en
verkalýðurinn. Gróðinn á lögheimili í skatta-
skjólum. Þetta er hin nýja nýlendustefna
fjármagnsins.
Út við sjóndeildarhringinn eru hins vegar
að birtast ský á himni, sem margir hafa
hingað til álitið heiðan. Orkan, sem enn er
ódýr, hefur hækkað mikið í verði, áður en
hún lækkaði mikið í verði. Hún mun hækka
aftur hratt ef hagvöxtur hefst á ný. Þeir sem
fylgjast náið með straumfræði stjórnmálanna
hafa reyndar lengi vitað að stjórnmál snúast
að talsverðu leyti um orku, og að orkuþáttur
stærstu stríðsátaka í heiminum var verulegur.
Það er einnig ljóst að fjölgun mannkynsins
er hraðari en aukning matvælaframleiðslu.
Skortur á matvælum er því farinn að halda
vöku fyrir æ fleirum af þeim sem reyna að
skyggnast fram á veginn. Nú þegar ber á því
að ríki jafnt sem vogunarsjóðir séu farin að
kaupa upp landbúnaðarsvæði, þar sem þau
liggja enn á lausu.
Það er nú þegar skortur á vatni víða í heim-
inum og pólitísk átök um aðgang að vatni.
Vatnsbúskapur er býsna viðkvæmur fyrir
veðurfarsbreytingum og þær líklegri til að
auka á vatnsskortinn en hitt.
Svo virðist með öðrum orðum að það sé
orðið brýnt fyrir flestar þjóðir að setja sér
markmið um að vera sjálfum sér nógar í eins
ríkum mæli og unnt er, á þeim sviðum sem
hér um ræðir. Þessi nýja búskaparstefna ber
ekki það nafn, sem hún á skilið. Það er eink-
um af blygðunarástæðum sem menn kalla
ekki þessa nýju framtíðarsýn sjálfsþurfta-
búskap, sem hún þó ber vott um.
Skorturinn er þó ekki allur þar sem hann
Svo virðist með öðrum orðum að það sé orðið brýnt fyrir flestar þjóðir að setja
sér markmið um að vera sjálfum sér nógar í eins ríkum mæli og unnt er, á þeim
sviðum sem hér um ræðir. Þessi nýja búskaparstefna ber ekki það nafn, sem
hún á skilið. Það er einkum af blygðunarástæðum sem menn kalla ekki þessa
nýju framtíðarsýn sjálfsþurftabúskap, sem hún þó ber vott um.
Skortur er á vatni víða í heiminum og pólitísk átök um
aðgang að vatni. Veðurfarsbreytingar eru líklegar til að
auka skortinn.
Mynd: Juhanson