Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Síða 7
Breytingar
Ég velti því stundum fyrir mér hve miklar breytingar einstaklingurinn
upplifir á ævinni í hraða nútímasamfélagsins, það liggur við að það sem fundið
er upp í dag sé orðið úrelt á morgun. Eflaust hafið þið, lesendur góðir, einnig
velt þessu fyrir ykkur og riijað upp í leiðinni þær breytingar sem þið hafið
upplifað.
Margar og miklar breytingarnar eru tilkomnar vegna tækinýjunga.
Veiturafmagn er eitt af því sem auknar tækniframfarir leiddu af sér. Það breyttist
margt með tilkomu þess og sennilega myndi mín kynslóð ekki vita hvað sneri
upp og niður í veröldinni ef ekki væri rafmagn á heimilinu. Við gerum okkur
nefnilega ekki alltaf grein fyrir því, hve háð við erum orðin öllum þeim tækjum
sem við höfum í kringum okkur.
Það þarf ekki að fara nema svona 20 ár aftur í tímann, þá voru svokallaðar
heimilistölvur ekki til. Fyrstu heimilistölvurnar þættu ekki merkilegir gripir í
dag. Tækniþróun er það hröð að helst þarf að skipta um vél og hugbúnað á
tveggja ára fresti til að fylgjast með.
Notkun Internetsins varð ekki almenn fyrr en á allra síðustu árum. Árið 1987
fór fyrsti íslendingurinn að nota Internetið að einhverju marki, hann var ekki
tölvufræðingur, heldur kennari búsettur á Kópaskeri. Hann tengdist netinu í
gengum venjulega símalínu. Það þykir nú frekar léleg tenging í dag þegar við
viljum hafa ADSL eða ISDN tengingu, helst þráðlaust samband við gervihnött.
Tölvurnar eru að sjálfsögðu gagnlegar og Internetið á margan hátt ómissandi.
En við megum ekki gleyma því að tölvurnar og netið er líka hægt að nota í
slæmum tilgangi eins og oft hefur komið fram í íjölmiðlum.
GSM síminn er annað tæki sem þykir ómissandi í dag en var ekki til fyrir
nokkrum árum. Það er eins með GSM símann og tölvurnar, hann hefur fyrir
löngu sannað gildi sitt. Fjölskyldumeðlimir geta nú náð í hvern annan, hvar og
hvenær sem er. GSM síminn hefur jafnvel reynst lífgjafi einstaklinga sem kallað
hafa eftir hjálp, eftir að hafa lent í slysum eða öðrum ógöngum.
GSM símar hafa líka tengst umræðum um slæma hluti eins og t.d. einelti og
fíkniefnasölu.
Við höldum áfram að upplifa breytingar. Breytingar sem hafa bein áhrif á líf
okkar, einstaklinginn, eða samfélagið í heild. Við þurfum að taka breytingunum,
hverjar svo sem þær eru, nýta þær til framfara og góðra hluta en koma í veg fyrir
að þær skaði okkur á einhvern hátt.
Við söknum alltaf einhvers frá gamalli tíð en viljum heldur ekki vera án þess
sem við höfum í dag.
Við skulum halda lífi og starfi fyrri kynslóða á lofti og ekki gleyma uppruna
okkar. Hvar værum við í dag án þess brauðstrits sem forfeðurnir lögðu á sig.
JGG
5