Þjóðmál - 01.12.2015, Page 64
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 63
„Það er verið að reyna að koma í gang
formlegum samningaviðræðum en þær
eru ekki hafnar heldur eru könnunarþreif-
ingar eða könnunarviðræður í gangi. Ég
held að ég geti fullvissað hv. þingmann um
að það standi ekki til að ganga frá einhverju
samkomulagi á morgun eða einhverja
næstu daga og áður en til slíks kæmi yrði
að sjálfsögðu haft samráð við utan-
ríkismálanefnd og aðra þá aðila sem þingið
hefur haft til að fylgjast með framvindu
þessara mála. Staða málsins er sú að það
eru könnunarviðræður eða könnunarþreif-
ingar í gangi.”
Þannig svaraði Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra fyrirspurn um Icesave á
Alþingi 3. júní 2009. Þá hafði Steingrímur
setið á stóli fjármálaráðherra í liðlega fjóra
mánuði.
Fyrirspyrjandinn var Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Þrátt fyrir yfirlýsingu fjármálaráðherra um
að ekkert væri að gerast og ekki væri verið að
ganga frá samningum við Breta eða Hollend–
inga, undirritaði Svavar Gestsson, formaður
samninganefndar Íslands samning tveimur
dögum síðar.
Skipan Svavar sem formann samninga–
nefndar í erfiðri milliríkjadeilu vakti mikla
athygli enda hafði hann enga reynslu af
slíkum samningum. Svavar sagði að um væri
að ræða „alveg hrikalega stórt verkefni“ sem
hann sinnti „eins og ég hef vit og getu til“.
Í viðtali við Morgunblaðið, þremur dögum
eftir undirritun samningsins, sagðist Svavar
hafa verið „svo forhertur“ að hafa tekið að sér
„þetta svakalega verkefni ásamt samstarfs–
mönnum, eitt stærsta efnahagslega verkefni
sem Ísland hefur nokkurn tímann glímt við“.
Í huga Svavars var verkefnið svo stórt að
Stór orð og yfirlýsingar um Icesave:
„... að bera
burt syndir
heimsins”
haldið til haga