Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 55

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 55
Skriðuföll í Fljótsdal stöðum austanlands, m.a. í Valþjófsstaða- fjalli, sem ég skoðaði 15. nóvember. Stærsta hlaupið þar hafði fallið eftir grunnum lækjadrögum ofan frá íjallsbrún og niður hjá prestssetrinu. Fór aðalhlauptungan þar á milli íbúðarhúss og íjárhúsa, og niður undir veginn. Þetta hlaup var nokkuð sérstakt, að því leyti að það virðist aðallega hafa verið vatn og krapi, sem blandaðist mold úr grafningum sem þar voru eða grófust á leið þess, en víðast var jarðvegur heill þar sem hlaupið fór yfir, aðeins mjög moldarlitaður, og sumsstaðar skafinn niður í rót. Á brún næstneðsta klettabeltis, sem hlaupið hafði fossað fram af, voru allar birkihríslur heilar, að því er virtist. Girðingar rifnuðu upp eða skekktust á neðsta hjallanum. (10. mynd) í hlíðarrótum var töluvert af lausagrjóti í skriðunni, sem þar hafði hrúgast saman, en niðri á túninu var efnið nær eingöngu mold, upphaflega þunnfljótandi soppa, allt að 1 m þykk, en varð 1-2 fet þegar vatnið hripaði burt. Var henni rutt burtu af túninu með vélskóflu. Skemmdir af þessu stóra hlaupi urðu því ekki verulegar. Nokkrar smærri krapaspýjur höfðu myndast utar í ljallinu, en ekki náð niður fyrir miðja hlíðina. Einnig voru tvö smáhlaup ofan við Valþjófsstað II (gamla bæjarstæðið), neðst í hlíðinni, sem rifu upp nokkurn jarðveg. Ingólfur Friðriksson frá Valþjófsstað, sem þá starfaði við blaðið Austra, tók nokkrar myndir af þessum hlaupum, og birtust nokkrar þeirra í blaðinu (11. mynd). (Á Eyvindardal féllu 5 hlaup þann 7. nóvember, sitt hvoru megin við eyðibýlið Dalhús, og eitt eða fleiri féllu í Græfum, að vestanverðu í dalnum, þar sem bíll lenti í einu þeirra og fór út af veginum 12. nóv. Þetta voru sömuleiðis aðallega vatns- eða krapahlaup, sem gerðu lítinn usla. Sjá Austra). Skriðuhlaup á Arnheiðarstöðum 2002 Merkilegt er að í hinum gríðarlegu rigningum haustið 2002, þegar vatnsborð Lagarfljóts náði tvisvar sögulegu hámarki, var lítið um skriður í Fljótsdal, eftir því sem best er vitað. Þann 29. (eða 30.) nóvember féll þó dálítil skriða á Arnheiðarstöðum, en ekki fer sögum af skriðufollum þar fyrr á öldum. Skriðan féll úr vel gróinni brekku beint upp af eldra bænum, stutt fyrir utan Bæjarlækinn, sem fellur þar í fossi fram af neðsta hjalla fjallsins, sem kallast Lambhúshjalli innan við lækinn, en Spreka- hlíð utar. Skriðan var um 30 m breið nálægt miðju, ruddi túngirðingu, og náðu moldar- taumar niður undir bæinn, að sögn Jóns E. Kjerúlf bónda þar. Nokkrar smærri skriður féllu úr þessum sama hjalla, bæði utar og innar. Jón hafði heyrt að einhverjar skriður hefðu fallið í Norðurdal um sama leyti. (í fyrri stórrigningunni, þann 12.-13. okt. féllu nokkrar skriður í Græfum á mótum Fagradals og Eyvindardals á Héraði. Ein þeirra var um 100 m breið neðantil. Hún lokaði þjóðveginum heila nótt og fór alveg niður í Fagradalsá sem varð mjög moldar- blönduð). Viðbót um hrunið í Snæfelli 1998. Þann 21. janúar 1998 átti sér stað grjóthrun úr norðausturhlíð Snæfells. Bergspilda losnaði frá efstu brún fjallsins og féll um 420 metra niður nærri lóðréttan klettavegg ofan í jökulbotn sem kallast Sótavistir, þar sem hún skall á skriðuvæng. Hrunið vakti mikla athyli almennings og ekki síst fjölmiðla, þar sem brúnleit rák í fjallinu var sýnileg úr byggð, meðal annars frá Egilsstöðum, en fjallið var annars hvítt af snjó. Menn voru ekki á eitt sáttir um eðli hrunsins, né hvenær það átti sér stað. Sumir töldu að þetta hefði fyrst og fremst verið krapahlaup. Þorsteinn Sæmundsson 53
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.