Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 96
Múlaþing
Hof i Vopnajirði. Ljósmyndari: Óþekktur.
morgungjöfinni góðu. Þar sem hún er síðar
kölluð húskona, er tæplega hægt að álykta
að langvinn veikindi hafi komið til, og enda
lést hún ekki fyrr en 26 árum seinna, þá
komin vestur um haf.
Kristín Jónsdóttir frá Fljótsbakka,
fósturdóttir þeirra Bergs og Kristínar, var
með þeim á Grímsstöðum eins og fyrr hefur
komið fram. Hún fermdist vorið 1865 með
góðum vitnisburði, en ekki varð henni
aldurinn að meini, því hún dó á Gríms-
stöðum þann 21. júní 1868, kölluð fóstur-
stúlka, aðeins 17 ára að aldri. Ekki getur
presturinn þess hvað varð henni að
aldurtila.
Björn flytur að Hauksstöðum í
Vopnafirði
Allvíða kemur fram að Björn Gíslason
hafi verið í áliti meðal samsveitunga sinna,
og íyrr er fram komið að lljótlcga varð hann
hreppstjóri Fjallamanna eftir að hann kom í
Grímsstaði. Vorið 1871 flutti Björn frá
Grímsstöðum eftir 10 ára búskap þar, að
Hauksstöðum í Vopnafirði. Skattholið góða
Bergsnaut skildi hann hins vegar eftir,
fannst það víst of stórt til að taka það með
sér. Stóð það lengi í
frammistofu á Grímsstöðum,
hvar gestum var stundum
vísað til rúms, og þóttust
ýmsir verða varir við svip
Bergs við skattholið. Við
burtför Björns frá Gríms-
stöðum kom þangað frá
Víðidal Jón Methúsalemsson
(3795) með fjölskyldu sína,
en ekki var hann nema árið,
því vorið 1872 kom þangað
frá Víðirhóli Guðmundur
Árnason (13075) með fjöl-
skyldu sína, en hann var faðir
Friðriks Guðmundssonar frá
Syðra-Lóni, sem skráði endurminningar
sínar á gamals aldri, þá löngu fluttur vestur
um haf. Hefi ég minnst á hann hér í texta
mínum, og segir Friðrik föður sinn hafa
keypt Grímsstaði og tekið til þess 1000
króna lán, sem voru ærnir peningar í þá
daga.
Sagan segir að Björn hafi keypt
Hauksstaði af Jósep Jósepssyni sem var á
Grímsstöðum til þess er Björn kom þangað
vorið 1861. Þar sem Hauksstaðir voru fyrr
eign Hofskirkju, að minnsta kosti fram yfir
1854, getur verið að Jósep hafi keypt
jörðina af kirkjunni, máske þegar hann
fluttist þangað frá Grímsstöðum vorið 1861.
Jósep hafði verið hreppstjóri þeirra
Vopnfirðinga, og segja má að Björn fengi
hreppstjóraembættið í Vopnafirði með
jörðinni. Einnig munu einhverjir hafa unnið
að því að hann hlaut Dannebrogsorðuna
1874.
Friðrik Guðmundsson getur þess í
endurminningum sínum, þegar séra Halldór
á Hofi sagði við Björn: „Hvernig stendur á
því Björn minn að þú framkvæmir miklu
meira verk með færri mönnum en ég?“ „Ja,
það skal ég segja þér; það er af því að ég
94